Morgunblaðið - 14.04.2015, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 2015
Gildi - lífeyrissjóður
Sætúni 1
105 Reykjavík
Sími 515 4700
www.gildi.is
gildi@gildi.is
Á R S F U N D U R
Ársfundur Gildis-lífeyrissjóðs verður haldinn á Grand Hótel
Reykjavík miðvikudaginn 15. apríl kl. 17.00.
Dagskrá fundarins:
1. Venjuleg ársfundarstörf.
2. Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins.
3. Samruni Gildis-lífeyrissjóðs og Lífeyrissjóðs Vestfirðinga.
4. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins liggja frammi á skrifstofu
sjóðsins og eru birtar á heimasíðunni,
Allir sjóðfélagar eiga rétt til setu á ársfundinum með málfrelsi og
tillögurétti. Sérstakt fulltrúaráð, að jöfnu skipað fulltrúum stéttarfélaga
og samtaka atvinnurekenda sem að sjóðnum standa, fer með atkvæði
á ársfundinum.
Tillögur til ályktunar sem taka á fyrir á ársfundi þurfa að
berast stjórn sjóðsins eigi síðar en viku fyrir ársfund.
Kynningarfundur fyrir sjóðfélaga verður haldinn á
Hótel Ísafirði föstudaginn 17. apríl. kl. 17.00.
Reykjavík 31. mars 2015,
lífeyrissjóður
Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs.
2015
www.gildi.is
Það hefur, sem betur fer, veriðlítið að frétta af hugmyndum
um náttúrupassa upp á síðkastið.
Í frétt á Mbl í gær sagði hinsvegar frá því, að á Alþingi
hefði fjármálaráð-
herra svarað
spurningu
Kristjáns
Möllers um
gistinátta-
gjald.
Gistináttagjaldið var sett á íársbyrjun 2012.
Fjármálaráðherra upplýstiKristján Möller og þar með
okkur hin að gjaldið hefði gert
betur en gróðavonir stóðu til.
Það hefði halað 680 milljónirkróna inn í ríkissjóð síðan
2012.
Það eru peningar líka, eins ogkarlinn sagði, þegar hann
tapaði fimmeyringunum í harkinu
forðum.
Þegar frumvarp um náttúru-passa var kynnt sáu þeir sem
rýndu vel að þessi passi hafði ná-
kvæmlega sama tilgang og hið ný-
tilkomna gistináttagjald.
Passinn hafði það þó umframgistináttagjaldið að hægt var
að nota hann til að abbast upp á,
angra og auðmýkja landann þegar
hann labbaði inn á forna slóð.
Um leið og þetta skrýtna skír-teini verður endanlega jarð-
að væri tilvalið að Kristján Möller
eða einhver annar ágætur þing-
maður nældi sér í nákvæma útlist-
un á því, hvernig gistinátta-
gjaldinu hefur verið varið síðan
2012.
Gistináttúrugjald
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 13.4., kl. 18.00
Reykjavík 5 skúrir
Bolungarvík 5 alskýjað
Akureyri 9 skýjað
Nuuk -7 snjóél
Þórshöfn 7 skúrir
Ósló 7 heiðskírt
Kaupmannahöfn 7 skýjað
Stokkhólmur 8 léttskýjað
Helsinki 7 léttskýjað
Lúxemborg 15 léttskýjað
Brussel 12 léttskýjað
Dublin 15 skýjað
Glasgow 10 alskýjað
London 16 skýjað
París 20 heiðskírt
Amsterdam 11 heiðskírt
Hamborg 8 léttskýjað
Berlín 11 skúrir
Vín 16 alskýjað
Moskva 10 heiðskírt
Algarve 20 heiðskírt
Madríd 22 léttskýjað
Barcelona 17 léttskýjað
Mallorca 18 heiðskírt
Róm 17 léttskýjað
Aþena 18 léttskýjað
Winnipeg 8 léttskýjað
Montreal 18 heiðskírt
New York 17 heiðskírt
Chicago 15 alskýjað
Orlando 28 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
14. apríl Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:00 20:57
ÍSAFJÖRÐUR 5:56 21:11
SIGLUFJÖRÐUR 5:39 20:54
DJÚPIVOGUR 5:27 20:29
Samningafundur
samninganefnda
Bandalags há-
skólamanna
(BHM) og ríkisins
í húsi ríkissátta-
semjara í dag bar
ekki árangur.
Næsti fundur er
boðaður á
fimmtudaginn.
„Það mun í sjálfu sér ekkert gerast
fyrr en það koma auknir fjármunir
inn,“ sagði Páll Halldórsson, formað-
ur BHM, í samtali við mbl.is eftir
fundinn. Unnið var að öðrum atriðum
samningsins er snúa að tæknilegri
hlið hans og innihaldi á fundinum
sem stóð yfir í rúmar tvær klukku-
stundir.
Síðasti fundur í deilunni var á
föstudag og segir Páll að engar
breytingar hafi orðið á milli
fundanna. „Ef eitthvað væri að ger-
ast værum við ennþá á fundi,“ segir
Páll. Hann segir mikinn hug í fé-
lagsmönnum og þeir séu tilbúnir til
að berjast. Rætt hefur verið um að
bæta við vinnustöðvunum. „Það er
enn verið að ræða það og síðan á eftir
að kjósa um það,“ segir Páll.
Fundur
BHM án
árangurs
Ekkert að gerast
að svo stöddu
Páll Halldórsson
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Hætta er á að almennt viðhald og
umhirða Kirkjugarða Reykjavík-
urprófastsdæmis verði ekki með
þeim hætti sem æskilegt er í sumar.
Þórsteinn Ragnarsson, forstjóri
Kirkjugarða Reykjavíkurprófasts-
dæmis, segir aðeins hægt að ráða
110 sumarstarfsmenn en almennt
hafi starfað 160 til 170 ungmenni yf-
ir sumartímann hjá kirkjugörð-
unum. „Hér voru yfir 200 manns í
sumarstarfi þegar ég kom til starfa
árið 1995 og eftir það 160-170 á
hverju sumri. Núna er staðan hins
vegar sú að við getum ekki ráðið
fleiri en 110 sumarstarfsmenn
vegna fjárskorts en á sama tíma
hefur það svæði sem við þurfum að
sinna stækkað og verkefnum fjölg-
að,“ segir Þórsteinn en fækkun
sumarstarfsmanna hefur þær afleið-
ingar að ekki verður hægt að halda
uppi ákjósanlegu viðhaldi í sumar.
„Það er alveg ljóst að garðarnir
verða lubbalegri því við höfum ekki
mannskapinn til að sinna þeirri um-
hirðu sem við teljum ákjósanlega.
Engu að síður munum við halda
görðunum við og gera það sem við
getum til að halda þeim fallegum og
snyrtilegum,“ segir Þórsteinn en
framlag ríkisins til kirkjugarða hef-
ur verið skorið niður sjö ár í röð.
Fjárskortur dregur úr viðhaldi
Kirkjugarðar Reykjavíkurprófastsdæmis geta ekki mannað sumarstörf sem skyldi
Morgunblaðið/ÞÖK
Vinna Ungmenni í sumarvinnu.