Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2010, Blaðsíða 45

Bókasafnið - 01.06.2010, Blaðsíða 45
45 bókasafnið 34. árg. 2010 Ritstjórar Bókasafnsins 1974-2010: • 1. árg. (1974) (tvö tölublöð komu út) og 2. árg. (1975), Páll Skúlason. • 3. árg. (1976), ritstjórn án ritstjóra Else Mia Einarsdóttir, Hilmar Jónsson, Hrafn Harðarson og Sigrún Klara Hannesdóttir. • 4.-5. árg. í einu blaði (1978), ritstjórn án ristjóra Else Mia Einarsdóttir, Helga Kr. Möller, Hilmar Jónsson og Sigurður Helgason. • 6. árg. (1982), Kristín H. Pétursdóttir. • 7. til 10. árg. (1983-1986), Viggó Gíslason. • 11.-12. árg. í einu blaði (1988), 13.-14. árg. (1989-1990), Guðrún Pálsdóttir. • 15.-16. árg. (1991-1992), Ásgerður Kjartansdóttir. • 17. árg. (1993), Helga Jónsdóttir. • 18. til 20. árg. (1994-1996), Regína Eiríksdóttir. • 21. til 24. árg. (1997-2000), Áslaug Agnarsdóttir. • 25. til 28. árg. (2001-2004), Dögg Hringsdóttir. • 29. til 31. árg. (2005-2007), Eva Sóley Sigurðardóttir. • 32. árg. (2008), Ásdís Paulsdóttir. • 33. til 34. árg. (2009-2010), Einar Ólafsson. Efni Efni blaðsins hefur verið á svipuðum nótum allt frá upphafi en þó hafa bæst við efnisflokkar í gegnum tíðina meðan aðrir hafa lagst af. Helstu efnisflokkar verða listaðir hér að neðan. Listinn byggist að hluta til á flokkunarkerfi Brynhildar Axelsdóttur bókasafns- og upplýsingafræðings (Brynhildur, 1995) sem tók saman efnislykil fyrir blaðið 1995. Efnistökin hafa verið með svipuðu móti síðan þó að einhverjar breytingar hafi orðið vegna framþróunar í faginu á síðastliðnum árum. Helstu efnisflokkar 1974-2010: • Bókasöfn: Húsnæðismál, endurbætur, safnkostur, afgreiðslutími. • Starfsþættir bókasafna: Flokkun, skráning, varðveisla, efnisorðagjöf, aðföng. • Bókasafnsþjónusta: Millisafnalán, upplýsingaþjónusta, notendaþjónusta. • Bókasafns- og upplýsingafræði: Nám, rannsóknir, umfjöllun um lokaverkefni. • Starfsfólk bóka- og skjalasafna: Viðtöl, minningarorð. • Skjalastjórn: Skjalasöfn, þekkingarstjórnun. • Útgáfa: Bókarýni, vefsíðurýni, höfundarréttur. • Annað: Ljóð, smásögur, sagnfræði. Fræðileg framsetning Í grófum dráttum er talað um þrenns konar markmið með fræðilegum skrifum, hagnýtt markmið, lýsandi markmið og fræðilegt markmið. Það má segja að efni Bókasafnsins sé að mestu leyti skrifað með lýsandi markmið í huga þó að það sé auðvitað misjafnt og fari til dæmis eftir því hvaða afstöðu höfundur efnis (greinar) hefur til viðfangsefnis síns (Höskuldur, 2006, bls. 2). Tímaritið hefur verið notað mikið við kennslu í bókasafns- og upplýsingafræði í gegnum tíðina. Hvort sem það er vegna skorts á góðum kennslubókum í greininni eða vegna annarra ástæðna þá hafa greinar úr blaðinu reynst nemum í faginu ómetanlegt námsefni og eru greinar blaðsins mikið nýttar við ritgerðarsmíðar í faginu. Því má segja að hluti af efni blaðsins hafi einnig hagnýtt markmið. Fræðilegt markmið kemur einnig við sögu í blaðinu en það hefur færst mjög í vöxt undanfarin ár að höfundar segi frá rannsóknum sínum í blaðinu, til dæmis lokaverkefnum í framhaldsnámi. Slíkar greinar eru sendar blaðinu til að upplýsa og fræða kollegana um viðfangsefnið og hafa bæði lýsandi og fræðilegt markmið. Þó er óhætt að segja að ekki er mikið um flóknar fræðilegar ritgerðir eða niðurstöður flókinna rannsókna. Það er heldur ekki eðli greinarinnar að fást við flóknar rannsóknir heldur frekar að sinna ýmiss konar upplýsingaþjónustu. Þeir sem skrifa fræðilegar greinar, það er að segja um efni á sviði bókasafns- og upplýsingafræði, taka oft mið af því hverjir geta haft gagn af rannsókninni og gagn og gaman af skrifunum. Þó er það alltaf svo að sá sem skrifar texta fyrir aðra veit ekki Forsíða fyrsta heftis Bókasafnsins. Fyrstu sex heftin voru í minna broti en nú er og fyrstu þrjú með staðlaða forsíðu eins og hér sést, en framan á fjórða heftinu var litmynd úr Bæjarbókasafni Keflavíkur. Annars var kápan svarthvít til ársins 1989.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.