Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2010, Blaðsíða 21

Bókasafnið - 01.06.2010, Blaðsíða 21
21 bókasafnið 34. árg. 2010 um bókmenntir og hjálpa lesendum þannig að hjálpa hver öðrum. Auðvelt sé orðið að bæta efni frá viðskiptavinum inn í rafrænu bókaskrána eða bjóða upp á tengla úr henni í frekari upplýsingar. Eitt af söfnunum sem eru í farabroddi í umbreytingunni sé Ann Arbor District Library í Michigan í Bandaríkjunum (vefslóð safnsins: www.aadl.org). Donahue (2008) spáir því að merkingar (e: social tagging, folksonomy o.fl.) og tillögukerfi (e: recommendation/ recommender system) séu þeir eiginleikar annarrar kynslóðar Internetsins sem hvað mest áhrif munu hafa á ráðgjafaþjónustu við lesendur í nánustu framtíð og leggur áherslu á að skoða þurfi kosti þeirra og galla. Sjá má fyrir sér að sú gagnvirkni, þekking á viðskiptavinum (e: customer knowledge) og félagsnet sem vefsíður á borð við LibraryThing og Shelfari byggja á skapi bókasöfnum tækifæri til að bæta gæði og auka fjölbreytni ráðgjafaþjónustu við lesendur. Hægt er að safna saman á einn vettvang upplýsingum frá lesendum, hjálpartækjum og tenglum sem hæfa viðskiptavinum á þjónustusvæði safnsins. Með því geta þau komið á tengslum milli bókaunnenda á því svæði sem safnið þjónar og stutt við lestrarsamfélög. Almenn félagsnet, svo sem Facebook, verða sífellt vinsælli meðal almennings. Evans (2007) telur að almenningsbóka- söfnin verði að taka þátt í þeirri þróun. Hann bendir þó á að ekki sé nóg fyrir söfnin að skrá sig á vefsíðurnar heldur þurfi þau að skapa sér sess þar, vera frumleg og bjóða upp á gagn- legt efni. Þau eigi að nýta félagsnetin til að koma upplýsingum um safnkost, þjónustu og viðburði til fólks, vera með tengla í bókaskrána, gagnagrunnasíðuna og annað rafrænt efni og síðast en ekki síst svara fyrirspurnum. En áhugi fólks á að deila hugsunum sínum um bækur kemur meðal annars fram í því að félagsnetin skuli bjóða upp á viðbætur fyrir bókaunnendur svo sem Virtual bookshelf á Facebook. Lokaorð Í hugmyndum og leiðbeiningarreglum sérfræðinga um vel heppnaða ráðgjafaþjónustu við fullorðna lesendur skáldsagna kemur fram sú fagkunnátta, þekking og þjálfun sem sá er sinnir þjónustunni þarf að búa yfir. Vinnan krefst auk þess innsæis, tíma, samskiptahæfni og ekki síst brennandi áhuga á skáldsögum og lesendum þeirra. Einnig kemur skýrt fram hversu ólíkt ráðgjafaþjónustuviðtalið er öðrum upplýsingaviðtölum. Það fylgir ekki ákveðnu mynstri og bókasafns- og upplýsingafræðingurinn getur hvorki flett upp hvað „góð bók“ er né fundið „rétta svarið“ við fyrirspurn lesandans. Í raun er fremur um samtal að ræða þar sem ráðgjafinn og viðskiptavinurinn reyna saman að komast að því hvernig bók gæti hentað þá stundina. Niðurstöður rannsókna (May o.fl. 2000) benda til þess að fagkunnáttu og þjálfun bókasafns- og upplýsingafræðinganna sé ábótavant og að leiðbeiningarreglur sérfræðinga nýtist ekki sem skyldi. Vöntun hefur verið á yfirfærslu þekkingar í framkvæmd en hagnýtar tillögur að stöðlun, skipulagningu, þjálfun og rafrænum ráðgjafaþjónustuviðtölum hafa mælst vel fyrir þar sem þær hafa verið nýttar (Smith, 2000; Hollands, 2006). Niðurstöður rannsókna sýna að þrátt fyrir úrval rafrænna hjálpartækja virðast þau prentuðu enn halda velli og að ekkert eitt þeirra er hið eina sanna. Öll átta hjálpartækin sem RUSA nefndin taldi nauðsynleg í ráðgjafaþjónustu eru prentuð og aðeins eitt þeirra einnig til á tölvutæku formi (CODES, 2004). Gagnagrunnar og vefsíður eru í örri þróun, sem á ekki síst rætur að rekja til annarrar kynslóðar Internetsins. Áhrif hennar á ráðgjafaþjónustu við lesendur virðast enn lítið hafa verið rannsökuð þó að bókasöfnin séu farin að nota hana. Hún veitir möguleika á að víkka hlutverk ráðgjafaþjónustunnar út og er vettvangur fyrir samræður og upplýsingaflæði á milli fullorðinna unnenda skáldsagna. Á þeim vettvangi gæti bókasafns- og upplýsingafræðingurinn verið nokkurs konar samskiptastjóri, milliliður og skipuleggjandi upplýsinga. Það að markaður skuli vera fyrir fjölda vefsíðna og félagsnet tileinkuð bókum og bókaunnendum er ábending til almenningsbókasafna um að lesendur vilji ólmir tala um bækur og „bera saman bækur sínar“. Þjónusta hvers safns mótast af umlykjandi menningu og samfélagi og þarf stöðugt að laga að sig þörfum viðskiptavinahópsins. Ég vona að grein þessi og ritgerðin sem hún byggir á veiti bakgrunnsupplýsingar og verði fagfólki og nemum hvatning til rannsókna á efni tengdu þessu sviði í því augnamiði að bjóða upp á skipulagða úrvalsþjónustu sem miðast við þarfir viðskiptavina íslenskra safna Abstract „Can you help me find a good book? “: Readers’ advisory services to adult fiction readers Readers’ advisory services are widely known in public libraries and have been a popular topic in the trade journals in recent years. Studies show that, despite the instructions of specialists libraries, service staff still has difficulty with the application of these services and the use of its tools. This has led to proposals for the standardization and organization of the service. Selection, diversity and quality of electronic aids keep advancing but research hasn’t shown any one to be the ideal. Commercial webpages have often proved a better alternative than specialized databases of the library and information profession. The internet and its technical innovations give the public library the chance to provide fiction readers with a better and more comprehensive service. However there is an urgent need for research for optimal utilization of the technology. The article is based on the author’s BS thesis in library and information sciences from the University of Iceland.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.