Morgunblaðið - 27.03.2015, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 27.03.2015, Blaðsíða 25
UMRÆÐAN 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MARS 2015 Já, enn og aftur, snillingar ljóðsins geta sagt svo mikið sem annars væri ósagt. Jarðsamband þeirra pólitísku hugsjóna sem helst hafa ráðið Íslandi var rifið upp með rótum að mati Matthíasar skálds og Morgunblaðsritstjóra með tilvísun til upp- gjörs hans og skáldsins frá Kötlum við pólitíska bernsku þeirra í bók Matthíasar „Vígvöllur siðmenn- ingar“ sem sýnir að skáldið titrar milli steins og sleggju og þykir sárt að þurfa að yrkja nú sem Jóhannes úr Kötlum. En nú erum við fleiri en tveir sem titrum milli steins og sleggju, sárir og hörmum slegnir af stjórnsýslu sem traðkar niður hug- sjónir okkar frá yngri árum um hlutverk ríkis og byggða. Við eldri skiljum ekki t.d. að óreiða „hægri“ stjórnvalda eigi að valda eignarnámi „vinstri“ stjórn- valda í eignum okkar og skerðingu á áunnum bótarétti frá trygging- arsjóðum eftir að okkar kynslóðir hafa skilað landinu ríku af alls- konar gæðum og verkfærum til að viðhalda auði auðlinda til öryggis um alla framtíð. Svo að askurinn sjálfur verði aldrei tæmdur og fugl- ar geti sungið fyrir komandi kyn- slóðir, eins og Matthías vildi að raunin væri. Skammhleypt stjórnvöld slá enn upp skjaldborg um fjármálastofn- anir, brask og svipað bruðl í op- inbera bákninu sem áður, með því að virkja okkur nytsama sakleys- ingjana fáum við gjaldstofna með nýjum gerðum jarðsambandslausra þjónustugjalda hugmyndalausra stjórnvalda, sveitarfélaga og banka. Þetta er rán og ekkert ann- að. Rúmlega 20 milljarða auka- skatti á lífeyrisþega frá 1. júlí 2009, álögðum af vinstri skjaldborginni, hefur t.d. enn ekki verið skilað þrátt fyrir að vera í eðli sínu skyldusparnaður en ekki skattur. Þann pólitíska ómöguleika sem ríkir í málefnum aldraðra má skil- greina sem list hins ómögulega. Fyrir marga eldri borgara er næsta ómögulegt að eiga fyrir framfærslu. Það er næsta ómögu- legt að eiga fyrir lyfj- um. Það er næsta ómögulegt að eiga sparifé vegna marg- sköttunar. Það er næsta ómögulegt að vera vinnufús eldri borgari Það er næsta ómögulegt fyrir eldri borgara að eiga fyrir þjónustugjöldum sveitarfélaganna. Það er næsta ómögulegt að fá pláss á dvalar- eða hjúkrunarheimili fyrir eldri borgara. Skerðingar á áunnum bótum og allskonar þjónustugjöld er ekkert annað en tvískattlagning sem er andstæð meginreglum samfélags- ins og verður ekki skilgreind annað en gróf misbeiting valds til eign- arnáms. Þolinmæði er líka að verða ómöguleiki fyrir eldri borgara þessa lands, sem hafa náð líkum þroska í árum mælt og f.v. ritstjór- inn og starfsfélagi Matthíasar sem sagði m.a. „Ég er búinn að fylgjast með þessu í 50 ár. Þetta er ógeðs- legt þjóðfélag, þetta er allt ógeðs- legt. Það eru engin prinsipp, það eru engar hugsjónir, það er ekki neitt.“ Já, það eru engin prinsipp, en maður spyr og spyr, og verður hvað eftir annað kjaftstopp, með á vörum spurningar um pólitíska siglingakunnáttu stjórnenda þessa lands sem hafa siglt þjóðarskútunni á sker nokkuð reglulega allt lýð- veldisskeiðið, oftast eftir mestu góðæri þeirra sögu. Alltof oft hefur ekki tekist að rétta kúrsinn af í tíma, því miður. Svarið hefur alltof oft verið að nýir vendir sópi best og um leið að sjá ekki að fleiri en einn sannleikur er til. Það er nefnilega ekki bara til svart og hvítt, heldur líka ekki neitt. Tvenndarkenningin fær hér ekki staðist. Sennilega má taka undir með virðulegu sjálfstæðisfrúnni frá Eskifirði sem var ásamt mér og Sigurði Blöndal skógræktarmanni í viðtalsþætti í ríkisútvarpinu frá Egilsstöðum fyrir margt löngu, þar sem spurningin var hvað væri hægt að gera fyrir gamla fólkið til bóta á ævikvöldi. Svöruðum við Sigurður báðir að „ungmennafélagshætti“ og sögðum að bótaskrefin væru ein- föld en mörg, af miklum sannfær- ingarkrafti, en frúin sagði og sleit þar með frekari umræðu um málið: „Við skulum láta gamla fólkið í friði.“ Allar langar þrætubækur valda aðeins brestum í sálarkytru okkar nytsamra sakleysingjanna og skapa eyrnaverk, tannverk, magaverk og að lokum hausverk, síðan sálarverk tómleikans í miklum og auknum til- vistarvanda. Ef maður hefur nennu til að rýna í þjóðfélagið og stjórnvaldsaðgerðir síðustu áratuga verður niðurstaðan án efa sú að tilvistarkreppa ís- lenskra stjórnmála er að hægri öfl- in eru lömuð af nútíðar- og fortíð- arvanda af innri sjálfbærni og vinstri er heltekið af framtíðarótta. Tandurhreina vinstri stjórnin leysti engin vandamál enda nærðist hún á vandamálasmíð fyrri stjórna og við að finna upp vandamál, svo sem um tilurð og nýtingu auðlinda og verða þar með í sjálfum sér stærsta vandamálið. Ekki batnaði ástandið þótt allskonar „Bestu“ flokkar bættust við og hjálpuðu til að hirða einhverjar krónur í viðbót af eldri borgurum og millistéttinni. Árið 1989 komst á þjóðarsátt sem skilaði kraftaverki. Þá var það fólkið í atvinnulífinu sem tók völdin og leysti málin, engir flækjufætur stjórnmálaelítu voru tilkallaðir sem betur fer. Það sem ég hef hér skrifað segir frá þeirri tilfinningu sem heltekur þegar hugsjónir manns eru að hrynja og allir fuglar virðast þagna. Frá vígvelli siðmenningar Eftir Erling Garðar Jónasson » Svo að askurinn sjálfur verði aldrei tæmdur og fuglar geti sungið fyrir komandi kynslóðir, eins og Matt- hías vildi að raunin væri. Erling Garðar Jónasson Höfundur er formaður Samtaka aldraðra. Margt hefur verið gert í samfélagi okkar til að gera fötluðum og öldruðum fært að bjarga sér sem mest sjálf. Því miður virð- ast um þessar mundir einhver önnur sjón- armið tröllríða þeim stofnunum sem taka ákvarðanir varðandi hagsmunamál þessara þjóðfélagshópa. Við vitum hörm- ungasöguna um það hvernig búið er að ganga með nýjungarnar hjá ferðaþjónustunni í Reykjavík. Þar var farið af stað með breytingar í miklu flaustri og virtist svo sem einhverjir nýir stjórnendur teldu það fyrir neðan sína virðingu að hafa eitthvert samráð við not- endur þjónustunnar. Svipað ólánsmál virðist nú í uppsiglingu gagnvart fötluðum og gamalmennum nema nú er það Umferðarstofa sem gengur fram í vitleysunni. Einhverjum þar á bæ datt í hug það snjallræði að bílar þeir sem sinna ferðaþjónustunni skuli ekki lengur fá að hafa stig- bretti eins og þeir hafa haft sjálf- sagt frá byrjun þjónustunnar en nú er þeim neitað um skoðun nema þeir taki stigbrettin af, að sögn vegna þess hve hættuleg þau eru hjólreiðamönnum. Eins og þessi bretti eru nú góð hjálpartæki fyrir þá sem eru með gigt eða stirðleika, veikan fót, nú eða fatlaða sem komast leiðar sinnar án þess að þurfa alltaf að nota hjólastól. Okkur hinum sýn- ist nú að sá hjólreiða- maður sem hjólar svo nærri bílum í umferð- inni að hann sé í hættu á að rekast ut- an í þessi bretti þurfi að skoða betur hvort hann sé yfirleitt hæf- ur til að vera á hjóli í umferðinni, því sá sem fer svo nálægt bílnum er í raun búinn að setja sig í stór- hættu bara almennt vegna um- ferðarinnar. Og hvernig er með alla þessa spegla sem eru á bílunum, verður þá ekki líka að banna þá? Hvers konar kjánagangur er hér annars á ferðinni? Og það frá opinberri stofnun. Fróðlegt væri ef Umferðarstofa sýndi okkur fram á hve mörg slys hafa orðið á hjólreiðamönnum af völdum þessara bretta og á hvaða lögum þeir byggja þessar nýju reglur sínar. Þeir sem til þekkja vita hins vegar að þessi bretti gera fötl- uðum, fótaveikum og eldri borg- urum það fært að komast inn og út úr bílum þessum án aðstoðar eða með smávægilegi aðstoð og ef þessara bretta nyti ekki við væri í raun hættulegt ef ekki stór- hættulegt fyrir þetta fólk að reyna að basla við að komast upp í bíl- ana og út úr þeim aftur. Skora ég á þá sem þessum mál- um stjórna að endurskoða málið og afturkalla sem fyrst þessa flausturslegu ákvörðun. Ef mikið hefur verið um slys á hjólreiðafólki af völdum þessa væri þá ekki rétt að skylda það til að fara á námskeið áður en það fær að fara á reiðhjóli út í umferð- ina? Ferðaþjónusta fatlaðra Eftir Hjálmar Magnússon Hjálmar Magnússon » Svipað ólánsmál virðist nú í uppsigl- ingu gagnvart fötluðum og gamalmennum. Höfundur er stjórnarmaður í Sjálfs- björgu á höfuðborgarsvæðinu. - með morgunkaffinu SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT METSÖLULISTI EYMUNDSSON VIKAN 18.03.15 - 24.03.15 1 2 5 6 7 8 109 43 Bókin um vefinn - Sjálfshjálpa Sigurjón Ólafsson Flækingurinn Kristín Ómarsdóttir Britt-Marie var hér Fredrik Backman Eiturbyrlarinn ljúfi Arto Passilinna Morðin í Skálholti Stella Blómkvist Afturgangan Jo Nesbø Hellisbúinn Jørn Lier Horst Alex Pierre Lemaitre Ástin, drekinn og dauðinn Vilborg Davíðsdóttir Dansað við björninn Roslund & Thunberg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.