Morgunblaðið - 10.04.2015, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 2015
Margrét Kr. Sigurðardóttir
margret@mbl.is
Reitir fasteignafélag var skráð á
aðalmarkað Kauphallarinnar í gær.
Af því tilefni hringdi forstjóri fyr-
irtækisins, Guðjón Auðunsson, inn
fyrstu viðskiptin með hlutabréf fé-
lagsins í húsakynnum Kauphallar-
innar. Guðjón sagði í samtali við
Morgunblaðið að lokinni athöfninni
að það væri mjög jákvætt að
stærsta fasteignafélag landsins í
einkaeigu væri nú komið á markað.
„Félagið var áður að stærstum
hluta í eigu viðskiptabankanna eft-
ir hrun og sá eignarhlutur var skil-
yrtur hjá opinberum aðilum með
því að það þyrftu að vera einhver
endamörk á því eignarhaldi. Í huga
fyrri eigenda var talið eðlilegast að
skrá félagið á markað. Það er meg-
inástæðan fyrir því að við stöndum
hér í dag.“ Guðjón segir að fyrir
markaðinn, fjárfesta, viðskiptavini
og starfsfólk þá sé skráningin ekki
síður áhugaverð. „Nú þurfum við
ársfjórðungslega að leggja okkar
vinnu fram opinberlega, skýra frá
okkar rekstri og leggja fram okkar
kennitölur. Vonandi munum við
standa undir þeim væntingum sem
markaðurinn hefur til okkar.“
Markaðurinn styrkist
Páll Harðarson, forstjóri Kaup-
hallarinnar, segir að skráningin
skipti miklu máli. „Reitir er leið-
andi fyrirtæki í sinni grein og stórt
fyrirtæki með töluvert umfang
rekstrar. Þá ekki eingöngu á ís-
lenskan mælikvarða heldur sómir
það sér einnig vel á norrænum
markaði Nasdaq.“ Páll segir að nú
þegar stefni í að þriðja fasteigna-
félagið komi í Kauphöllina þá sé
kominn geiri sem verður áhuga-
verður fyrir fjárfesta. „Með því
skapast auðveldur aðgangur fyrir
fjárfesta að fasteignamarkaðnum
og skapar þannig nýja möguleika.
Fasteignageirinn dregur að
ákveðna fjárfesta þannig að fleiri
augu beinast að markaðnum. Þessi
aukni áhugi mun síðan ryðja braut-
ina fyrir fleiri félög.“ Páll nefnir
einnig að með hverju nýju félagi
styrkist markaðurinn og verði
meira aðlaðandi sem fjármögnun-
arvettvangur. „Það verður að segj-
ast að enn sem komið er hafa fyr-
irtæki á síðustu árum að
takmörkuðu leyti nýtt hlutabréfa-
markaðinn til fjármögnunar en
með því að efla markaðinn og
breikka þá verður hann líklega
meiri aðlaðandi kostur til að koma
inn á og afla sér fjármagns. Þetta
hefur því töluverða þýðingu fyrir
viðskiptalífið.“
Viðskipti með Reiti
hafin í Kauphöllinni
Fasteignafélög efla markaðinn segir forstjóri Kauphallar
Morgunblaðið/RAX
Kauphöllin Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita, hringir Reiti inn í Kauphöll-
ina. Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar, fylgist álengdar með.
Markaðurinn
» Með skráningu Reita eru
fyrirtækin á Aðallista Kauphall-
arinnar orðin 14 talsins.
» Markaðsvirði hlutafjár í
Reitum er um 48 milljarðar
króna.
» 190 milljóna króna velta var
með bréf Reita fyrsta daginn.
» Verðið á hlut var 63,7 krónur
í lok dags en fór hæst í 64,7
krónur yfir daginn.
Fyrirtækið Zymetech hlaut Nýsköp-
unarverðlaun Íslands sem afhent
voru á Nýsköpunarþingi á Grand
hótel í gær. Zymetech er íslenskt líf-
tæknifyrirtæki á sviði rannsókna,
þróunar, framleiðslu og sölu nátt-
úrulegra sjávarensíma sem notuð
eru í húðvörur, lækningatæki og lyf.
Fyrirtækið nýtir meltingarensím úr
Norður-Atlantshafsþorski og fram-
leiðir vörur sem seldar eru undir
ýmsum vörumerkjum. Fyrirtækið
hefur þróað efnablöndu sem nefnd
er Penzyme og er notuð sem virka
efnið í vörum fyrirtækisins.
Nýjasta afurð Zymetech er lækn-
ingavaran PreCold sem er munnúði
til varnar kvefi. Dr. Ágústa Guð-
mundsdóttir, prófessor við HÍ og
rannsóknarstjóri Zymetech, veitti
verðlaununum viðtöku úr hendi iðn-
aðar- og viðskiptaráðherra, Ragn-
heiðar Elínar Árnadóttur. Í þakkar-
ræðu sinni sagði Ágústa marga hafa
lagt hönd á plóginn til að fyrirtækið
gæti orðið að veruleika og til að efla
fyrirtækið enn frekar hafi þau ný-
lega fengið til liðs við sig öfluga
stjórn og alþjóðlegt vísindaráð. Þá
nefndi hún að fyrirtækið ætlaði að
reyna fyrir sér á mörkuðum í
Bandaríkjunum.
Zymetech hlýtur ný-
sköpunarverðlaunin
Vörurnar unnar úr þorskensímum
Morgunblaðið/Golli
Nýsköpun Ragnheiður Elín Árnadóttir og Ágústa Guðmundsdóttir, rann-
sóknarstjóri Zymetech, ásamt starfsmönnum fyrirtækisins við afhendinguna.
Æ G I S G A R Ð I 2 , 1 0 1 R E Y K J A V Í K ,
S Í M I 5 1 2 8 1 8 1
VERIÐ VELKOMIN
Á NÝJAN VEITINGASTAÐ
Í RAUÐA HÚSINU
VIÐ GÖMLU HÖFNINA
Í REYKJAVÍK
Skipholt 50c • 105 Reykjavík • 582 6000 • www.computer.is
Síðan 1986
Sendum hvert
á land sem er
Asus RT-N66U router Samsung M2070W WiFi prentari
König USB klippikort
• Tengist beint í
samband við
ljósleiðarabox.
• Öflugt þráðlaust
• Einföld uppsetning
og þægilegt
viðmót
• Fjölnota
þráðlaus
laserprentari
• Prentar, skannar
og ljósritar.
• Eitt hylki sem
kostar aðeins
9.900!
Komdu gömlu
spólunum á
tölvutækt form
Genius 45W RMS hátalarakerfi
Afmælistilboð
með afsláttarkóðanum “15ARA” á Computer.is
net
24.990 kr.
34.990 kr.
12.741 kr.
8.900 kr.