Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2010, Blaðsíða 62

Bókasafnið - 01.06.2010, Blaðsíða 62
62 bókasafnið 34. árg. 2010 Höfundar efnis Anna Torfadóttir er BA í bókasafnsfræði og bókmenntafræði frá H.Í. 1976, lauk masterspróf í stjórnun frá University of Wales 1995, borgarbókavörður í Reykjavík frá 1998. Arngrímur Vídalín er nemi í íslenskum fræðum og bókavörður við Borgarbókasafn Reykjavíkur. Hann hefur gefið út þrjár ljóðabækur, síðast Úr skilvindu drauma 2009. Á vordögum 2010 kemur út í hans umsjá bókin Meistarar og lærisveinar eftir óútgefnu handriti Þórbergs Þórðarsonar. Áslaug Agnarsdóttir er MLIS í bókasafns- og upplýsingafræði og starfar sem sviðsstjóri þjónustusviðs, Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni. Berglind Gunnarsdóttir hefur gefið út ljóðabækur og skáldsögur auk ævisögu Sveinbjarnar Beinteinssonar. Ljóðaþýðingarnar Bragð af eilífð komu út 1995 en nýjasta bók hennar er ljóðabókin Ljóðleg sem kom út árið 2008. Berglind er starfsmaður Landbókasafns-Háskólabókasafns. Birta Björnsdóttir er sagnfræðingur. César Vallejo var ljóðskáld frá Perú, fæddur 1892, dáinn 1938. Edda Bryndís Ármannsdóttir útskrifaðist úr BA-námi í bókasafns- og upplýsingafræði vorið 2009. Að því loknu hóf hún störf við minjaskráningarverkefni hjá Landsvirkjun. Einar G. Pétursson er cand.mag í íslenskum fræðum frá H.Í. 1970, tók einnig 2 stig í bókasafnsfræðum, lauk doktorsprófi frá sama skóla 1998. Starfsmaður við Stofnun Árna Magnússonar frá 1972, ennfremur deildarstjóri þjóðdeildar Landsbókasafns Íslands 1984 til 1988. Eva Sóley Sigurðardóttir er BA í bókasafns-og upplýsingafræði og MA í útgáfufræðum. Hún er forstöðumaður skjalastöðvar Seðlabanka Íslands. Eydís Hörn Hermannsdóttir er grunnskólakennari. Guðrún Geirsdóttir er háskólakennari. Guðrún Jónsdóttir er BA í íslensku og forstöðumaður Safnahúss Borgarfjarðar. Halldóra Jónsdóttir er BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá H.Í. 1980 og lauk diplómapróf í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands 2009. Hún er bæjarbókavörður Bókasafns Akraness. Hildur Gunnlaugsdóttir er BA í bókasafns- og upplýsingafræði og starfar sem gæðastjóri skráningar á Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni. Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir er bókasafns- og upplýsingafræðingur MA, stjórnsýslufræðingur MPA og er landsbókavörður frá 2007. Kristín Bragadóttir er BA í bókasafnsfræði, bókmenntasögu og sagnfræði frá HÍ 1977, cand.mag. í íslenskum bókmenntum 1992. Deildarstjóri á Háskólabókasafni frá 1993, síðar forstöðumaður þjóðdeildar Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns, nú sviðsstjóri varðveislusviðs. Kristín R. Vilhjálmsdóttir lauk kennaraprófi í Silkeborg í Danmörku 1998, starfaði þar sem kennari en hefur verið verkefnastjóri fjölmenningar við Borgarbókasafn Reykjavíkur frá byrjun árs 2008. Dr. Sigrún Klara Hannesdóttir er fyrrverandi landsbókavörður og prófessor í bókasafns- og upplýsingafræði við Háskóla Íslands. Sigrún Hauksdóttir er MLS í bókasafns- og upplýsingafræði og starfar sem þróunarstjóri hjá Landskerfi bókasafna. Sigurður Jón Ólafsson er með BA-prófî íslensku og bókasafns- og upplýsingafræði. Hann starfar við Borgarbókasafn Reykjavíkur. Sævar Ingi Jónsson er BA í íslensku og héraðsbókavörður í Safnahúsi Borgarfjarðar. Úlfhildur Dagsdóttir er bókmenntafræðingur og verkefnastýra á Borgarbókasafni Reykjavíkur. Þorsteinn Hallgrímsson er byggingarverkfræðingur (Msc) frá Danmarks Tekniske Höjskole árið 1968. Hann vann síðan hjá IBM á Íslandi og víðar við forritun, kerfisfræði, innleiðingu tölvukerfa o.fl. en hóf störf hjá Háskólabókasafni árið 1993, aðstoðarlandsbókavörður frá 1998. Hann hefur m.a haft yfirumsjón með upplýsingatækniverkefnum safnsins, átt samskipti við erlenda aðila um landssamninga og samstarfsverkefni og setið í stjórn IIPC (International Internet Preservation Consortion). Þórdís T. Þórarinsdóttir er bókasafns- og upplýsingafræðingur, MLS. Forstöðumaður bókasafns og upplýsingamiðstöðvar Menntaskólans við Sund. Í Efnisorðaráði Gegnis frá stofnun þess 2004. Fulltrúi í fastanefnd IFLA um flokkun og lyklun (IFLA Classification and Indexing Section) 2003-2011.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.