Morgunblaðið - 14.04.2015, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 2015
Nýtni, hagsýni og
minni sóun eru ær og kýr
Rakelar Garðarsdóttur
í hennar nútímalega
neytendaþætti.
NEYTENDAVAKTIN
www.hringbraut.is
við miðlum af reynslu
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
„Rannsókninni var ekki ábótavant.
Þetta er bara niðurstaða dómsins
eftir að farið var yfir málsatvik og
þau metin út frá lögunum,“ segir
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur
saksóknari, en ellefu starfsmenn
Húsasmiðjunnar, Byko og Úlfsins
byggingarvara voru á dögunum
sýknaðir af ákæru sérstaks sak-
sóknara. Fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri byggingarsviðs
Byko var hins vegar dæmdur í
eins mánaðar skilorðsbundið fang-
elsi.
Fyrst voru 19 handteknir
Alls verða um 90 milljónir króna
greiddar úr ríkissjóði í málsvarn-
arlaun verjenda.
Sérstakur sak-
sóknari höfðaði
málið á hendur
starfsmönnunum
í maí síðastliðn-
um vegna gruns
um verðsamráð.
Rannsóknin
hófst þó í mars
2011 þegar Sam-
keppniseftirlitið
og efnahags-
brotadeild ríkislögreglustjóra
framkvæmdu húsleitir hjá Byko,
Húsasmiðjunni og Úlfinum bygg-
ingarvörum. Í fyrstu voru 19
manns handteknir en þeim sleppt
að loknum yfirheyrslum. Rúmri
viku síðar voru 15 handteknir og
færðir til frekari yfirheyrslu.
„Nú er þetta niðurstaða í Hér-
aðsdómi, þá fara menn náttúrlega
bara fyrst og fremst yfir forsendur
dómsins og meta hvað það er sem
dómurinn er í raun að binda nið-
urstöðuna við. Síðan er eftir
ákvörðun hjá ríkissaksónara hvort
héraðsdómi verði unað eða hvort
málinu verði áfrýjað,“ segir Ólafur
Þór.
Ekki mörg sambærileg mál
„Þetta mál er mjög sérstakt og
þessi samkeppnismál eru ekki
mörg í réttarsögunni. Menn vega
það því mjög vel og meta hvað sé
réttast að gera þegar svona nið-
urstöður koma. Þetta er langt og
mikið ferli á þessu máli og það gef-
ur því náttúrlega enn frekar vægi
að það sé mjög vel farið yfir nið-
urstöðuna og athugað hvort það sé
tekin ákvörðun um málskot eða
ekki,“ segir hann.
Kveður rannsókn ekki
hafa verið ábótavant
Um 90 milljónir króna greiddar úr ríkissjóði vegna málsins
Ólafur Þór
Hauksson
Malín Brand
malin@mbl.is
Einstakt þykir að enginn skuli hafa
slasast alvarlega í stórslysi á Holta-
vörðuheiði á sunnudag. Fjöldaárekst-
ur varð um miðjan daginn og liggur
enn ekki fyrir hve margir bílar teljast
ónýtir eftir áreksturinn en samkvæmt
upplýsingum frá lögreglu voru þeir tíu
hið minnsta því það er sá fjöldi bíla
sem tekinn var af númerum. Fólk á
vettvangi sýndi snarræði við afar erf-
iðar aðstæður í miklum veðurofsa.
Bæði var dimmt í kófinu og mikil
hálka. Tveir menn slösuðust og var út-
lit fyrir að illa hefði farið. Lögreglu-
þjónn varð fyrir bíl og einn af farþeg-
um varð undir flutningabíl.
Æðandi flutningabíll
Að sögn Kristjáns Þorbjörnssonar,
yfirlögregluþjóns á Blönduósi, byrj-
aði árekstrahrinan á Holtavörðuheið-
inni með því að nokkrir fólksbílar
rákust saman inni í niðdimmu kófinu.
„Síðan kemur flutningabíll og keyrir
inn í þetta. Lögreglumaðurinn og far-
þegi eins bíls voru að bisa þarna við
bíl til að reyna að færa eitthvað til,“
segir Kristján. Þegar lögreglumað-
urinn hafi komið auga á flutningabíl-
inn hafi hann öskrað á farþegann að
forða sér og reynt að koma sér sjálfur
á brott en það var um seinan. „Vöru-
bíllinn fór á kyrrstæða bílinn sem
kastaðist við það á lögreglumanninn,
sem hentist langt út fyrir veg, en far-
þeginn varð undir flutningabílnum og
menn töldu að hann væri sennilega
bara farinn. En hann stóð upp og
settist inn í bíl,“ segir Kristján. Lög-
regluþjónninn var mættur aftur til
vinnu daginn eftir, stálsleginn, og
maðurinn sem varð undir bílnum var
útskrifaður af sjúkrahúsi eftir hádeg-
ið í gær. „Það er með ólíkindum að
enginn skuli hafa fallið í valinn,“ segir
Kristján feginn.
Alversta vindáttin
Veðurfræðingurinn Einar Svein-
björnsson þekkir vel til á svæðinu
umhverfis Holtavörðuheiðina en slys-
ið varð í námunda við Miklagil. „Það
var suðvestanátt þennan dag og tólf
til fjórtán metrar á sekúndu á mæl-
inum uppi á Bláhæð um þetta leyti,“
segir Einar. „Suðvestanáttin er leið-
inleg vindátt á Holtavörðuheiðinni og
álitin leiðinlegri en flestar áttir. Menn
urðu varir við það þegar verið var að
opna vegi að morgni þessa dags að
snjórinn var léttur og laus í sér. Nýi
snjórinn hafði fallið í dálitlu frosti og
fauk auðveldlega til. Það var komið
skafrenningskóf þótt það væri til-
tölulega hægur vindur,“ segir hann.
Þannig var það víða um norðvestan-
vert landið. „Þegar það er laus snjór
og éljagangur að auki er yfirleitt lítið
skyggni á veginum yfir Holtavörðu-
heiði og því erfitt um vik. Oft er það
þannig á fjallvegunum að þeir eru vel
uppbyggðir og þótt það sé skafrenn-
ingur og lítið skyggni sest snjórinn
ekkert endilega á vegina þannig að
þeir haldast opnir því þeir teppast
ekki. Hins vegar getur verið vont að
keyra þá og erfitt,“ segir Einar um
þær erfiðu aðstæður sem sköpuðust á
afmörkuðu svæði á heiðinni.
Ótrúlegir menn
sem sluppu
með skrekkinn
10 bílar teknir af númerum SV-
áttin og laus snjór það versta á svæðinu
Slys Mikið mildi þykir að enginn skyldi hafa fallið í valinn í slysinu sl. sunnudag.
Tuttugu farþegar voru um borð í hvalaskoðunarbátnum
Faldi þegar reykur kom upp í vélarrúmi bátsins í gær.
Stefán Guðmundsson, forstjóri hvalaskoðunarfyrirtæk-
isins Gentle Giants, sagði í samtali við mbl.is í gær að
reykurinn hefði aðeins verið minniháttar.
Reykurinn kom upp eftir um 30 mínútna siglingu frá
Húsavík og var strax haft samband við stjórnstöð Land-
helgisgæslunnar. Björgunarsveit og nærstaddir bátar
voru komnir til aðstoðar á örskotsstundu að sögn Stef-
áns og farþegar færðir um borð í Bjössa Sör.
Ljósmynd/Börkur Kjartansson
Eldur í hvalaskoðunarbát frá Húsavík
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Alls 217 fasteignir á Austurlandi, sem
eru í eigu Íbúðalánasjóðs, eru til sölu,
en í eignasafni sjóðsins eru alls 238
eignir eystra. Alls 103 eignir eru á
skrá hjá fasteignasölum á Austur-
landi. Til viðbótar eru í sérstöku sölu-
ferli 114 eignir; það er að eignir eru
settar saman í pakka og verða seldar
þannig. Með því er höfðað til fjárfesta
sem ef til vill vilja kaupa nokkurn
fjölga eigna, svo sem til útleigu.
Sjóðurinn fékk eignir í fangið
Eignir Íbúðalánasjóðs á Austur-
landi í útleigu til lengri sem skemmri
tíma eru 121. Mál viðvíkjandi 13 eign-
um eru í frekari úrvinnslu og skrán-
ingu. Ákvörðun um ráðstöfun þeirra
verður tekin þegar þegar greiningar-
vinnu og öðru lýkur.
Kraftur var settur í byggingu íbúð-
arhúsnæðis á Austurlandi fyrir um
áratug, það er um líkt leyti og fram-
kvæmdir við Kárahnjúkavirkjun og
álver Alcoa á Reyðarfirði stóðu sem
hæst. Búist var við mikilli fjölgun
íbúa, en reyndin var sú að byggðar
voru fleiri eignir en þörf var fyrir.
Fyrir vikið fékk Íbúðalánasjóður,
sem lánað hafði fé til framkvæmda,
margar eignir í fangið.
Í Fjarðabyggð á Íbúðalánasjóður
alls 176 fasteignir. Flestar eru á
Reyðarfirði, alls 92, og af þeim eru 46
til sölu og 45 í útleigu. Á Reyðarfirði
og Fáskrúðsfirði eru eignirnar 35 á
hvorum stað og er skiptingin þar milli
fyrirhugaðrar sölu og útleigu því sem
næst jöfn. Þá á sjóðurinn 35 eignir á
Eskifirði, og eru 12 þeirra til sölu, 16 í
leigu og fjórar standa auðar.
Þegar er svo litið á stöðuna á Egils-
stöðum þar sem sjóðurinn á 54 eignir;
35 eru í leigu, ein stendur auð og 18
eru falar. Í öðrum sveitarfélögum á
Austurlandi á Íbúðalánasjóður færri
eignir.
Af Austurlandseignunum 238 eru
143 íbúðir í fjölbýlishúsum og ein-
býlishús og íbúðir í raðhúsum alls 72,
36 í hvorum flokki.
Eignir séu til sölu eða í leigu
„Hér á bæ leggjum við áherslu á að
eignir séu í hreyfingu á markaðnum,
það er annað hvort í sölu eða til út-
leigu,“ segir Ágúst Kr. Björnsson,
framkvæmdastjóri eignasviðs Íbúða-
lánasjóðs, í samtali við Morgunblaðið.
Almennt um sölu eigna sjóðsins segir
hann að reynt sé að stíga skrefin í
samræmi við stöðu markaðarins á
hverjum tíma. Væri til dæmis fjöldi
eigna settur í sölu í einu raskaði slíkt
verðmyndun og jafnvægi. Slík beri að
forðast. Nú sé sala á höfuðborgar-
svæðinu, Suðurnesjum og víðar orðin
ágæt og því sé aukin áhersla lögð á
sölu eigna á Austurlandi. Eystra sé
markaður þó skemmra á veg kominn
en sunnanlands, en teikn séu á lofti
um breytingar til bóta.
Alls 217 fasteignir til sölu
Íbúðalánasjóður á 238 íbúðir á Austurlandi Flestar í
Fjarðabyggð Blokkaríbúðir áberandi Margar í útleigu