Morgunblaðið - 10.04.2015, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 10.04.2015, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 2015 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Getgáturnarum Grikk-land eru fleiri en eyjar á Breiðafirði. Og eins og eyjunum þar þá fækkar þeim eða fjölgar eftir því hvernig stend- ur á flóði. Strax eftir að kosn- ingar skoluðu ríkisstjórn í rót- tækari kantinum inn í gríska stjórnarráðið var talað um að tifandi tímasprengja væri kom- in á evrusvæðið og stillt til mjög skamms tíma. Svo hófust fundir og margt var skrafað og mat stjórnmála- manna í hjarta Evrópu varð það, að þrátt fyrir allt myndu grískir leiðtogar sjá ljósið að lokum. Allir ábyrgir og reyndir stjórnmálamenn yrðu að taka mið af því, að Grikkirnir þyrftu tíma til að útvatna sín óábyrgu kosningaloforð og vinda ofan af því sem var ofsagt á heima- markaði fyrir kosningar. Slíkt gæti ekki bara hent stjórnmála- menn, það henti alltaf alla stjórnmálamenn. Við þennan sanngirnistón fækkaði getgátum óðar, óró- leikinn minnkaði og sjálfs- traustið fór vaxandi. Þessi jákvæða þróun varð samferða ákvörðun Seðlabanka evrunnar um að prenta peninga í áður óþekktum mæli og að byrja að borga bönkum fyrir að taka lán hjá sér. Viðskiptajöfr- ar voru með hýrri há. Þeim fannst þeir vakna aftur upp ár- ið 2007 og kreppa og hrun hefði verið martröð sem ekkert væri að marka. Bréf af öllu tagi hækkuðu eins og eitthvað raun- verulega gott hefði gerst. Skuldabréf, hlutabréf og ást- arbréf sungu á ný eins og gaml- ir símastaurar. En svo skiluðu Grikkir „út- færðum efnahagstillögum“ sín- um til Brussel. Í tuttugu ár í röð hafa 14 endurskoðendur ESB neitað að undirrita og staðfesta reikn- inga sambandsins, þar sem ekkert væri að marka þau gata- sigti. Þeir í Brussel kalla því ekki allt ömmu sína í fjárhags- legum efnum. En þegar þeir fengu að „kíkja í pakkann“ frá Aþenu féll þeim allur ketill í eld og voru sumir þeirra teknir að kalla hver annan ömmu sína áð- ur en þeirri skoðun lauk. Hókus pókus fyllti pakkann allt upp undir lok hans og upp- fyllingin var sundurlaust talna- verk sem enginn fékk til að stemma. Getgátunum fjölgaði nú ört á ný. Talað var um að „grexit“ (slangur um brottför Grikkja úr evru) hlyti að vera á næsta leyti. Evrusvæðismenn báru sig mannalega og sögðu að sínir menn hefðu reiknað út að hlaup Grikkja út af evrusvæðinu myndi gera sam- starfinu næstum ekkert til, en verða Grikkjum stór- skaðlegt. En þá áttu Grikkir næsta leik. Fram að þessu hafði allt málið snúist um það hvort þeir gætu „staðið við skuldbindingar sín- ar“ gagnvart Evrópu, sem þeir yrðu að gera og myndu aldrei komast hjá að gera. En þá skutu Grikkir kunnáttusamlega og að fornum hætti gamanatriði inn í tragedíuna þegar síst varði. Þeir birtu formlegan og flott uppsettan reikning sinn fyrir ógreiddar skaðabætur vegna verka sem fótgönguliðar og aðrir enn harðsnúnari útsend- arar Adolfs Hitlers höfðu fram- ið í Grikklandi á meðan það var í hans hers höndum. Þetta taldist Grikkjum til að myndu vera eitthvað á þriðja hundrað milljarða evra, þótt varlega væri reiknað og ekki með aukastöfum. En það er skemmst frá því að segja að þrátt fyrir heimsþekkt skopskyn var Þjóðverjum ekki skemmt við þetta atriði. Varð nú allt þungbúið. En þá tilkynnti gríski for- sætisráðherrann að Grikkland hefði ákveðið að greiða skuld sína við Alþjóðagjaldeyrissjóð- inn á gjalddaga nú í apríl. Þá dró úr getgátum og taugar styrktust á ný. En það varð skammgóður vermir því enn ein tilkynning barst þá frá þeim sama. Nú sagðist hann vera á leið til Pút- íns forseta, enda ætti hann við hann margþætt erindi. Því var samhliða lekið úr gríska stjórn- kerfinu að hafa yrði í huga að efnahagsþvinganir ESB gagn- vart Rússum, vegna framgöngu í Úkraínu, rynnu út í júní nk. Efnahagsþvinganir fengjust ekki endurnýjaðar nema full samstaða ríkti í leiðtogaráði ESB um það. Þrátt fyrir veru sína í ESB liti gríska ríkis- stjórnin þannig á að hún væri enn í forsvari fullvalda þjóðar og myndi því taka sjálfstæða ákvörðun í þvinganamálinu. Bæði hugmyndin og rökin fyrir henni þykja mikið hneykslismál í Brussel, ekki síst þar sem „smáþjóð“ á í hlut, eins og það er orðað þar. Haldi Grikkir sig við þessa hótun óttast búró- kratar sambandsins að önnur smáríki, eins og Ungverjaland og Slóvakía, komi sér upp kjarki til að fylgja þeim. Slíkt fordæmi væri óþolandi og að auki mikill álitshnekkir fyrir ESB út á við. Það er því alls ekki útilokað að Grikkir geti náð að halda uppi fjörinu í Evrópusamband- inu eitthvað fram eftir sumri. Það hafa verið fjör- legir sprettir í Grikk- landsfárinu síðustu vikurnar} Aðþrengdur refur á nokkrar útgönguleiðir É g hef þá sannfæringu að þegar allt komi til alls sé einstaklings- hyggjan bezta jafnréttisstefnan. Vafalítið eru ekki allir sammála mér um það. Sem er líka vitan- lega hið bezta mál. En hvers vegna er ég þeirrar skoðunar? Jú, ekki sízt vegna þess að einstaklingshyggjan byggist í grunninn á mik- ilvægi þess að einstaklingurinn fái að njóta hæfileika sinna og ná árangri í lífinu á eigin forsendum. Ennfremur að möguleikar hans í þeim efnum séu ekki skertir af samfélaginu, þá ekki sízt ríkisvaldinu, eða fyrir þær sakir að vera skilgreindur sem hluti af ákveðnum þjóðfélagshópi eða -hópum. Þannig er sýn einstaklingshyggjunnar ekki ýkja flókin þegar kemur að jafnréttismálum. Áherzlan er á einstaklinginn, hæfileika hans og getu óháð kyni hans, uppruna, þjóðerni, stétt og öðr- um þjóðfélagshópum sem hann kann að vera skil- greindur sem hluti af. Af samfélaginu eða ríkisvaldinu. Einstaklingshyggjan er þannig í reynd andstaða þess að einstaklingurinn sé látinn líða fyrir það að tilheyra ákveðnum hópi. Eða sé á einhvern hátt hyglað fyrir þær sakir. Einhver kann að segja að þetta sé einfaldlega útópía. Þannig ætti staðan að vera en sé ekki í raun. Kannski. En er þetta þá ekki markmið sem er þess virði að stefna að? Ég tel það alls ekki óraunhæft heldur tel ég þetta þvert á móti vel raunhæft markmið sé að því stefnt. En það er vissulega óraunhæft ef ákveðið er fyrirfram að svo sé. Eins og með svo margt annað. Eins og staðan er í dag er öll jafnréttis- umræðan að því er virðist gegnsýrð af því hvaða hópum fólk tilheyrir í stað þess að lögð sé áherzla á einstaklinginn. Ég er alls ekki viss um að það sé vænlegasta leiðin til raun- verulegs árangurs. Það getur hæglega ýtt undir átök, tortryggni og spennu á milli hópa þegar áherzlan er með þeim hætti. Þá er einnig mikil hætta á því að einstaklingar verði fyrir barðinu á slíkum aðstæðum. Þeir fái ekki að njóta sín sem skyldi vegna hópaflokk- unar. Það er auðvitað staðreynd að alls kyns þjóðfélagshópar eru fyrir hendi og verða allt- af. Það þarf vitanlega alls ekki að vera slæm- ur hlutur. En spurningin er hins vegar hvort það eigi að vera einhver helzti mælikvarðinn í þjóðfélag- inu. Er ekki vænlegra að horfa á einstaklinginn? Þeir eru vægast sagt ólíkir innbyrðis og miklu fjölbreyttari en þeir þjóðfélagshópar sem til staðar eru. Ég trúi því einfaldlega að vænlegasta leiðin til þess að tryggja að hver einstaklingur fái að njóta sín sem bezt og rækta hæfileika sína og getu sér sjálfum og öðrum til hagsbóta sé einstaklingshyggjan. Hún er þó vissulega ekki fullkomin frekar en önnur mannanna verk. En engu að síður trúi ég því að hún sé bezta viðmiðið í þessum efn- um sem skilar okkur öllum mestum árangri þegar upp er staðið. hjortur@mbl.is Hjörtur J. Guðmundsson Pistill Bezta jafnréttisstefnan STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Guðni Einarsson gudni@mbl.is Nýr kirkjugarður Kirkju-garða Reykjavíkur-prófastsdæma (KGRP)verður líklega suðvestan við Úlfarsfell og austan við Vestur- landsveg. Fyrirspurn barst frá KGRP 11. september 2014 þar sem óskað var eftir því að nýr kirkjugarður yrði á þessum stað en ekki í Geldinganesi. Erindið var lagt fram á fundi um- hverfis- og skipulagsráðs Reykjavík- ur 1. apríl síðastliðinn. Einnig var lögð fram greinar- gerð Helga Geirharðssonar, f.h. stýrihóps um uppbyggingu á Hlíð- arenda, um mun á kostnaði vegna jarðvegsflutninga frá Hlíðarenda í Úlfarsfell eða í Geldinganes vegna uppbyggingar kirkjugarðs. Þá var jafnframt lagt fram minnisblað KGRP frá 3. desember 2014 og um- sögn skipulagsfulltrúa frá 13. mars 2015. Umsögnin var samþykkt á fundinum. Saga kirkjugarðsmálsins er rakin í umsögn skipulagsfulltrúans. Þar kemur m.a. fram að KGRP hefðu fengið landið við Úlfarsfell ár- ið 2003. Land við Stekkjarbrekkur við Vesturlandsveg, sem þá var merkt í aðalskipulagi sem kirkju- garður, var síðan tekið undir versl- unarhús. Þess má geta að Korputorg er nú á þeim slóðum. Jarðfylling í kirkjugarð austan við Vesturlandsveg átti að fást vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar suður af Úlfarsfelli. Þau áform brustu árið 2008. Kirkjugarðsland- inu, sem var rúmlega 20 hektarar, var skipt út fyrir svipað land í Geld- inganesi. Þá var talið að hægt yrði að taka kistukirkjugarð fyrr í notk- un í Geldinganesi en við Úlfarsfell. Lítil skipulagsvinna hefur farið fram í Geldinganesi og ekki búið að ákveða hvar kirkjugarður eigi að vera þar, samkvæmt minnisblaði forstjóra KGRP frá 3. desember sl. Mold frá Hlíðarenda Talið er að um 500.000 rúm- metrar af góðum jarðvegi fáist vegna fyrirhugaðra framkvæmda á Hlíðarendasvæðinu. Lætur nærri að það muni duga til uppfyllingar á því landi sem nú er óskað eftir að verði aftur sett inn sem kirkjugarður við Úlfarsfell. „Brýnt er að hefjast handa sem fyrst til að hægt verði að bjóða upp á kistugrafir í Reykjavík, þegar Gufuneskirkjugarður verður fullsettur, en talið er að slíkt geti orðið um eða eftir 2020,“ segir í um- sögn skipulagsfulltrúa. Fram kemur í minnisblaði for- stjóra KGRP að framkvæmdatími nýs kirkjugarðs sé allt að átta ár. Þrjú sveitarfélög eru á þjónustu- svæði KGRP, þ.e. Reykjavík, Kópa- vogur og Seltjarnarnes. Samkeppni var haldin 2007 um hönnun landsins við Úlfarsfell og varð tillaga frá Landmótun hlutskörpust. Hún gerir ráð fyrir hringlaga kirkjugarði. Hægt verður að taka landsvæðið smám saman í notkun, byrja innst og stækka garðinn síðan út eftir því sem þurfa þykir. Áætlað er að Gufunes- kirkjugarður verði fullsettur um árið 2022. Kópavogs- kirkjugarður mun endast leng- ur. Nýr kirkjugarður í Reykja- vík þarf að vera tilbúinn nokkru áður en Grafavogs- kirkjugarður fyllist. Annars mun Kópavogskirkjugarður fyllast á um áratug. Aukning á líkbrennslu hefur áhrif á þörf fyrir kistugrafreiti en gert er ráð fyrir að líkbrennsla verði um 45% af heildinni árið 2025. Landið við Úlfarsfell myndi því endast sem kistugrafreitur langt fram eftir þessari öld. Nýr kirkjugarður líklega við Úlfarsfell Loftmynd/Reykjavíkurborg Kirkjugarður Guli hringurinn sýnir hvar hugmyndin er að setja kirkju- garð norðan við Bauhaus. Rauði hringurinn sýnir eldri staðsetningu. Borgarráð Reykjavíkur sam- þykkti í gær verkefnislýsingu skipulagsgerðar og umhverfis- mat vegna breytinga á aðal- skipulagi Reykjavíkur vegna nýs kirkjugarðs í Reykjavík. Áformað er að gera nýjan kirkjugarð við Úlfarsfell, á svæði austan við Vesturlands- veg og norðan við Bauhaus. Í Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 kom fram sú stefna að kanna möguleika á gerð kirkjugarðs í Geldinganesi. Nú hefur verið fallið frá því. Leita á umsagna Skipulagsstofnunar, hverfisráðs Úlfars- árdals, hverfisráðs Grafarvogs, Kirkju- garða Reykjavíkur- prófastsdæma og Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um kirkjugarðinn við Úlfarsfell. Breyta þarf skipulagi UNDIRBÚNINGUR HAFINN Fleiri grafreiti vantar í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.