Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2010, Blaðsíða 11

Bókasafnið - 01.06.2010, Blaðsíða 11
bókasafnið 34. árg. 2010 Í nýja safninu hefur átthagadeild verið gefið meira rými en áður, en deildin hefur það að markmiði að varðveita útgefið efni sem varðar Akranes og Vesturland. Gögn í átthagadeild eru einungis lánuð til afnota á bókasafninu. Haraldssafn er deild í Bókasafni Akraness. Safnið er einkabókasafn dr. phil. Haraldar Sigurðssonar (1908-1995) og Sigrúnar Ástrósar Sigurðardóttur og telur um 4000 bindi. Akraneskaupstaður keypti safnið árið 1994. Þess má geta að kortabókasafn Haraldar er í Þjóðarbókhlöðu. Upphaflega stóð til að í nýja safninu væru glerskápar í útlánasal er sýndu bækur úr Haraldssafni, en vegna niðurskurðar varð að fresta þeim kaupum og er allt safnið í geymslu. Bækurnar eru að nær allar skráðar í Gegni og eingöngu lánaðar á lesstofu. Í Haraldssafni er mikið safn íslenskra þjóðsagna, nær öll tímarit í frumútgáfu frá því að útgáfa þeirra hófst og fram yfir miðja 19. öld og þau helstu eftir þann tíma. Einnig er þar mjög merkt safn fornrita, til dæmis gamlar útgáfur af Eddunum og flestar útgáfur Heimskringlu og Sturlungu. Haraldur Sigurðsson safnaði öllum útgáfum ritverka einstakra rithöfunda. Merkust eru ritverk Halldórs Laxness. Bókasafnið Við val á nýjum bókasafnsbúnaði var fengin ráðgjöf frá Þjónustumiðstöð bókasafna, sem einnig gerði tillögu að uppsetningu búnaðar. Valinn var hillubúnaður í nýrri Softline línu, sýningarbúnaður, bókavagnar og bókabíll í barnadeildina. Eldri hillubúnaður (Softline) var fluttur með og nýttur eins og hægt var. Barnadeildin er í sérrými, sem að hluta til er stúkað af frá útlánasal með glerhurðum og glervegg. Hér eru bækur fyrir yngstu börnin og hægt að skapa gott næði til að taka á móti leikskólahópum. Námsverið Svöfusalur er einnig í sérrými. Þar er fjarfundabúnaður og möguleiki fyrir nemendur að stunda fjarnám frá Háskólanum á Akureyri eða sitja námskeið sem Símenntunarmiðstöð Vesturlands býður upp á í gegnum slíkan búnað. Einnig er námsverið nýtt af háskólanemum og fræðimönnum til náms og lestrar þegar salurinn er ekki í notkun vegna fjarkennslu eða funda. Nemendur í háskólanámi geta fengið aðgangskort að salnum til að nýta sér aðstöðuna utan hefðbundins afgreiðslutíma. 11 Mynd frá útlánasal. Við afgreiðsluborðið. Ljósmynd: Halldóra Jónsdóttir. Starfsfólk Bókasafns Akraness. F. v.: Hafdís Daníelsdóttir bókavörður, Sigríður Beinteinsdóttir bókavörður, Helgi Steindal bókavörður og nemi í bókasafns- og upplýsingafræðum, Auður Sigurðardóttir bókavörður, Nanna Þóra Áskelsdóttir deildarstjóri og Halldóra Jónsdóttir bæjarbókavörður. Á myndina vantar Gerði J. Jóhannsdóttur skrifstofustjóra í Héraðsskjala- og Ljósmyndasafni. Ljósmynd: Ágústa Friðriksdóttir. Úr skjala- og bókageymslunum. Ljósmynd: Halldóra Jónsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.