Morgunblaðið - 27.03.2015, Side 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MARS 2015
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er eins og allir vilji ná athygli
þinni og þú mátt hafa þig allan við. Annars
er hætta á því að þú farir að setja þig á há-
an hest. Haltu þig við raunveruleikann og þá
fer allt vel.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er alveg hægt að rökræða við
fólk án þess að allt fari í hund og kött.
Sýndu þolinmæði og þá mun allt leysast
farsællega. Sinntu hjálparbeiðni gamals vin-
ar.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Mundu að fara vel með það sem
aðrir segja þér í trúnaði. Vertu maður til
þess að liggja ekki á skoðunum, þótt ein-
hverrar andstöðu megi vænta.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Nú er komið að skuldadögum. Fáðu
einhvern í heimsókn sem getur lyft þér upp
og gerðu eitthvað skemmtilegt.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Dagurinn hentar vel til nákvæmrar
skipulagningar og verkefna sem krefjast
vandvirkni og þolinmæði. Heppni og já-
kvæðar aðstæður virðast fyrir hendi.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú ert með hugmynd sem þú vilt
koma á framfæri. Málið er bara að finna
hana og það getur tekið sinn tíma.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þér finnst mjög gaman að sýna þig
þegar völlur er á þér. Sama hvað þú leggur
hart að þér, menn þurfa á því að halda að
taka sér hvíld til að viðhalda skilvirkninni.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú hefur rétt til að skipta um
skoðun, og það muntu gera oft eftir að þú
ferð að endurskoða forgangsröðina. Hugur-
inn dvelur hugsanlega við ferðaáætlanir eða
einhvern sem er langt í burtu.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Með gamanseminni tekst þér að
létta á spennunni meðal félaganna. Ekki
velja að vinna bara og eiga ekkert einkalíf.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Sá sem sagði að lífið væri ekki
aðalæfing með búningum hefur augljóslega
ekki séð inn í fataskápinn þinn. Hann kemur
miklu í verk og nýtur góðs af styrk annarra.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þér finnst það skylda þín að
deila vitneskju þinni með öðrum. Einhver
annar hefur tekið við stjórninni og leiðir það
í aðra átt.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er skrýtið fyrirbæri að störfum í
lífi þínu. Ef málið snertir þig skaltu reyna að
komast að hinu sanna áður en þú fellir ein-
hverja dóma.
Á sunnudaginn skrifaði BjarkiKarlsson á Boðnarmiði um
þann hræðilega atburð þegar Ed-
ward Oxford sýndi Viktoríu Breta-
drottningu banatilræði sem tókst
ekki betur en svo að drottning ríkti
í 61 ár eftir það.
Drottningin drambi firrta
dýrleg með hreina sál,
Viktoría hin virta,
voldug – en laus við prjál.
Þó vildi þessa myrta
þrjótur með svik og tál,
svo heimsveldis bliknaði birta
er byssunnar hæfði stál.
Ei náði í ál þó að syrta,
sú eilífa reyndist of hál.
– Eins er með Árna Pál.
Davíð Hjálmar Haraldsson veit
sínu viti:
Það varð ekki véfengt né hrakið
að versnaði í mjóbaki takið
og korselett brast
– Rut kastaði fast –
er bjúgverpil fékk hún í bakið.
„Sælt veri Leirlið á hljóðri
morgunstund,“ skrifaði Páll Ims-
land á miðvikudag. „Uppsúmmer-
ing á undangengnum mánuðum
hefur leitt mig að niðurstöðu um
áhrif veðráttunnar á Leirliða:“
Þrumur og eldingar, þrútið loft,
og þrálátir byljir oss herja oft.
Þá kuldi og væta
oss bragfimi bæta
og fylla með rími vorn kvæðahvoft.
Páll tekur fram að hinn hreini
(og eini sanni) skaftfellski fram-
burður hans á hv-hljóðum sé hér
brotinn að kröfu bragfræðinnar!
Sjö mínútur yfir fimm á miðviku-
dag skrifaði Ólafur Stefánsson í
Leirinn:
Í tíma hjá tannsanum glaða,
lét hann tækin dansa með hraða.
Er ég hrópaði stopp,
sagð’ann „humöret opp“
svo prófa skalt Pina Colaða.
Ólafur tekur fram, að þetta sé
ekki „bulllimra“ heldur púra sann-
leikur frá því fyrir hálftíma. „ Þetta
læknisráð kom til út af því að hann
vissi að ég væri að fara niðrá eyjar,
þar sem þessi drykkur er vinsæll og
inniheldur romm, ananas og kokos-
mjólk.“
Hallmundur Kristinsson heldur
sínu striki:
Margt láta menn oft flakka;
misjafnt hvort aðrir þakka.
Sé hún nú sönn
sagan um Fönn,
eignast hún kannski krakka.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af Viktoríu drottningu
og ýmsu fólki
Í klípu
„VIÐ ERUM AÐ NÁ ÁRANGRI. BRÁTT
MUNTU GETA SAGT ÞAÐ ÁN BLÓMA.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„HÚN VERÐUR TAUGAÓSTYRK ÞEGAR VIÐ
NOTUM NÝJU BOLLANA.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að sýna uppáhalds-
sjónvarpsþættinum
hennar athygli.
ÉG ER MEÐ
ÞURRAR VARIR!
NÚ GET ÉG EKKI
KYSST LÍSU!
FRÁBÆRAR
FRÉTTIR!
ÉG VERÐ AÐ
SEGJA AÐ ÞÚ LÍTUR
HRÆÐILEGA ÚT,
HRÓLFUR!
MÉR LÍÐUR
HRÆÐILEGA,
LÆKNIR!
FÆRÐU MINNST ÁTTA
TÍMA SVEFN Á HVERRI
NÓTTU?HMMMMM...
Víkverji hefur á tilfinningunni aðmarkvisst sé stöðugt verið að
blekkja almenning. Sérstaklega er
þetta áberandi þegar hækkuð gjald-
skrá eða ofurlaun eru réttlætt.
x x x
Bankastjórar eru með svimandi hálaun í samanburði við almenning
og voru með enn hærri tekjur fyrir
hrun. Þá var viðkvæði þeirra að þeir
þyrftu að vera með sambærileg laun
og bankastjórar erlendis því annars
neyddust þeir til þess að fara í störf í
útlandinu. Þeir fengu umbeðnar launa-
hækkanir en aldrei var vart við eft-
irspurn eftir þeim erlendis.
x x x
Þegar læknar stóðu í kjarabaráttu ívetur réðu þeir almannatengla til
þess að bæta ímyndina og réttlæta
kröfurnar. Læknar sögðu upp og hót-
uðu að fara til starfa erlendis fengju
þeir ekki sambærileg laun og læknar í
útlandinu. Almenningur beit á agnið
og hafði mikla samúð með læknum. Í
þessari umræðu benti einn almanna-
tengillinn á að læknar hefðu ekki orðið
við áskorun fjármálaráðherra um að
opinbera launakröfurnar vegna þess
að í sumum tilfellum væri betra að tjá
sig ekki og læknar komust upp með
það í þessu sambandi. Þegar aðrar
stéttir viðruðu hugmyndir um svipaða
launahækkun fór allt á annan endann
enda þær ekki með almannatengla á
sínum snærum.
x x x
Um mánaðamótin tekur gildi nýgjaldskrá fyrir bílastæði við Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar. Í stuttri frétta-
tilkynningu var áréttað að þrátt fyrir
hækkun yrðu afnotin af skamm-
tímabílastæðunum „áfram umtalsvert
ódýrari en á helstu flugvöllum á Norð-
urlöndum“ og notkun langtímastæða
yrði „einnig áfram nokkuð ódýrari en á
helstu flugvöllum á Norðurlöndum.“
x x x
Þegar svona samanburði er skelltframan í Víkverja veit hann að við-
komandi hefur vondan málstað að
verja. Af hverju er verið að bera verð-
lag hérlendis saman við verðlag á
Norðurlöndum, þar sem kaupmáttur
er allt annar og betri? Væri ekki nær
að bera saman verð hér við verð á
stöðum þar sem kaupmáttur er svip-
aður? víkverji@mbl.is
Víkverji
Annan grundvöll getur enginn lagt en
þann sem lagður er, sem er Jesús Krist-
ur. (Fyrra Korintubréf 3:11)
Glæsileg armbandsúr
Bankastræti 6 – sími 551 8588 – gullbudin.is
29.200
32.500 36.990 27.300 33.800
24.700 39.900 31.500