Morgunblaðið - 10.04.2015, Page 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 2015
Svavar Hall-dórsson rekurfyrirtækið Ís-
lenskan mat. „Það sem
ég geri er að skrifa um
mat, tala um mat og
ráðleggja um mat. Ég
framleiði sjónvarps-
þætti og er með lítið
innflutningsfyrirtæki
og netverslun á is-
lenskurmatur.is. Fyrir
rúmri viku opnaði ég
Verzlunina RAM á
Laugavegi 72, en þar
eru til sölu alls konar
tæki og tól fyrir mat-
gæðinga og einnig ís-
lenskt matarhandverk.
Þar erum við að tala
um sultur, sinnep, sölt,
súkkulaði og ýmis
skemmtilegheit. Stefn-
an er að bjóða upp á
fjölbreytta flóru af
matarhandverki og
matartengdri íslenskri
hönnun. Fyrir utan
þetta þá er ég í alls
kyns ráðgjöf og markaðsvinnu fyrir samtök og stofnanir í öllu sem
viðkemur mat og ferðaþjónustu. Ég hef unnið fyrir bæði íslenska
og erlenda matreiðslumenn, veitinga- og ferðaþjónustufyrirtæki
og tekið þátt í alþjóðlegu samstarfi um matarferðamennsku. Þótt
þetta sé mjög fjölbreytt þá hverfist allt sem ég geri utan um ís-
lenskan mat.
Fyrir utan matargerð, skrif og markaðsvinnu, þá reyni ég að
sinna fjölskyldunni, spila badminton og er nýbyrjaður að fara á
skíði aftur, eftir 25 ára hlé. Ég var á Siglufirði um páskana og það
var mjög skemmtilegt að vera í íslenskum fjöllum í blíðskapar-
veðri, þá komst ég að því að þetta er svolítið eins og að hjóla,
þetta gleymist ekki.“
Eiginkona Svavars er Þóra Arnórsdóttir sjónvarpskona. Börn
Svavars eru Erna María 17 ára, Guðbjörg Lilja 16 ára, Rebekka
Ósk 15 ára, Halldór Narfi 9 ára, Nína Sólveig 6 ára og Ásdís
Hulda 2 ára. Þrjú yngstu börnin eiga þau Þóra saman.
Svavar Halldórsson er 45 ára í dag
Verslunareigandi Svavar var að opna
Verzlunina RAM á Laugavegi.
Lífið snýst um
íslenskan mat
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
J
enný fæddist á Akureyri
10.4. 1965 og ólst upp í
Yzta-Gerði í Eyjafirði. Hún
var í barnaskólanum í Sól-
garði fyrstu sex árin, lauk
grunnskólanámi í Hrafnagilsskóla
sem þá var heimavistarskóli og stúd-
entsprófum frá MA vorið 1985.
Að loknum stúdentsprófum flutti
Jenný til Blönduóss og kenndi við
grunnskólann þar í tvo vetur: „Það
var lærdómsríkur og skemmtilegur
tími. Þar var tekið vel á móti mér og
samstarfsfólkið var frábært.
Ég hafði umsjón með tveimur
bekkjardeildum. Auk þess vann ég á
Hótel Blönduósi, tók þátt í starfi leik-
félagsins og öðru félagsstarfi.“
Jenný hóf nám við Kennaraháskóla
Íslands haustið 1988 og útskrifaðist
þaðan með B.Ed-gráðu vorið 1991. Þá
um haustið hóf hún störf við Síðu-
skóla á Akureyri og kenndi þar til
2006. Hún hóf þá störf við Miðstöð
Jenný Gunnbjörnsdóttir sérfræðingur – 50 ára
Í Lundskógi Jenný og fjölskylda hennar við sumarbústaðinn en þangað hjóla þau, yfir Vaðlaheiði, tvisvar á sumri.
Lestur og læsi eru
undirstaða menntunar
Hressar mæðgur Hér er Jenný með móður sinni og fjórum systrum sínum.
Ljósmynd/Auðunn Níelsson
Mumbai, Indlandi Jonah Astor D’souza Einarsson fæddist 13. mars 2014 kl.
2.44. Hann vó 2.150 g og var 39,5 cm. Noah Fernando D’souza Einarsson fædd-
ist 13. mars 2014 kl. 2.40. Hann vó 2.090 g og var 39 cm.
Foreldrar þeirra eru Jamaima Julia D’souza og Einar Eiríkur Einarsson.
Nýir borgarar
KLASSÍSK ÍSLENSK ÚR
FYRIR HANN OG HANA
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is