Morgunblaðið - 10.04.2015, Page 8

Morgunblaðið - 10.04.2015, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 2015 Glæsileg armbandsúr Bankastræti 6 – sími 551 8588 – gullbudin.is 29.200 32.500 36.990 27.300 33.800 24.700 39.900 31.500 Hörður Ægisson, viðskiptarit-stjóri Dagblaðsins, skrifar um nýpantaða skýrslu um afnám hafta:    Ljóst er að áætlunstjórnvalda um losun hafta grund- vallast á þeirri stað- reynd að peninga- stefna landsins mun í fyrirsjáanlegri framtíð byggjast á því að krónan verði gjaldmiðill Íslands.    Sú stefna er skynsamleg.    Enginn annar raunhæfur val-kostur er í boði.    Ólíkt því sem mátti skilja af ný-legri greiningu KPMG, sem var unnin að beiðni Samtaka atvinnulífs- ins, Félags atvinnurekenda, ASÍ og Viðskiptaráðs, þá er losun hafta og möguleg innganga í evrópska mynt- bandalagið tveir aðskildir hlutir.    Ísland getur aldrei orðið hluti afERM II-samstarfinu, formlegu aðlögunarferli að upptöku evru, fyrr en höftin hafa verið afnumin.    Þar er engin aðstoð í boði semnokkru máli skiptir nema það sé pólitískur vilji fyrir því að „leysa“ greiðslujafnaðarvanda þjóðarbúsins með því að taka risalán í evrum til að hleypa út erlendum krónueigend- um.    Því verður ekki trúað að það sé af-staða forsvarsmanna atvinnu- lífsins og verkalýðshreyfing- arinnar.“    Nýlega var upplýst að helstu for-sendur skýrslurnar voru gefn- ar upp við pöntun hennar! Hörður Ægisson Verður ekki trúað? STAKSTEINAR Veður víða um heim 9.4., kl. 18.00 Reykjavík 0 skýjað Bolungarvík 1 léttskýjað Akureyri 3 skýjað Nuuk -7 skýjað Þórshöfn 8 alskýjað Ósló 12 heiðskírt Kaupmannahöfn 12 skýjað Stokkhólmur 12 heiðskírt Helsinki 12 heiðskírt Lúxemborg 17 heiðskírt Brussel 17 heiðskírt Dublin 17 heiðskírt Glasgow 15 upplýsingar bárust ekki London 16 heiðskírt París 21 heiðskírt Amsterdam 16 léttskýjað Hamborg 15 heiðskírt Berlín 16 heiðskírt Vín 15 léttskýjað Moskva 7 léttskýjað Algarve 17 léttskýjað Madríd 7 skýjað Barcelona 15 heiðskírt Mallorca 18 heiðskírt Róm 15 heiðskírt Aþena 12 léttskýjað Winnipeg 7 léttskýjað Montreal 5 alskýjað New York 3 alskýjað Chicago 19 alskýjað Orlando 27 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 10. apríl Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 6:14 20:45 ÍSAFJÖRÐUR 6:12 20:57 SIGLUFJÖRÐUR 5:55 20:40 DJÚPIVOGUR 5:42 20:16 Lögð var fram sátt í skaðabóta- máli Tony Omos gegn Gísla Frey Valdórssyni, fyrr- verandi aðstoð- armanni Hönnu Birnu Kristjáns- dóttur innanrík- isráðherra, í Hér- aðsdómi Reykjavíkur í gær. Gísli Freyr játaði á síðasta ári að hafa lekið persónuupplýsingum um Omos sem birtust í fjölmiðlum en Omos krafði Gísla Frey um fimm milljónir króna í bætur. Ákveðið var að leita sátta í málinu og hafa mennirnir tveir nú komist að samkomulagi um fjárhæð sem Gísli Freyr greiðir Omos. Ekki fást upplýsingar um upphæð skaðabótanna. Ólafur Garðarsson, lögmaður Gísla Freys, sagði að- spurður í samtali við mbl.is í gær að Omos hefði beðið um að þessum upp- lýsingum yrði haldið leyndum. Gísli Freyr gerði sátt í sambæri- legu máli sem Evelyn Glory Joseph höfðaði gegn honum vegna leka á trúnaðarupplýsingum. Omos og Gísli Freyr ná sáttum  Krafði Gísla um fimm milljónir kr. Gísli Freyr Valdórsson Talsverðar skemmdir urðu á nefi flug- vélar Icelandair, Herðubreið, þegar eldingu laust niður í vélina á þriðjudag eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær átti atvikið að sögn farþega um borð í vélinni sér stað stuttu eftir að hún hafði hafið sig á loft frá Keflavík- urflugvelli en vélin flaug þó áfram og lenti heilu og höldnu í Denver eins og áætlað var. Fram kom í máli Guðjóns Arn- grímssonar, upplýsingafulltrúa Ice- landair, að flugvélar væru gerðar til þess að taka við eldingum. „(…) þegar þetta gerist fer auðvitað í gang ákveð- in skoðun hjá áhöfninni. Ef ekkert am- ar að vélinni er flogið áfram,“ sagði Guðjón. Myndin af skemmdunum birtist upprunalega á 9NEWS. Að mati flug- sérfræðings fréttastofunnar, Gregs Feith, hefði ekki átt að halda fluginu áfram til Denver. „Þeir hefðu átt að snúa við. Það er skynsamlegt að snúa við því þú veist ekki hverjar skemmdirnar eru,“ sagði Feith við 9NEWS. Hann segir jafnframt að eldingum slái aðeins niður í flugvélar einu sinni til fimm sinnum á ári. Miðað við stutta leit á Google og upplýsingar frá Ice- landair eru slík atvik þó nokkuð al- gengari en svo. Önnur flugvél á vegum Icelandair varð fyrir eldingu í desem- ber síðastliðnum í aðflugi til Billund. Eldingin gataði nef flugvélarinnar  Telur að snúa hefði átt vélinni við  Eldingu laust niður í vél Icelandair í desember Ljósmynd/Skjáskot af 9News.com Gatað nef Vélin skemmdist talsvert.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.