Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.03.2015, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.03.2015, Blaðsíða 38
L ærlingurinn í Hvíta húsinu, Monica Lewinsky, varð á einni nóttu heims- þekkt aðeins 24 ára gömul þegar hún gerði þau mistök að verða ástfangin af yfirmanni sínum. Í hjartnæmum fyrirlestri á nýlegri TED ráðstefnu sem hún kallar „the price of shame“ eða „gjald niðurlæging- arinnar“ eins og það gæti útlagst á íslensku ræðir Lewinsky opinskátt um reynslu sína af því að hafa verið fórnarlamb neteineltis (e. cy- per bullying), þó hún bendi á að fyrirbærið hafi ekki verið komið með nafn þá. Lewinsky vill með fyrirlestrinum opna um- ræðuna um neteinelti og ljá þeim rödd sem lent hafa illa í því og verið jafnvel ofsótt með einhverjum hætti á netinu. Lítið hafði heyrst frá Lewinsky, sem nú er 42 ára, í um áratug þegar hún veitti tímarit- inu Vanity Fair viðtal á síðasta ári. Í því við- tali lýsti hún alvarlegum afleiðingum ást- arsambandsins við Bill Clinton og dró athyglina sérstaklega að vefmiðlum, líkt og hún gerir í fyrirlestrinum nú. Hún bendir á að á þessum tíma hafi engir samfélagsmiðlar ver- ið til en fréttin um hana og Clinton hafi þó fyrst komið fram á vefmiðlum. Myndir af henni hafi á skömmum tíma verið komnar út um allan heim. Hún hafi á örskotsstundu farið frá því að vera óþekkt ung kona í Washington yfir í það að vera niðurlægð opinberlega um víða veröld. Hún hafi orðið skotspónn og þurft að líða fyrir þessi mistök á allt annan hátt en sjálfur Bandaríkjaforsetinn. Hann hafi þurft að vernda sína valdastöðu og hún hafi bara verið peð sem mátti fórna. Missti æruna á einni nóttu Eins og fyrirlesturinn ber með sér hefur Lew- insky öðlast þroskað sjónarhorn á atburði árs- ins 1998, þegar upp komst að Bill Clinton hafði haldið við hana, og hún greinir atburða- rásina á áhugaverðan hátt. „Þegar ég var 22 ára varð ég ástfangin af yfirmanni mínum. Þegar ég var 24 ára varð ég að horfast í augu við eyðileggjandi afleið- ingar þess,“ segir Lewinsky. Og hún heldur áfram. „Árið 1998, eftir að óviðeigandi ástarsam- band hafði kippt undan mér fótunum þá var fótunum kippt undan mér í pólitískum fjöl- miðlastormi sem var ólíkur öllu sem við höfð- um áður kynnst. Þessi skandall var í boði hinnar rafrænu byltingar. Þegar fréttin kom út þá kom hún út á net- inu. Þetta var í eitt af fyrstu skiptunum sem vefmiðlar voru á undan hefðbundnum frétta- miðlum með stórfrétt.“ Ljósmyndir af Lewinsky, sérstaklega ein mynd af henni í bláum kjól, fóru á methraða um netið og kommentin fóru að streyma inn. Lewinsky var kölluð öllum illum nöfnum á netinu og myndum dreift víða henni til háð- ungar, gjarnan gengu tölvupóstar með mynd- um af henni manna á milli. „Ég var kölluð drusla, hóra, tussa, heimsk- ingi. Ég missti æruna, stolt mitt og næstum lífið. Fyrir sautján árum síðan var ekki til neitt nafn yfir þetta en í dag köllum við þetta neteinelti eða netáreitni,“ segir Monica Lew- insky. Líklega má kalla Lewinsky fyrsta fórn- arlamb neteineltis á heimsvísu. Nokkrum ár- um áður hafði fólk aðeins þrjár leiðir til að fá fréttir: útvarp, sjónvarp og dagblöð. Þegar mál Lewinsky komst upp á yfirborðið var net- ið að slíta barnsskónum en segja má að fréttir af framhjáhaldi hennar og Bill Clinton hafi verið fyrsti netskandallinn. Lewinsky hefur lítið látið á sér bera síðast- liðinn áratug eða svo. Hún lýsir því í fyrr- nefndu viðtali í Vanity Fair að nær ógerlegt hafi reynst fyrir hana að fá vinnu í Bandaríkj- unum. Árið 2008 lauk hún framhaldsnámi í sálfræði frá breskum háskóla en komst að því þegar hún sneri aftur til Bandaríkjanna að nafn hennar var síður en svo gleymt. Enginn vildi fá Monicu Lewinsky í vinnu. Dauði Tyler Clementi hafði áhrif Hún segist hafa vaknað upp við vondan draum árið 2010 þegar hún las fréttir af því að háskólanemi að nafni Tyler Clementi hefði svipt sig lífi eftir að myndir af honum í kyn- mökum með öðrum karlmanni láku á netið. Þá fannst Lewinsky að tími væri líklega kom- inn til þess fyrir hana að stíga fram og segja söguna af því þegar hún og hennar einkalíf var opinberað á netinu. Í hennar tilviki voru þetta ekki aðeins myndir af henni og nafnbirt- ing, heldur voru upptökur af einkasamtölum hennar við konu sem hún taldi vinkonu sína settar á netið, en í þeim lýsti hún ástarsam- bandi sínu við Clinton nákvæmlega. Dauði Tylers var vendipunktur fyrir Lew- insky. Hún fór að geta sett sína reynslu í samhengi og rifjaði upp tíma þegar foreldrar hennar vöktuðu hana hverja stund því þau voru hrædd um að hún yrði „auðmýkt til dauða“ eins og hún orðar það. Um tíma var óttast að hún myndi svipta sig lífi. Lewinsky er umhugað um að opna umræðu um ábyrgð. Ekki sé nóg að tala um frelsi til tjáningar heldur verði fólk að vera tilbúið að axla ábyrgð, ekki bara einstaklingar heldur líka vefmiðlar sem geri út á það að birta nið- urlægjandi fréttir af einkalífi fólks. Hún bendir einnig á að við sem neytendur frétta verðum sífellt ónæmari fyrir því þegar fólk er niðurlægt og viðkvæmar persónu- upplýsingar birtar á netinu. Hún hvetur fólk til að setja sig í spor þeirra sem fyrirsagn- irnar fjalla um eða eins og hún orðar það: „walk a mile in someone elses headline“ – prófa að „lifa lífi sínu undir fyrirsögn um ein- hvern annan“. Með fyrirlestrinum vill Monica Lewinsky leitast við að hjálpa þeim sem telja að öll sund séu lokuð og líður eins og lífið sé búið vegna einhvers sem birst hefur um viðkomandi á netinu. Hennar skilaboð eru að fórnarlömb net- eineltis séu nú þegar orðin allt of mörg. Nú sé kominn tími til að snúa við blaðinu og hafa samkennd að leiðarljósi en hætta að framleiða og deila efni á netinu sem gengur ekki út á neitt nema opinbera niðurlægingu. Fyrsta netfórnarlambið? NAFN MONICU LEWINSKY VARÐ SKYNDILEGA Á ALLRA VÖRUM EFTIR AÐ UPP KOMST UM ÁST- ARSAMBAND HENNAR OG BILL CLINTON BANDARÍKJAFORSETA ÁRIÐ 1998. LEWINSKY SNERI NÝVERIÐ AFTUR FRAM Á SJÓN- ARSVIÐIÐ EFTIR ÁRALANGT SJÁLF- SKIPAÐ FJÖLMIÐLABANN OG RÍS NÚ UPP GEGN NETEINELTI. FYRIRLESTUR HENNAR Á TED.COM HEFUR VAKIÐ MIKLA ATHYGLI. Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is „Ég er líklega eina manneskjan yfir fertugu sem vill alls ekki verða 22 ára aftur,“ segir Monica Lewinsky í TED fyrirlestri sínum og uppsker hlátur. Í lok fyrirlestrarins er standandi lófatak. AFP * „Því meiri skömm,því fleiri smellir. Þvífleiri smellir, því meiri auglýsingatekjur,“ segir Monica Lewinsky og skýt- ur föstum skotum á vef- miðla sem gera út á nið- urlægjandi fréttir af fólki. Monica Lewinsky talar af einlægni um neteinelti í fyrirlestri sem nálgast má á vefsíðunni www.ted.com. 38 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.3. 2015 Græjur og tækni ...að 21 árs maður hefur að meðaltali eytt um 5.000 klukkustundum í að spila tölvu- leiki, 10.000 klukkustundum í að gera eitt- hvað í snjallsímanum sínum og hefur auk þess sent um 250.000 tölvupósta og smá- skilaboð, úr síma og af netinu. Vissir þú...
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.