Bókasafnið - 01.06.2010, Page 47
47
bókasafnið 34. árg. 2010
Heimildir
Booth, Wayne C. 2003. The craft of research (2. útg.). Chicago: University
of Chicago Press
Brynhildur Axelsdóttir. 1995. Bókasafnið 1974-1994 Efnislykill.
Námsritgerð í bókasafns- og upplýsingafræði. Háskóli Íslands.
Einar Ólafsson [tölvupóstur 23. mars 2010].
Friðrik G. Olgeirsson. 2004. Á leið til Upplýsingar: Saga Bókavarðafélags
Íslands, aðildarfélaga þess og Félags bókasafnsfræðinga. Reykjavík,
Upplýsing – félag bókasafns- og upplýsingafræða.
Guðrún Pálsdóttir [tölvupóstur 11. desember 2006].
Guðrún Pálsdóttir og Sigrún Klara Hannesdóttir. 1997. Sál aldanna: safn
greina um bókasöfn og skyld efni. Reykjavík, Félagsvísindastofnun:
Háskólaútgáfan.
Guðvarður Már Gunnlaugsson.1998. Leiðbeiningar um frágang greina.
Gripla X:269–278.
Höskuldur Þráinsson. 2006. Skrifaðu bæði skýrt og rétt (um málfræði).
Handrit, Háskóla Íslands.
Leiðbeiningar til höfunda efnis í Sögu. Finnanlegar á netinu á slóðinni:
http://www.sogufelag.is/timarit/timarit_til_hofunda.htm
Tímaritið Bókasafnið 1.-33. árgangur (1974-2009).
Arngrímur Vídalín
Gíraffinn er á stultum
fyrir Hjálmar Skorrason Linnet
Kaldhæðni ævi minnar hlaut að vera
að það yrði aftakaveður
á aftökudaginn
jæa
betra er að hafa átt drauma og misst þá
en vera andvaka fæddur
ég held ég sé bara búinn að drepa svo mikinn tíma
að ég sé dauður sjálfur
býst við að aftökusveitin
sé ósammála mér um það einsog annað
þeir eru að drekka bjór og reykja þarna inni
rúlla ljóðunum mínum í sígarettur
fyrir lýrískt eftirbragð
kannski þeir bjóði mér eina að skilnaði
bara orðinn svo þreyttur á
að hafa Sjón bundinn fyrir augunum
niðursoðna drauma á útsölu
og gíraffa á stultum
og helvítis rigningin maður