Morgunblaðið - 14.04.2015, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 14.04.2015, Blaðsíða 2
Í tæpa þrjá mánuði hefur númers- laus bíll staðið í vegkanti á Eyrar- bakka. Í fundargerð hverfisráðs Eyrarbakka kemur fram að tekist hafi verið á um það milli embættis- manna sveitarfélagsins og Vega- gerðarinnar hvorum beri að fjar- lægja bílinn. Siggeir Ingólfsson, formaður hverfisráðs Eyrarbakka, segir sveit- arfélagið ekki geta fjarlægt bílinn þar sem hann standi á vegstæði Vegagerðarinnar. „Sveitarfélagið getur ekkert gert þar sem það hefur ekki umráðarétt yfir þessum vegi, það er Vegagerðin sem hefur það,“ segir Siggeir. Ásta Stefánsdóttir, framkvæmda- stjóri sveitarfélagsins Árborgar, sagðist í samtali við Morgunblaðið í Tekist á um númerslausan bíl  Aðeins Vegagerðin má fjarlægja bílinn  Áminning frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands gær vera nýbúin að kynna sér efni þessa ágreinings. Bíllinn stæði á þjóðvegi alveg upp við Eyrarbakka. Starfsmenn sveitarfélagsins hefðu rætt við Vegagerðina þar sem veg- urinn væri á þeirra forræði og unnið væri að lausn á málinu. Í gær var síðan settur miði á fram- rúðu bílsins frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands. Var frestur gefinn til 23. apríl til að fjarlægja bílinn, að öðrum kosti yrði honum fargað eða tekinn í vörslu í einn mánuð. „Hafi eigandi ekki vitjað bifreið- arinnar að þeim tíma liðnum verður henni fargað, allt á kostnað eiganda og með lögveði í bifreiðinni,“ segir m.a. í áminningu heilbrigðis- eftirlitsins. brynjadogg@mbl.is Ljósmynd/Helgi Hermannsson Eyrarbakki Bíllinn hefur verið númerslaus á þjóðveginum við Eyrarbakka. 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 2015 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Hjörtur J. Guðmundsson Viðar Guðjónsson Jón Atli Benediktsson hlaut 48,9% greiddra atkvæða í rektorskjörinu í Háskóla Íslands í gær. Guðrún Nor- dal hlaut 39,4% og Einar Steingríms- son 9,7%. Það er því ljóst að kjósa þarf á nýjan leik á milli tveggja efstu frambjóðendanna þar sem hljóta þarf meirihluta atkvæða til að ná kjöri. Síðari umferð kosninganna fer fram eftir viku. Á kjörskrá voru 14.110, þar af 1.486 starfsmenn og 12.624 stúdentar. At- kvæði greiddu alls 1.286 starfsmenn, eða 86,6% á kjörskrá, og 5.080 stúd- entar, eða 40,2% á kjörskrá. Alls greiddu 6.366 atkvæði og var kosn- ingaþátttaka því í heild 45,1%. At- kvæði utan kjörfundar voru 71 og auðir seðlar 206 eða 3,2% greiddra at- kvæða. Gild atkvæði voru því 6.160. Atkvæði háskólakennara og ann- arra starfsmanna sem hafa háskóla- próf jafngiltu 60% greiddra at- kvæða. Atkvæði stúdenta giltu 30% og atkvæði annarra atkvæðisbærra aðila 10%. Jón Atli Benediktsson, sem verið hefur aðstoðarrektor, var þakklátur sínum stuðningsmönnum eftir kjör- ið. „Það munaði ekki miklu en ég er mjög ánægður að vera í þessari stöðu. Það hefur yfirleitt verið þann- ig í þessum rektorskosningum að það þarf tvær umferðir til og það er heilmikil vinna eftir. Ég hlakka til þess að ræða áfram við starfsfólk og nemendur,“ segir Jón Atli. Bæði hann og Guðrún Nordal segja að um málefnalega baráttu hafi verið að ræða. „Ég er bara mjög ánægð með niðurstöðuna og hlakka til næstu viku,“ segir Guðrún, sem m.a. hefur verið forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Hún segir að baráttan hafi verið í góðum anda. „Fólk vill breytingar og það verður gaman að vinna á næstu dögum,“ segir Guðrún. Ekki náðist í Einar Steingríms- son í gærkvöldi þegar úrslit lágu fyrir. Þörf á annarri kosningu  Enginn fékk meirihluta í rektorskosningu  Valið stendur á milli Jóns Atla Benediktssonar og Guðrúnar Nordal  Jón Atla vantaði 1,1% til að ná meirihluta Morgunblaðið/Árni Sæberg Rektorskjör Guðrún Nordal og Jón Atli Benediktsson fengu flest atkvæði. Björg Thorarensen, formaður kjörstjórnar, er til hægri á myndinni. anda skal til verka þegar unnið er í borgarland- inu og því voru fjórir starfsmenn Reykjavíkur- borgar sendir til þess að ausa möl úr fötu við tvö upplýsingaskilti sem standa við Austurvöll. Var grasið þar farið að láta á sjá vegna átroðnings ferðamanna og við því þurfti að bregðast með skjótum hætti. Þurfti ungi maðurinn með þjóð- legu ullarvettlingana því að hinkra um stund áð- ur en hann gat barið skiltin augum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Brugðist við ágangi ferðamanna Hugað að grasbletti við Austurvöll í miðbæ Reykjavíkur Vilhjálmur Bjarnason, þing- maður Sjálfstæð- isflokksins, segir sporin hræða þegar hugmyndir Frosta Sigur- jónssonar, for- manns efnahags- og viðskipta- nefndar, um að breyta Lands- bankanum í samfélagsbanka eru annars vegar. „Við höfum samfélagsbanka sem heitir Íbúðalánasjóður. Þarf ég að segja meira? Það er búið að moka í hann á annað hundrað milljörðum króna og sér ekki fyrir endann á,“ segir Vilhjálmur. Frosti kynnti hugmyndina á flokksþingi Framsóknarflokksins í Reykjavík síðustu helgi. Spurður hvort þessi áform setji strik í reikning þeirra áforma ríkis- stjórnarinnar að selja hluta af 98% eign sinni í Landsbankanum segir Vilhjálmur þetta ekki hafa komið til umræðu. Það sama gildi um tillögu Karls Garðarssonar, þingmanns Framsóknarflokksins, um að banna bankabónusa. Framsóknarflokkur hafi nýlega „samþykkt að banka- bónusar skuli vera í ákveðnu ferli“. „Öll frásögn af þingi Framsóknar var heldur kómísk, án þess að nokk- uð hafi verið gert til að færa það í kómískan búning. Framsóknarmenn sáu um það sjálfir,“ segir Vil- hjálmur. baldura@mbl.is Líst ekki á tillögu Frosta Vilhjálmur Bjarnason Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi konu í átta mánaða fangelsi fyrir brot gegn vald- stjórninni. Hafði hún m.a. bitið fjóra lögreglu- menn auk þess sem konan hótaði að myrða börn tveggja lögreglumanna. Fullnustu refsingarinnar var frestað og mun hún falla niður að þremur árum liðnum haldi konan almennt skilorð. Fyrir dómi neitaði konan sök og sagðist ekki muna eftir áðurnefnd- um atvikum. Var hún dæmd til að greina 56 þúsund krónur í sakar- kostnað og málsvarnarlaun verj- anda síns, rúmar 500 þúsund kr. Kona dæmd fyrir of- beldi í garð lögreglu Ekki verður gef- in út ákæra vegna mannsláts sem varð á Hvammstanga í júní á síðasta ári. Samkvæmt upp- lýsingum frá embætti Ríkis- saksóknara leiddi rannsókn málsins ekki í ljós að andlát mannsins hefði borið að með saknæmum hætti og féll málið niður. Fyrst voru fjórir menn handteknir vegna málsins, grun- aðir um líkamsárás. Talið var að mennirnir hefðu ráðist á annan, sem lést þremur dögum síðar. Fjölmargir voru yfirheyrðir en fjórir handteknir. Þeir voru síðar úrskurðaðir í gæsluvarðhald en tveimur sleppt nokkrum dögum síð- ar. Hinum mönnunum var jafn- framt sleppt síðar í sama mánuði. Mál vegna manns- láts fellt niður Mannslát varð á Hvammstanga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.