Morgunblaðið - 14.04.2015, Blaðsíða 24
24 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 2015
Þá er áróðurs-
herferðin með einhliða
drottningarviðtölum
um bólusetningar loks-
ins búin hjá DV, RÚV
og fleiri fjölmiðlum.
Maður á ekki von á að
þetta fjölmiðlalið slysist
til þess að ræða við eitt
einasta fórnarlamb, og
enn síður andstæðinga
bólusetninga. Eins og
komið hefur í ljós er
hér nánast lítil sem engin rannsóknar-
blaðamennska hjá þessum fjöl-
miðlum. En hvers vegna er ráðist í
svona einhliða áróðursherferðir með
ósannfærandi umfjöllun um dr. And-
rew Wakefield, þegar Wake Forest
háskóli í Norður-Karólínu hefur kom-
ist að sömu niðurstöðum og Wakefield
birti 1998? Í öllum þessu áróðri fyrir
auknum taugaeiturefnabyrlunum
ásamt núna hugsanlegum þvingunum
er máli Andrew Wakefield sér-
staklega haldið á lofti, en hvers vegna
hefur þetta sama lið ekki komið með
einhver svör við niðurstöðum sem
Wake Forest háskólinn birti? Í sjálf-
stæðari rannsókn sem David L. Lewis
gerði og birti í bók sinni Science for
sale, er algjörlega búið að gera útaf
við allar ásakanirnar og þvæluna sem
Brain Deer og breska læknablaðið
kom með gegn Wakefield. En hvað
kemur til í öllum þessum áróðri að
ekkert var fjallað um niðurstöðurnar
er vísindamaðurinn dr. Poul Thorsen
falsaði sérstaklega til þess eins þá að
reyna afsanna að MMR bóluefnið
valdi einhverfu? Nú og þar sem að
Thorsen hefur verið ákærður og bíður
dóms eftir að hafa átt stóran þátt í að
framleiða sviksamlegar rannsóknir og
ýmislegt annað. Hvers vegna var ekki
talað við foreldra er tóku eftir ein-
hverfu hjá börnum sínum fljótlega
eftir bólusetningar? Því það er orðið
svo mikið um svona mál að mæður eru
ekki bara að tala um þetta, heldur
farnar að gefa út bækur eins og td.
bókin Thinking Moms’ Revolution er
fjallar um upplifanir hjá börnum
þeirra fyrir og eftir bólusetningar.
Tengsli á milli bólu-
efna og einhverfu
Í öllum þessum
áróðri, hvers vegna er
ekki minnst á 86 vísinda-
niðurstöður er benda á
tengsl einhverfu við
bólusetningar
(scribd.com/
doc/220807175/86-
Research-Papers-
Supporting-the-
Vaccine-Autism-Link)?
Hvers vegna var ekkert
talað um 22 læknarann-
sóknaniðurstöðurnar er segja beint,
að bóluefni hafi og geti valdið ein-
hverfu (activistpost.com/2013/09/22-
medical-studies-that-show-vacc-
ines.html). Eins og áður segir þá hef-
ur þessi fjölmiðlaumræða algjörlega
verið einhliða og ekki hægt að tala um
rannsóknarblaðamennsku, þar sem að
þessir fjölmiðlar sækjast bara eftir
því að hafa drottningarviðtöl og allt
gufusoðið og matreitt ofan í áhorf-
endur. Stórhneykslismál á borð við
játningu vísindamannsins dr. William
W. Thompson er starfaði hjá
Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna hef-
ur ekkert verið fjallað um. En á hljóð-
upptökunni með honum kemur fram
að hann hafi mikla sektarkennd þegar
hann sér börn með einhverfu, og við-
urkennir að hafa verið hluti af vanda-
málinu með því að hafa tekið þátt í því
að ljúga og fjarlægja niðurstöður. Þó
að hljóðupptökurnar milli vísinda-
manna Brian Hooker og Thompson
séu hugsanlega ólöglegar, þá eru þær
mikilvæg sönnunargögn. Vísinda-
konan dr. Helen Ratajaczak bendir á
og segir, að DNA úr mannavefjum
sem notað er í 23 tegundum bóluefna
geti valdið heilabólgum, og hún er á
því að þessar bólgur geti varið alla
ævina (CBS News 1. apríl 2011).
Dómsúrskurðir segja að bóluefni
hafi og geti valdið einhverfu
Heilbrigðisyfirvöld hér láta sem að
MMR bóluefnið sé öruggt og reyna að
koma því inn á fólk með hjarðónæm-
isbulli, og svo fer Embætti landlæknis
fram á að fólk skrifi undir ábyrgð fyrir
barninu ef foreldrar eða forráðamenn
hafna bólusetningu. En þegar menn
hjá Embætti landlæknis eru spurðir
um að skrifa undir persónulega fjár-
hagslega ábyrgð fyrir þessum bólu-
setningum, þá hafna þeir allri
ábyrgð. Í Bretlandi, Bandaríkjunum
og Ítalíu eru komnir fram dóms-
úrskurðir er segja beint að MMR
bóluefnið hafi og geti valdið ein-
hverfu. Í því sambandi má nefna
nöfn, eins og t.d. Ryan Mojabi, Emily
Moller, Hannah Poling, Robert
Fletcher og Bailey Banks er öll hafa
fengið umtalsverðar bætur eftir
dómsúrskurði. Eitt af hverjum 50
börnum i Bandaríkjunum í dag er tal-
ið að sé með einhverfu, og vitað er til
þess að greiddar hafa verið skaða-
bætur skv. dómsúrskurðum í 357
málum eftir MMR bóluefnið. Þegar
að bólusetningar byrjuðu í Japan
fljótlega eftir 1945 komu upp öll þessi
einhverfutilfelli, en einhverfa var
eitthvað sem fólk þarna hafði aldrei
séð eða heyrt um áður. Þegar að Kína
gerðist aðili að Alþjóðaviðskipta-
stofnuninni 2001 þá byrjaði nýja „Óp-
íum-stríðið“ með bóluefnum, og ein-
hverfa sem menn höfðu aldrei séð eða
heyrt um áður var komin út um allt.
Amish fólkið í Bandaríkjunum er
þekkt fyrir að bólusetja ekki, og
reyndar þá þekkist ekki einhverfa
meðal Amish fólksins, nema ef við
tölum um þá þrjá einstaklinga með
einhverfu er komu frá iðnaðarborg-
um. Þetta segir okkur einfaldlega að
bóluefni eru ekki örugg, þrátt fyrir
að heilsugæsluyfirvöld hér reyni að
segja annað með því að hafa leiðbein-
ingar (package insert) ekki aðgengi-
legar frammi á heilsugæslustöðvum,
og þar sem að heilsugæslufólk hér
kynnir aldrei innihaldslýsingar frá
framleiðanda bólefnanna áður en
börn eru bólusett.
Bólusetningaáróður
og dómsúrskurðir
Eftir Þorstein Sch.
Thorsteinsson » Bóluefni eru ekki
örugg, þrátt fyrir að
heilsugæsluyfirvöld hér
reyni að segja annað.
Þorsteinn Sch.
Thorsteinsson
Höfundur er margmiðlunarfræðingur
og meðlimur í félagi áhugamanna um
bólusetningar.
Rauða fjöðrin verð-
ur seld um allt land
næstkomandi helgi,
17.-19. apríl. Að vanda
stendur Lionshreyf-
ingin á Íslandi fyrir
fjáröfluninni og verður
söfnunarfénu að þessu
sinni varið til kaupa á
leiðsöguhundum fyrir
blinda og sjónskerta.
Verkefnið er unnið í samstarfi við
Blindrafélagið og Þekkingar- og
þjónustumiðstöð fyrir blinda og
sjónskerta einstaklinga en knýj-
andi þörf er fyrir fleiri slíka
hunda hér á landi. Hundarnir fara
í gegnum afar umfangsmikla og
sértæka þjálfun og kostnaður við
hvern hund er umtalsverður, eða
um 8-10 milljónir króna.
Lions er fyrst og fremst félags-
skapur fólks sem vill rækta vin-
áttu sína og láta um leið gott af
sér leiða og var rauða fjöðrin fyrst
seld hér á landi af Lionsfólki árið
1972. Þá var söfnunarfénu varið á
tvennan hátt eins og sagði í frétt
Morgunblaðsins sunnudaginn 9.
apríl það ár: „Í fyrsta lagi til
kaupa á tækjum fyrir læknishér-
uðin úti á landsbyggðinni, til af-
nota fyrir héraðslækna og þá
augnlækna, sem fara munu í augn-
lækningaferðalög um landið. Í
öðru lagi verður fénu varið til
tækjakaupa fyrir augndeild
Landakotsspítala.“
Þessi ráðstöfun fjármunanna
var og er í anda Lionshreyfing-
arinnar en hún hefur frá upphafi
sett þjónustu og stuðning við
blinda og sjónskerta í öndvegi. Til
dæmis má nefna að í síðustu söfn-
un, árið 2011, var safnað fyrir
hönnun á talgervli sem tekinn var
í gagnið í kjölfarið og hefur síðan
skipt sköpum hvað
varðar samskipti, öfl-
un og miðlun upplýs-
inga meðal blindra
og sjónskertra.
Lionsfólk um allt
land mun á næstu
dögum ganga í hús
og vera áberandi á
fjölförnum stöðum
með Rauðu fjöðrina
til sölu. Þeim sem
ekki hafa tiltækt
lausafé eða greiðslukort gefst
kostur á að leggja verkefninu lið
með því að leggja beint inn á
reikning hreyfingarinnar, greiða
valgreiðslu í heimabanka eða
hringja í söfnunarnúmer. Allar
upplýsingar um þessar leiðir er að
finna á www.lions.is.
Það er einlæg ósk okkar í
Lionshreyfingunni að landsmenn
taki söfnunarfólki okkar vel og
leggi söfnuninni lið, hvort sem það
er með kaupum á rauðri fjöður,
greiðslu í heimabanka eða með því
að hringja í söfnunarsíma.
Innilegar þakkir færum við öll-
um þeim sem leggja lóð sín á
þessar vogarskálar og taka um
leið þátt í því að auðvelda blindum
og sjónskertum virka þátttöku í
samfélaginu og auka lífsgæði
þeirra svo um munar.
Rauða fjöðrin seld
til að safna fyrir
blindrahundum
Eftir Tryggva
Kristjánsson
Tryggvi Kristjánsson
» Lionshreyfingin
safnar um komandi
helgi fyrir leiðsögu-
hundum fyrir blinda og
sjónskerta með sölu á
Rauðu fjöðrinni.
Höfundur er fjölumdæmisstjóri
Lions á Íslandi.
- með morgunkaffinu
Margt aprílgabbið
getur verið bara
skemmtilegt og
stundum ruglað fólk
svolítið í ríminu og
látið það hlaupa apríl,
sem jú auðvitað er til-
gangurinn í flestum
tilfellum og vonandi
án nokkurs skaða,
nema þá saklaus
hlátrasköll.
Eitt aprílgabb var það, að mér
fannst, sem upp úr stóð að þessu
sinni. Var það hjá samfylkingar-
blaðinu, sem kallast Fréttablaðið
og er því augljóslega ekki alltaf alls
varnað, en það var gabbið um að
búið væri að flytja inn úlfalda, svo
líklegt sem það var nú, og Fiski-
kóngurinn væri búinn að afla sér
kjötsins af dýrinu þeg-
ar búið væri að skera
það og rjóða blóði þess
yfir tiltekna moskulóð.
Viðskiptavinir Fiski-
kóngsins gripu auðvit-
að í tómt en fengu dýr-
indis fiskbollur í
staðinn – ekki fylgdi
sögunni hvort boll-
urnar hefðu hlotið
blessun múslíma. Einn
úr „múslímafjölskyld-
unni“ í borgarstjórn
Reykjavíkur, sjálfur borgarstjórinn
Dagur B. Eggertsson, var sagður
eiga að taka fyrstu skóflustunguna
og get ég rétt ímyndað mér að aðr-
ir úr fjölskyldunni eða „múslím-
arnir“, þau Björn Blöndal og Sóley
Tómasdóttir, hefðu ekki verið óra-
langt í burtu frá þessari „hátíðar-
stund“.
Þetta var vissulega skemmtilegt
aprílgabb en ekki fylgir sögunni að
margir hafi hlaupið.
Borgarstjóri
í aprílgabbi
Eftir Hjörleif
Hallgríms
Hjörleifur Hallgríms
» Það eina, sem ég
hefði getað trúað,
var að borgarstjórinn
hefði tekið fyrstu
skóflustunguna.
Höfundur er framkvæmdastjóri.
ÞREKHJÓL
FRÁBÆR LEIÐ TIL HEIMAÞJÁLFUNAR
Veit á vandaða lausn
Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16. Opið mán - fös 8.30 - 17.00
Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is
F
A
S
T
U
S
_
H
_
2
9
.0
4
.1
5
• Þrekhjól Cardio XTR
• Stærð 95x55x129 cm
• Þyngd 32kg
• Hámarksþyngd notanda 130kg
• Þjálfunarálag 35-260 Wött
• Hægt að stilla inn efri mörk hjartsláttar
• Púlsmælir í handföngum
• Skjár sýnir: Vegalengd, tíma, hraða,
snúning/mín., hitaeiningar og púls.
Verð kr. 99.000,- m.vsk.
HAMMER CARDIO