Bókasafnið - 01.06.2010, Blaðsíða 37
37
bókasafnið 34. árg. 2010
í Borgarfirði fyrir varaeintakasafn. Þá eru afrit af stafrænu efni
í hýsingu hjá fyrirtækinu Skýrr, um 22 terabyte.
Nokkur útibú eru rekin í húsnæði Háskóla Íslands, en þeim
fer fækkandi. Þau voru 15 árið 1994 en eru nú 6 talsins. Þá er
Kvennasögusafn rekið sem sérstök eining innan safnsins frá
árinu 1996 og einnig samstarfsverkefnið Miðstöð munnlegrar
sögu frá árinu 2007.
Starfsfólk safnsins tekur virkan þátt í þróun bókasafns-
kerfisins Gegnis og leitarsíðunnar gegnir.is. Gegnir er sam-
starfs verkefni íslenskra bókasafna og er rekinn af Landskerfi
bókasafna h.f. sem var stofnað 2001. Nú eru nær 300
bókasöfn sem nota Gegni. Annað samstarfsverkefni íslenskra
bókasafna er Landsaðgangur að rafrænum tímaritum og
gagnasöfnum og leitarsíðan hvar.is en safnið hefur rekið
Landsaðganginn frá árinu 2003 samkvæmt þjónustusamningi
við menntamálaráðuneytið. Í Landsaðgangi er aðgangur
að um 14.000 erlendum tímaritum og 12 gagnasöfnum og
safnið heldur jafnframt utan um aðgang að 1200 rafrænum
tímaritum og 23 gagnasöfnum fyrir Háskóla Íslands.
Sífellt stærri hluti safnefnisins er nú aðgengilegur á vef,
auk þess sem upplýsingar um safnið og ýmiskonar þjónusta
færist þangað í auknum mæli. Stafræn endurgerð íslensks
safnefnis og miðlun þess á vef hófst í safninu fljótlega eftir
sameiningu. Fyrsta verkefnið var kortavefurinn sem var
opnaður 1997. Fyrir utan aðalvef safnsins, landsbokasafn.is,
er nú haldið úti tólf öðrum vefjum eða upplýsingaveitum.
Flest þessi verkefni hafa verið unnin sem samstarfsverkefni,
bæði á innlendum og erlendum vettvangi og má þar nefna
timarit.is og skemman.is. Unnið er að endurskoðun allra vefja
safnsins og að færa þá í samræmt útlit og viðmót. Jafnframt
eru í undirbúningi fleiri vefþjónustur og sú næsta í röðinni
verður handrit.is í samvinnu við Árnastofnanir í Reykjavík og
Kaupmannahöfn. Nú veitir safnið aðgang að meira en þrem
og hálfri milljón síðna af íslensku efni í stafrænni endurgerð í
Hundrað ára afmælis bókbandsstofu var minnst með sýningu 2008. Þar var sýnd forláta bókaryksuga sem keypt var á fyrstu árum safnsins í Safnahúsinu
við Hverfisgötu. Á myndinni eru Eiríkur Þorláksson, Einar Sigurðsson, Jökull Sævarsson, Bragi Þ. Ólafsson og Elín Pálmadóttir blaðamaður.
Starfsmannafélagið Hlöðver stóð fyrir grillveislu í grasagarði
Bókhlöðunnar í ágúst 2009. Á myndinni eru m.a. Sólveig Ögmundsdóttir,
Kristín Bragadóttir, Þórný Hlynsdóttir, Fanney Sigurgeirsdóttir og Ívar
Jónsson.