Morgunblaðið - 14.04.2015, Síða 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 2015
Sigríður Inga Sigurðardóttir er fædd og uppalin í Skuld í Vest-mannaeyjum og ætíð kölluð Sigga í Skuld. Hún er ein á lífi úrellefu systkina hópi, en foreldrar hennar voru Ingunn Jón-
asdóttir frá Helluvaði á Rangárvöllum og Sigurður Pétur Oddsson
sem var fæddur á Krossi í Landeyjum. Hún hefur alla tíð borið ein-
stakan hug og kærleika til foreldra sinna og hefur haft gaman af því
að segja frá þeim. Sérstaklega var hún tengd föður sínum og ljómar
öll þegar hún minnist hans.
Sigríður giftist ung Ingólfi Theódórssyni, netagerðarmeistara frá
Siglufirði, og studdi hann dyggilega í hans starfsframa og rekstri
netagerðarinnar Ingólfs, allt fram til hans dauðadags árið 1988.
Sigríður rak í yfir 20 ár Gistiheimilið Hvíld í Vestmannaeyjum og
var þar annáluð fyrir gestrisni og höfðingsskap. Hún tók sig svo upp
fyrir 14 árum og flutti á höfuðborgarsvæðið til að vera í nálægð við
afkomendur sína. Hún býr nú á fallegu heimili í Grafarvoginum í
Reykjavík og nýtur þar návista við góðan vin sinn, Sverri Benedikts-
son. Það sem hefur einkennt hana er mikill dugnaður og kraftur,
sem hún býr enn að í dag.
Sigríður ætlar að fagna tímamótunum laugardaginn 18. apríl í sal
Bridgesambands Íslands í Síðumúla 37, 3. hæð, kl. 15-18. Hún af-
þakkar blóm, en fjölskylda og vinir eru boðnir hjartanlega velkomn-
ir að koma og njóta dagsins með henni.
Sigríður Inga Sigurðardóttir er níræð í dag
Sigga í Skuld Hún fæddist og ólst upp í Skuld í Vestmannaeyjum en
flutti upp úr aldamótunum á höfuðborgarsvæðið.
Kraftur og dugnað-
ur einkennir hana
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Kópavogur Isabella Diljá
Torres fæddist 23. febrúar
2014 kl. 15.18. Hún vó 3.485
g og var 50 cm löng. For-
eldrar hennar eru Edda Ósk
Aradóttir og Carlos Torres.
Nýr borgari
Á
rni fæddist á Ísafirði
14.4. 1940. Að loknu al-
mennu námi stundaði
hann flugnám um tíma í
Reykjavík, kynntist
blaðamennsku í Bandaríkjunum og
lauk áfanga í heilsuhagfræði við
Endurmenntunarstofnun HÍ 1996.
Árni var blaðamaður við Alþýðu-
blaðið, fréttastjóri þar 1959-63 og
ritstjóri blaðsins 1976-77 og 1985-87.
Hann var fréttamaður og varafrétta-
stjóri við Ríkisútvarpið 1963-76 og
fór þá m.a. til Víetnam, þar sem stríð
stóð sem hæst. Hann var fréttarit-
stjóri Vísis um tíma, alþingismaður
Norðurlands eystra fyrir Alþýðu-
flokkinn 1978-83 og 1987-91 og vara-
þingmaður 1983-87.
Árni starfaði hjá Hjálparstofnun
kirkjunnar í hungursneyðinni í Eþí-
ópíu 1985, var formaður Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar 1986-90, fram-
kvæmdastjóri Slysavarnafélagsins
um tíma og framkvæmdastjóri
Heilsustofnunar NLFÍ 1992-2004 og
stóð þá fyrir mikilli uppbyggingu og
endurbótum hjá stofnuninni.
Árni Gunnarsson, fyrrv. framkvæmdastjóri og alþm. – 75 ára
Fjölskyldan Árni með eiginkonunni og dætrunum tveimur, Hrefnu Filippusdóttur, Gunnhildi og Sigríði Ástu.
Á draum um heilsuþorp
Fréttamaðurinn Árni í Víetnam er hann var fréttamaður á Ríkisútvarpinu.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.
11.600
5.800 12.990
26.900
26.900
39.200
8.990
Bankastræti 12 | 101 Reykjavík | Sími 551 4007skartgripirogur.is
Fallegt úr
í fermingarpakkann