Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.03.2015, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.03.2015, Blaðsíða 41
29.3. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41 E itt af heillasporunum í lífinu var stigið þegar ég flutti í miðbæinn og fór að venja komur mínar á Kaffifélagið við Skólavörðustíg. Fyrir utan það að bjóða upp á eitt besta kaffið á höfuðborgarsvæðinu sogar þetta kaffihús til sín hóp af smörtu fólki sem lætur sko ekkert framhjá sér fara. Þess vegna kom það ekki á óvart að ég væri rukkuð um brjóstamynd þegar ég mætti kappklædd í mínum staðalbúnaði, brjóstahaldara og aðhalds- sokkabuxum, á fimmtudagsmorguninn. Við erum nefnilega orðin svo náin eitthvað þarna á kaffistéttinni. Ég útskýrði fyrir þeim að heimurinn yrði líklega ekkert skárri þótt tútturnar á mér kæmust á internetið. Tútturnar á konu sem hefur verið með tvo drengi á brjósti í samtals átta ár eiga afar lítið erindi á internetið – jafnvel þótt málstaðurinn sé góður. Á Skólavörðustígnum spunnust auðvitað hressi- legar umræður um brjóst. Einn sagði frá því að kon- an hans, sem er þekkt leikkona, hefði sleppt því að setja myndir af sér á netið þar sem allir gestir Kaffibarsins væru líklega búnir að sjá á henni brjóstin. Hún átti það nefnilega til á einu hressi- legasta skeiði lífs síns að rífa sig úr að ofan þegar gleðin stóð sem hæst á Kaffibarnum. Maðurinn hennar sagði að stundum hefði hún fengið frían bjór þegar hún gerði þetta og hló. Karlpeningurinn á kaffistéttinni var ekki alveg að skilja þetta túttuvesen, en þeir játuðu eftir smá vangaveltur að þessi fimmtu- dagur hefði líklega verið einn besti dagur internetsins fyrr og síðar. Hvaða maður segir nei við brjóstamyndum af konum – mögulega enginn. Ég skildi hvað þeir voru að fara. Vandamálið er bara að ég hef ekki alveg jafnmikinn áhuga á brjóstum og karlpeningurinn. Öll unglingsár mín hataði ég þessa sístækkandi hnullunga sem létu eins og þeir væru í lyftidufti og var staðráðin í því að fara í brjóstam- innkun um leið og ég yrði fullorðin (sem gerðist formlega í vikunni þegar ég náði 38 ára aldrinum). Á þessum árum var ég ekkert að tengja brjóstastærðina við holdafarið enda hefðu brjóstin líklega verið mun nettari ef kropp- urinn hefði verið í kjörþyngd en það er önnur saga. Á meðan allar skinkur sokkabandsáranna voru í sjokköpp-sokkabuxum og won- derbra var ég í brjóstahaldara sem ýtti brjóstunum niður. Svo virk- aði alltaf mjög vel að vera bara frekar hokin í baki því þá virkuðu brjóstin minni. Á stundum var líka gott að fela sig í stórum og víð- um peysum. Þegar ég hafði loksins efni á brjóstaminnkuninni voru synir mínir búnir að soga þetta allt í burtu. Þetta „vandamál“ leystist því tækni- lega séð af sjálfu sér og ég sparaði í kringum 500.000 krónur. Sem sönn vinkona bauð ég kaffivinum mínum náttúrlega upp á þann valmöguleika að ég myndi fletta upp um mig þarna á stéttinni því ekki getur þessi 38 ára kona verið þekkt fyrir tepruskap. Þeir afþökkuðu boðið og ég pantaði mér bara annan latte. martamaria@mbl.is Tepokarnir sem komust ekki á netið Morgunblaðið/Eggert Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is Hágæða flísar frá Ítalíu 60 x 60 cm
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.