Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2010, Síða 44

Bókasafnið - 01.06.2010, Síða 44
44 Tímaritið Bókasafnið Eva Sóley Sigurðardóttir Fyrsta tölublað Bókasafnsins kom út árið 1974 og var það gefið út af Bókavarðafélagi Íslands, Félagi bókasafnsfræðinga og Bókafulltrúa ríkisins. Nú er blaðið gefið út af Upplýsingu – Félagi bókasafns- og upplýsingafræða og er áskrift innifalin í félagsgjaldi. Í þessari grein verður fjallað um tímaritið, verklagsreglur, ritstjórn, útgáfu og fleira. Útgáfa Útgáfan gekk hálf brösulega í fyrstu og blaðið var frekar smátt í sniðum til að byrja með. Eftir að Félag bókasafnsfræðinga var stofnað árið 1976 gekk útgáfan vel um nokkurt skeið en aftur seig síðan á ógæfuhliðina og ekkert blað kom á út árunum 1979-1981. Fyrstu árin var blaðið eingöngu unnið í prentsmiðju og útgáfukostnaðurinn var að sliga félögin sem stóðu að því. Árið 1983 var skipuð sex manna ritnefnd, þrír frá Bókavarðafélagi Íslands, tveir frá Félagi íslenskra bókasafns- fræðinga og bókafulltrúi ríkisins. Ritnefndin kaus ritstjóra og gjaldkera úr sínum hópi. Sem fyrr voru birtar í ritinu fræðilegar greinar um fjölmargt sem tengdist bóksöfnum, bókasafnsfræði og bókavörðum. Frásagnir voru af ráðstefnum og námskeiðum og fréttir af landsþingum Bókavarðafélagsins (Friðrik, 2004). Blaðið hefur lengst af komið út einu sinni á ári en lengi vel gekk mjög illa að fjármagna útgáfu blaðsins. Með útgáfu 11. og 12. árgangs tókst loksins að fjármagna útgáfuna með auglýsingatekjum og hafa þær staðið undir útgáfukostnaði eftir það. Tímaritið Bókasafnið hefur verið aðgengilegt á vefnum frá og með 22. ágúst 1998 á slóðinni www.bokasafnid.is. Verklagsreglur um útgáfu Bókasafnsins Í 29. árgangi Bókasafnsins árið 2005 (bls. 52-53) voru birtar verklagsreglur um útgáfu Bókasafnsins sem þáverandi ritstjóri, Eva Sóley Sigurðardóttir, og þáverandi formaður Upplýsingar, Þórdís Þórarinsdóttir, höfðu tekið saman og samþykktar voru á fundi stjórnar Upplýsingar og ritnefndar Bókasafnsins 3. mars 2005. Þar er Bókasafnið skilgreint sem fagtímarit bókasafns- fræðinga, bókavarða og áhugamanna um bókasafna- og upplýsingamál.  Gert er ráð fyrir að blaðið komi út kringum dag bókarinnar ár hvert (23. apríl) og sé sent öllum skuldlausum félögum Upplýsingar. Jafnframt skuli ritnefnd leitast við að auka útbreiðslu blaðsins. Þá er gert ráð fyrir að á vefsíðu blaðsins sé birtur útdráttur eða upphaf greina. Ritnefndin skal samkvæmt þessum verklagsreglum starfa sjálfstætt og bera faglega og fjárhagslega ábyrgð gagnvart Upplýsingu – Félagi bókasafns- og upplýsingafræða. Ritnefnd Bókasafnsins er skipuð fimm fulltrúum, sem kosnir eru á aðalfundi Upplýsingar í maí ár hvert. Skipunartími hvers ritnefndarfulltrúa er lágmark tvö ár en ritstjóri skal kosinn sérstaklega til þriggja ára með möguleika á framlengingu um eitt ár í senn. Nánar er kveðið á um starf ritnefndar í verklagsreglunum sem eru nú í endurskoðun eftir nokkurra ára reynslutíma. Ritstjórn Ritnefnd Bókasafnsins hefur frá byrjun verið skipuð nokkrum fulltrúum og yfirleitt hafa 3-5 setið í ritnefnd blaðsins. Fyrsti ritstjóri blaðsins var Páll Skúlason bókasafnsfræðingur og lögfræðingur en hann ritstýrði blaðinu fyrstu tvö árin. Næstu tvö blöð komu út 1976 og 1978, 4. og 5. árgangur í einu blaði, en enginn ritstjóri var tilnefndur þessi ár. Eftir það lá útgáfan niðri þar til Kristín H. Pétursdóttir tók við ritstjórninni árið 1982. Síðan hefur blaðið komið út árlega að árinu 1987 undanskildu.

x

Bókasafnið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.