Morgunblaðið - 10.04.2015, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 10.04.2015, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 2015 VINNINGASKRÁ 49. útdráttur 9. apríl 2015 838 10224 20298 30759 42415 50647 60280 71205 940 11175 20500 31622 42458 50744 60360 71225 1266 11194 20744 31955 42943 50756 61158 71365 1293 11854 20986 32987 43260 51573 61627 72036 1462 11890 21023 33664 43277 51859 61760 72204 2323 11914 22184 34085 43389 51892 61946 72509 2517 11916 22509 34219 43849 52335 62191 72610 2981 12299 23459 34598 43915 52609 62232 73597 3755 12300 23710 34983 44394 52946 63108 74003 4016 12638 24086 35376 44539 53392 63336 74382 4087 13055 24134 36420 44573 54112 64010 75151 4286 13449 24616 36856 44742 54369 64849 75552 4563 13817 24630 37094 45409 54794 65030 75629 4569 14145 24809 37360 45470 55023 65812 75902 4998 14266 24983 37381 45533 55046 65934 76244 5247 14456 25221 37610 45651 55446 66057 76876 5409 14665 25437 37953 45919 55541 66084 77294 5958 14812 26208 38072 45967 55654 66680 77516 6186 14953 26348 38262 46143 55690 66851 77625 6290 16170 26408 38380 47480 55849 66977 77882 7161 16704 26636 38405 47499 56445 66996 77895 7175 16800 26860 38545 47896 56573 67278 78425 7374 17176 27227 39241 48296 57418 67738 78456 7468 17762 27753 39566 48962 57748 67779 78803 9156 17832 28149 40111 49567 57774 67892 79031 9332 17863 28197 40159 49773 58110 68011 79524 9426 18517 28447 40295 49853 58732 69072 9576 18946 29012 40464 49942 59096 69428 9874 19409 29249 40763 49994 59713 69644 10005 19547 29492 41083 50106 59952 70604 10157 19691 29699 42006 50630 59958 70882 10161 19724 29819 42192 50644 59979 71123 1787 9584 20126 30301 38273 48323 59453 75594 2055 11134 20308 31117 38461 48559 61855 75652 3959 11158 22163 31655 38785 49324 62711 75919 4429 12403 23034 31893 39890 50215 63624 76002 4808 12495 23952 32396 39925 50471 66462 76030 4895 13140 24805 33322 41590 51416 66677 76635 6012 13740 25018 33325 43510 51647 67871 77457 7087 14996 25197 34820 45963 53375 68255 77479 7242 15263 27007 36167 46446 55043 70698 79281 7305 16627 27656 36749 46537 55555 71391 8461 16845 28868 37120 47106 56744 71833 9354 18248 29212 37322 47787 57222 72315 9528 18471 30117 37854 48196 59322 75573 Næstu útdrættir fara fram 16, 24, & 30. apríl 2015 Heimasíða: www.das.is Vinningur Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 20.000 Kr. 40.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur) 3879 9350 9718 79420 Vinningur Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 877 20915 23795 32756 59587 70573 2643 21146 24984 38217 61173 71971 13930 22246 27432 54419 61277 78242 15857 22551 31487 57878 66033 79145 Aðalv inningur Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur) 7 5 9 7 2 Stjórnandi kóranna, Stephen Yates, hefur gott lag á því að setja sama saman skemmti- lega dagskrá með fjölbreyttu lagavali, að sögn Ólafs B. Val- geirssonar. „Menn fá að spreyta sig á hinu og þessu, allt frá djassútsetningum á Moon River, yfir í ítalska miðaldatónlist og Mozart – kirkju- kórinn syngur m.a. Ave Verum Corpus – yfir í sjómannalög. Krakkarnir eru rosa- lega spenntir því nú fá þeir að syngja á lat- ínu.“ Fjölbreytt lagaval TÓNLEIKARNIR Fundur um 65 sveitarstjórnarmanna og þingmanna á Akureyri um opnun fleiri fluggátta inn í landið fyrir er- lenda ferðamenn var haldinn í fyrra- dag. Í fréttatilkynningu segir að mikil samstaða hafi verið um að að- koma heimamanna væri nauðsynleg í vinnunni. Skipun starfshóps á veg- um forsætisráðuneytisins var fagn- að. Jón Þorvaldur Heiðarsson, lektor við Háskólann á Akureyri, flutti er- indi um áhrif þess að hefja milli- landaflug á Norður- og Austurland og hvernig þjóðarbúið er að verða af tekjum með því að nýta ekki þá inn- viði og getu sem ferðaþjónustan á Norður- og Austurlandi býr yfir. Á fundinum héldu erindi fulltrúar Air 66N – flugklasans á Norður- landi, Atvinnuþróunarfélags Eyja- fjarðar og flugklasans á Austur- landi. Í máli þeirra kom fram að fjölgun ferðamanna til landsins hef- ur ekki skilað sér út fyrir suðvestur- hluta landsins og geta ferðaþjónust- unnar á Norður- og Austurlandi væri mjög vannýtt. Í tilkynningunni kemur fram að Markaðsstofa Norðurlands, At- vinnuþróunarfélag Eyjafjarðar, At- vinnuþróunarfélag Þingeyinga, Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, Eyþing, Austurbrú og Fjórð- ungssamband Vestfirðinga hafi staðið að fundinum. Á hann voru boðaðir þingmenn NV-kjördæmis og NA-kjördæmis, fulltrúar ráðuneyta og sveitarstjórna, embættismenn og aðrir sem að málinu koma. Samstaða um opnun fleiri fluggátta Ellefu starfsmenn Húsasmiðjunnar, Byko og Úlfsins - byggingavara voru í gær sýknaðir af ákæru sérstaks saksóknara, en fyrrverandi fram- kvæmdastjóri Byko var hins vegar dæmdur í eins mánaðar skilorðs- bundið fangelsi. Sérstakur saksóknari höfðaði mál- ið á hendur starfsmönnunum í maí síðastliðnum vegna gruns um verð- samráð. Sakborningar neituðu allir sök í málinu. Þórhallur Haukur Þorvaldsson, verjandi fyrrverandi markaðsfull- trúa Byko, sem sýknaður var í mál- inu, sagðist ánægður með niðurstöð- una. „Þetta er eins og lagt var upp með af okkar hálfu. Ákæran kom okkur í opna skjöldu og niðurstaðan er því í samræmi við væntingar,“ sagði Þórhallur. 90 milljónir í málsvarnarlaun Fyrrverandi framkvæmdastjóri byggingasviðs Byko var sakfelldur fyrir brot sem fólst í hvatningu til verðsamráðs milli Byko og Húsa- smiðjunnar. Í ákærunni segir að hann hafi þann 28. febrúar 2011 upp- lýst annan ákærða í málinu um hvernig hann myndi haga tilboðs- gerð í Byko í grófvörum. Þá hvöttu þeir hvor annan til þess að stuðla að því að fyrirtækin tvö myndu ekki stunda samkeppni. Alls verða um 90 milljónir króna greiddar úr ríkis- sjóði í málsvarnarlaun verjenda. Málið, sem var í rannsókn í rúm þrjú ár, var gríðarlega umfangsmik- ið og skjalafjöldinn tæplega fimm þúsund blaðsíður. Rannsóknin hófst í mars 2011 þegar Samkeppniseftir- litið og efnahagsbrotadeild ríkislög- reglustjóra framkvæmdu húsleitir hjá Byko, Húsasmiðjunni og Úlfin- um - byggingavörum. 19 voru handteknir Í fyrstu voru 19 manns handteknir en þeim sleppt að loknum yfir- heyrslum. Loks voru þrettán ákærð- ir. Sönnunargögn í málinu eru meðal annars tölvupóstar og símtöl á milli starfsmanna. Allir sýknaðir nema einn  Hvatti til verðsamráðs milli Byko og Húsasmiðjunnar Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Hefð er orðin fyrir því á Vopnafirði að einu sinni á ári halda þrír kórar bæjarins sameiginlega tónleika og þar má segja að kynslóðabilið sé brúað; þetta eru karlakór Vopna- fjarðar, kirkjukór Hofs- og Vopna- fjarðarkirkju og barnakór tónlistar- skóla bæjarins. Að þessu sinni verður sungið bæði í heimabænum og austur á Fáskrúðsfirði. Tónleikarnir hafa fest sig í sessi. „Þetta er fjórða árið í röð sem við gerum þetta,“ segir Ólafur B. Val- geirsson, sem er bæði í karla- og kirkjukórnum. „Það er eru á milli 40 og 50 manns sem koma fram og þetta verður íburðarmeira eftir því sem stjórnandinn nær betri tökum á liðinu. Hér eru allir syngjandi sælir og glaðir.“ Sjálfsprottin menning Kórarnir syngja allir hver í sínu lagi, karlakórinn og kirkjukjórinn saman og reikna má með að allir taki svo lagið saman í lokin. Bretinn Stephen Yates, sem starf- að hefur á Vopnafirði í fimm ár er kórstjóri, auk þess skólastjóri tón- listarskólans og organisti í kirkj- unni. „Nýlega byrjaði hann að spila á hljómborð í hljómsveitinni hér á staðnum,“ segir Ólafur. „Það band hefur verið til í nokkuð mörg ár, þetta eru góðir tónlistarmenn sem spila hvað sem er en aðallega dans- tónlist. Síðasta laugardag hélt Skemmtifélagið einmitt samkomu þar sem hljómsveitin spilaði en þá voru lög Ríó tríósins sungin og sett upp í kabarettformi. Þar unnu margir leiksigur og óvæntir hæfileikar komu fram hjá mörgum!“ Skemmtifélag Vopna- fjarðar var stofnað í febr- úar og þetta var fyrsta verkefnið. „Ætlunin er að menn komi saman til að skemmta sér og öðrum og standa fyrir einhverjum viðburðum á sem breiðustum grundvelli. Það var ægi- lega gaman á laugardaginn og húsið troðfullt. Við seldum rúmlega 200 miða. Á stöðum eins og Vopnafirði búa menn skemmtanirnar til sjálfir og brillera á eigin forsendum.“ Gaman með börnunum Ólafur segir einstaklega gaman að vinna með krökkunum í barnakórn- um. „Stjórnandinn fær þau til að vinna svo vel og taka verkefnið al- varlega án þess að það sé þvingun. Á síðustu tónleikum sungu þau ramm- flókinn, fjórskiptan keðjusöng. Það var mjög flott og þau fara með allt blaðlaust á meðan við, gamlingj- arnir, höngum á textablöðunum í bak og fyrir …“ Tónleikarnir á Vopnafirði verða í félagsheimilinu annað kvöld en á laugardaginn kemur hópurinn fram á Fáskrúðsfirði. „Við fylgjumst vel með veðrinu, því yfir fjallvegi er að fara,“ segir Ólafur. Ljósmynd/Magnús Már Spennt Börnin í kór Tónlistarskóla Vopnafjarðar hlakka mikið til tónleikanna, að sögn Ólafs B. Valgeirssonar. Syngjandi sæl og glöð  Kynslóðabilið brúað með söng á Vopnafirði  Þrír kórar bæjarins koma saman fram á tónleikum fjórða árið í röð Saman Karlakór Vopnafjarðar og Kirkjukór Hofs- og Vopnafjarðarkirkju. Stephen Yates

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.