Bókasafnið

Ataaseq assigiiaat ilaat

Bókasafnið - 01.06.2010, Qupperneq 42

Bókasafnið - 01.06.2010, Qupperneq 42
42 bókasafnið 34. árg. 2010 Tafl a 1 – Greining á nýskráningum fyrir árin 2007, 2008 og 2009, námsritgerðir og greinifærslur eru undanskildar Ár Nýtt efni Eldra efni 2007 14.307 24.270 2008 14.494 25.250 2009 11.556 19.479 Samkvæmt mynd 7 og töfl u 1 er ljóst að u.þ.b. 60% af árlegum viðbótum í Gegni er efni sem er gefi ð út meira en þremur árum áður en það er skráð. Þetta vísar fyrst og fremst til þess að afturvirk skráning er enn í gangi hjá aðildarsöfnum Gegnis þó vissulega sé útgáfuár nýrra aðfanga mismunandi. Efnahagskreppan hefur haft umtalsverð áhrif á fj ölda skráninga í Gegni, óháð því hvort litið er til heildarfj ölda skráninga, skráningar nýs eða eldra efnis. Samdráttur í skráningu á milli áranna 2008 og 2009 er í heild 19%, skráning á nýlega útgefnu efni samkvæmt skilgreiningu (mynd 7) hefur dregist saman um 20% og skráning á eldra efni um 23%. Það kemur á óvart að skráning á eldra efni hefur dregist enn meira saman en skráning á nýlegu efni. Í megindráttum eru áhrif efnahagskreppunnar mikill samdráttur í skráningu óháð því hvort horft er á nýtt eða eldra efni. 0   5,000   10,000   15,000   20,000   25,000   30,000   2007   2008   2009   Árleg  viðbót   greind  e8ir  aldri  gagna   Ný<  efni   Eldra  efni   Mynd 7: Árleg viðbót, greind eftir aldri gagna. Þessi mynd sýnir útgáfualdur nýskráðra gagna í Gegni árin 2007, 2008 og 2009. Gögnunum er skipt í nýtt og eldra efni. Undir nýtt efni falla hér gögn sem komu út innan næstliðinna þriggja ára. Eldra efni er gefi ð út meira en þremur árum áður en skráð er. Hér er verið að skoða útgáfuefni, það er ekki verið að greina hluta af útgáfu, eins og tímaritsgreinar, bókarkafl a, lög eða stök tónlistarverk (greinifærslur). Námsritgerðir háskólanna eru einnig undanskildar. Á myndinni sést að nýskráning útgefi ns efnis í Gegni var svipuð árin 2007 og 2008 en fj öldi skráninga dregst mikið saman árið 2009. Niðurlag Í þessari samantekt hefur verið reynt að varpa ljósi á nokkrar tölur úr bókfræðigrunni Gegnis. Bókfræðigrunnurinn var bæði greindur sem heild og einnig voru árlegar viðbætur greindar. Eftirfarandi tölur úr bókfræðigrunninum voru settar fram: bókfræðifærslur í Gegni eftir skráningartíma, greining eftir útgáfuformi í árslok 2009, greining í barna- og fullorðinsefni og eftir tungumálum fyrir bókfræðigrunninn sem heild og einnig viðbótina fyrir 2009. Ennfremur voru árlegar viðbætur þriggja ára greindar eftir aldri gagna. Samanburður á upplýsingum úr bókfræðigrunni Gegnis getur verið varasamur en kóðun bókfræðifærslna hefur bæði batnað og breyst seinustu árin með samræmdum reglum og fræðslu. Þegar rýnt er í gögnin má sjá að ákveðnir efnisfl okkar geta drukknað í heildinni. Þetta á t.d. við um efni ætlað börnum sem er lítt áberandi í Gegni eða um 40.000 titlar og einungis um 4% af heildinni. Af þessu er greinilegt að nauðsynlegt er að leita leiða til þess að auðvelda börnum að notfæra sér Gegni. Aðföng bókasafna á ensku hafa aukist mjög síðustu árin á kostnað annarra erlendra tungumála. Norðurlandamál láta stöðugt undan síga og voru gögn á þeim tungumálum árið 2009 8% nýskráninga í kerfi ð. Þegar á heildina er litið er tæplega þriðjungur efnis í Gegni á íslensku. Árlegar viðbætur íslensks efnis eru hlutfallslega minni en það, jafnvel þótt íslenskan haldi betur hlut sínum í nýskráningum en gögn á erlendum tungumálum. Árlegar viðbætur í bókfræðigrunn Gegnis tengjast efnahagsástandinu. Umtalsverður samdráttur varð á árlegri viðbót við bókfræðigrunninn í efnahagskreppunni árið 2009. Samdrátturinn á jafnt við um skráningu eldra og nýrra efnis. Heimildir um tölulegar upplýsingar: Hildur Gunnlaugsdóttir, Sigrún Hauksdóttir (2009). Tölur úr bókfræðigrunni Gegnis : greinargerð um söfnun og úrvinnslu tölulegra upplýsinga. Skýrsla, birt á vef Landskerfi s bókasafna http://www.landskerfi .is undir yfi rskriftinni Tölfræði Gegnis Hildur Gunnlaugsdóttir, Sigrún Hauksdóttir (2010). Tölur úr bókfræðigrunni Gegnis : greinargerð um söfnun og úrvinnslu tölulegra upplýsinga til ársloka 2009. Skýrsla, birt á vef Landskerfi s bókasafna http://www.landskerfi .is undir yfi rskriftinni Tölfræði Gegnis. Abstract The heart of Gegnir Gegnir, www.gegnir.is, is the union catalog of Icelandic libraries. The purpose of this article is to refl ect in numbers on the union catalog. The statistical analysis is a cooperative project between the Consortium of Icelandic Libraries, the National and University Library of Iceland and the Reykjavík City Library. The goal is to gather information on the bibliographic database in order to determine factors like the number of active titles, how many titles are for children, which languages are presented etc. The union catalog is the heart of the unifi ed Icelandic library system. The setup is a single bibliographic database which all participating libraries either catalog into or connect holdings to the existing bibliographic records. The catalog is a shared responsibility of the libraries. The adminstrative body is the Cataloging Council and its’ purpose is to control the quality of the database by deciding on rules and regulations. For comparison the statistical analysis is based on the whole database and yearly additions. The following fi gures were
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bókasafnið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.