Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2010, Blaðsíða 27

Bókasafnið - 01.06.2010, Blaðsíða 27
27 bókasafnið 34. árg. 2010 400 Tungumál - Valkostir og breytingar Hér að neðan má sjá frávik íslensku útgáfu kerfisins frá 2002 frá bandarísku útgáfu Dewey-kerfisins í málvísindum. Frávik frá bandarísku útgáfunni eru auðkennd með #. Íslenska Dewey-útgáfan, 2002 Óstytta bandaríska útgáfan, 2003 400.1 #Heimspeki & kenningar 401 #Málvísindi 410 #Íslenska 439.6 #Norska 439.69 #Færeyska 439.8 #Danska 400.1 Ekki notað 401 Heimspeki & kenningar 410 Málvísindi 439.82 Norska 439.699 Færeyska 439.81 Danska Á töflunni hér að ofan má sjá samanburð á íslensku útgáfu Dewey-kerfisins (Dewey, 2002) og nýjustu bandarísku óstyttu útgáfunni (Dewey, 2003). Vinstra megin er sú íslenska og hægra megin sú bandaríska. Eins og sjá má hafa nokkrar tilfærslur og breytingar verið gerðar til að auka vægi íslenskunnar með því að hafa hana framar í flokknum og gefa henni styttri tölu. Í bandarísku útgáfunni (Dewey, 2003) fær íslenska stofntöluna 439.69. Í íslensku útgáfunni hefur flokkstölum nokkurra tungumála grannþjóðanna einnig verið hnikað til og tölurnar styttar. Í styttu bandarísku útgáfunni sem þýtt er úr (Dewey, 1997) eru danska og norska til dæmis hafðar saman í flokknum 439.8 en hér á landi kjósa bókasöfn að aðgreina þessi tungumál. 800 Bókmenntir - Valkostir og breytingar Það sama er uppi á teningnum í flokkun bókmennta. Þar hefur einnig verið notuð heimild til að gefa íslensku efni meira vægi með styttri flokkstölu. Hér að neðan má sjá þær breytingar sem gerðar hafa verið. Frávik frá bandarísku útgáfunni auðkennd sérstaklega (með #). Íslenska útgáfan frá 2002 Óstytta útgáfan frá 2003 810 #Íslenskar bókmenntir 819 #Fornbókmenntir [íslenskar] 820 #Enskar, amerískar bókmenntir 839.6 #Norskar bókmenntir 836.69 #Færeyskar bókmenntir 839.79 #Finnlandssænskar bókmenntir 839.8 #Danskar bókmenntir 810 Amerískar bókmenntir á ensku (819) Amerískar bókm. á ensku, s.s. kanadískar 820 Enskar og fornenskar bókmenntir 839.82 Norskar bókmenntir 839.699 Færeyskar bókmenntir Engin sérstök flokkstala 839.81 Danskar bókmenntir Útvíkkanir í íslenskum útgáfum Dewey-kerfisins Breytingar og aðlaganir miða oftast að því að stytta flokkstölur svo þær verði meðfærilegri í samsetningum. Þetta kemur sérstaklega sterkt fram í Hjálpartöflu 2, Landstölum (Table 2) í kerfinu, sem tekur til landsvæða og svæðisbundinna talna, en tölum úr þeirri töflu er skeytt aftan við tölur úr aðaltöflunum til að fá nákvæmari flokkun. Hjálpartafla 2 – Landstölur: Ísland Landstölur eru notaðar með tölum úr aðaltöflum Dewey- kerfisins (skeytt aftan á tölur úr aðaltöflunum). Í hjálpartöfl- unum sjálfum og í efnislyklinum eru tölur úr hjálpartöflunum auðkenndar með þankastriki (–) framan við töluna til að leggja áherslu á að slíkar tölur eru aldrei notaðar einar sér. Í banda- rísku útgáfu Dewey-kerfisins er stofntala landstölu Íslands –4912 en í íslensku útgáfunni (Dewey, 2002) er stofntalan stytt í –491 til að stytta þær flokkstölur úr aðaltöflunum sem landstölu er skeytt aftan á. Dæmi um útvíkkun landstölu Íslands í þýðingunni frá 2002 (Dewey, 2002) –491 Landstala Íslands úr (hjálpar)töflu 2 –491 3 Vesturland (landshluti) –491 31 Mýra- og Borgarfjarðarsýsla (sýsla) –491 311 Akranes (bær) Landstölutaflan er þannig aukin verulega í íslensku útgáfunni frá 2002. Eins og áður getur hefur stofntalan jafnframt verið stytt til að samsetningar verði meðfærilegri. Engir undirflokkar eru í bandarísku útgáfunni sem þýtt er úr en 53 í þeirri íslensku. Dæmi um notkun landstölu Íslands með aðaltöflum Land/ svæði Lands- tala Kirkju- saga Jarð- fræði Landa- fræði Mannkyns- saga (270) (550) (910) (900) Evrópa –4 274 554 914 940 Norðurlönd –48 274.8 554.8 914.8 948 Ísland –491 274.91 554.91 914.91 949.1 Útvíkkun Íslandssögu Íslandssaga er einnig víkkuð verulega út í íslensku útgáfu kerfisins, sérstaklega í útgáfunni frá 2002, og undirflokkum bætt inn í. Í nýjustu bandarísku óstyttu útgáfunni (Dewey, 2003) eru sex undirflokkar í sögu Íslands og í þeirri styttu (Dewey, 2004) er einn. Í íslensku útgáfunni frá 2002 (Dewey, 2002) eru hins vegar 11 undirflokkar sem byggjast á hefðbundinni skiptingu Íslandssögunnar í tímabil. Notkun Dewey-kerfisins hér á landi Dewey-kerfið er notað á flestum bókasöfnum hér á landi en mjög mismunandi er hvernig kerfinu er beitt og hvaða útgáfa er notuð. Grunnskólasöfn nota oftast íslenska útgáfu kerfisins – ekki í öllum tilvikum þá nýjustu. Framhaldsskólasöfn nota íslenska útgáfu fyrir íslenskt efni (svo sem íslenska tungu, íslenskar bókmenntir, landafræði og sögu) en stundum jafnframt óstytta útgáfu fyrir annað efni. Óstytta útgáfan er þá notuð fyrir allan þorra safnefnis en íslenska útgáfan fyrir séríslenskt efni. Almenningsbókasöfn nota flest íslenska útgáfu – en Borgarbókasafn Reykjavíkur hefur þar sérstöðu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.