Bókasafnið - 01.06.2010, Qupperneq 10
10
Bókasafn Akraness flutti í ný húsakynni á nýliðnu ári.
Aðdragandinn var nokkuð langur, en í ársbyrjun 2006
ákvað bæjarstjórn að undangenginni þarfagreiningu að
söfnin í Bókhlöðunni, Heiðarbraut 40, færu í nýtt húsnæði.
Í byrjun maí 2006 var undirritaður kaupsamningur á milli
Fasteignafélags Akraneskaupstaðar og Smáragarðs ehf.
þar sem Fasteignafélag Akraneskaupstaðar keypti hluta af
verslunarmiðstöðinni að Dalbraut 1, á nýju miðbæjarsvæði,
fyrir Bóka- og Héraðsskjalasafn Akraness. Um var að ræða um
það bil 1300 m² húsnæði, allt á einni hæð í stað 1050 m² á
þremur hæðum á Heiðarbrautinni.
Nýja húsnæðið átti að hanna með tilliti til þarfa safnanna
og hófst vinna með arkitektum hjá Skapa og Skerpa,
Þjónustumiðstöð bókasafna og Magnúsi H. Ólafssyni arkitekt
og ráðgjafa vegna skjalageymslna strax í upphafi ársins 2006
og var vel á veg komin er nýr meirihluti bæjarstjórnar ákvað að
hætta við flutninginn og fara í endurbætur á Heiðarbraut 40.
Það er erfitt að vera með safnastarfsemi í húsnæði sem
þarfnast mikillar viðgerðar og að lokum fór svo að bæjarstjórn
fjárfesti í nýju húsnæði fyrir bókasafn og skjalasafn, þar sem
einsýnt var að eldra húsnæðið þurfti mikillar viðgerðar við.
Þann 26. júní 2008 var undirritaður samningur um byggingu
á nýju bókasafni á Akranesi, en hið nýja safn er hluti af
verslunar- og þjónustumiðstöðinni að Dalbraut 1, þar sem
Tónlistarskólinn á Akranesi er einnig til húsa. Þetta er sama
hús og áður hafði verið ákveðið að flytja söfnin í en önnur
staðsetning. Ekki þarf að taka fram að hér er um byltingu að
ræða í safnamálum á Akranesi. Gott aðgengi er að söfnunum,
allt á einni hæð, góð aðstaða fyrir starfsfólk og næg bílastæði.
Húsnæðið var afhent í byrjun júlí 2009 og opnað fullklárað 1.
október síðastliðinn.
Undirbúningur að flutningi
Á ný hófst vinna með Elínu Gunnlaugsdóttur arkitekt frá Skapa
og Skerpa og öðrum þeim sem komu að fyrra skipulagi. Hafa
þurfti í huga þarfir bókasafns, skjalasafns og ljósmyndasafns.
Húsnæðið er ekki stærra í fermetrum en það gamla, en hér
er allt á einni hæð og lofthæð mikil, sem ákveðið var að nýta
vel í geymslum. Arkitektinn hafði samráð við starfsfólk um
innra skipulag en í hennar höndum var litaval á gólfefnum og
lofti, val á loftljósum og klæðningu á húsinu að utan. Einnig
hannaði hún innganga (að sunnan- og norðanverðu hússins)
sem minna á Hvalfjarðargöngin.
Stofnununum þremur, sem deila með sér húsnæðinu, var
úthlutað 44,5 milljónum króna til kaupa á búnaði. Þar sem nýja
húsnæðið er ekki stærra en það gamla og safneign mikil og
varðveislusöfn héraðs- og ljósmyndasafnanna umfangsmikil,
var ákveðið að kaupa hjólaskápa í skjalageymslu, sem hýsa
einnig bókageymslur bókasafnsins. Nýr bókasafnsbúnaður
var keyptur frá Þjónustumiðstöð bókasafna en allur eldri
skrifstofubúnaður var nýttur áfram, svo og tölvubúnaður.
Gamlir stólar voru yfirdekktir og notaðir í kaffistofu og í sal.
Flutningur safnanna tók tvo mánuði. Söfnunum var lokað
1. ágúst og opnuð aftur 1. október 2009. Starfsfólk safnanna
sá um skipulag flutninganna en verktaki var fenginn til að
flytja safngögn og búnað. Einnig kom aðstoð frá unglingum í
Vinnuskólanum við pökkun safngagna. Lánþegar hjálpuðu til
við flutningana með því að taka bækur ríflega að láni. Útlán í
júlí 2009 sló öll fyrri útlánamet, lánuð voru 8.669 safngögn,
tæplega 50% meira en meðalútlán eru á mánuði.
Auk Bókasafns Akraness eru Héraðsskjalasafn og
Ljósmyndasafn Akraness í nýja húsnæðinu að Dalbraut 1 en frá
og með árinu 2007 var rekstur þeirra færður til bókasafnsins.
Þetta var gert með sparnað í huga, söfnin deildu með sér
húsnæði og ýmsum tækjabúnaði og því þótti hagræði
að sameina söfnin í eina rekstrareiningu, undir yfirstjórn
bæjarbókavarðar.
Bókasafn Akraness í nýtt húsnæði
Halldóra Jónsdóttir