Morgunblaðið - 14.04.2015, Qupperneq 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 2015
Þýski rithöfundurinn Günter Grass
lést í gær í Lübeck, 87 ára að aldri.
Grass var einn kunnasti rithöfundur
Evrópu á seinni hluta 20. aldar, virt-
asti höfundur Þýskalands, og hlaut
bókmenntaverðlaun Nóbels árið
1999. Verðlaunin hlaut hann ekki
síst fyrir höfuðverk sitt, Die Blech-
trommel, Blikktrommuna, sem kom
út árið 1959. Kvikmyndagerð sög-
unnar, frá 1979, hlaut bæði Óskars-
verðlaun sem besta erlenda kvik-
myndin og Gullpálmann í Cannes.
Grass kom til Íslands sem gestur
Bókmenntahátíðar í Reykjavík árið
2000, tók þá þátt í samræðum á há-
tíðinni og ræddi við lesendur.
Günter Grass var fjölhæfur lista-
maður. Hann var menntaður í graf-
ík og steinhöggi og skrifaði skáld-
sögur, leikrit og ljóð. Hann var
fæddur í borginni Danzig, sem þá
var í Þýskalandi en nefnist nú
Gdansk og er í Póllandi. Eftir að
hafa þjónað síðustu mánuði seinni
heimsstyrjaldarinnar í SS-sveitum
nasista var hann handtekinn af
Bandaríkjamönnum og sat í varð-
haldi í tæpt ár. Árið 2006 greindi
Grass frá þátttöku sinni í SS-
sveitunum og vakti það talsverðar
deilur og þótti sumum gagnrýn-
endum sem hann hefði farið á bak
við þjóð sína með því að greina ekki
fyrr frá því.
Eftir að hafa lokið myndlistar-
námi tók Grass að skrifa á sjötta
áratugnum. Kunnustu verk hans er
svokallaður Danzig-þríleikur, þar
sem sögusviðið er heimur æsku
hans: Blikktromman, sem hefur ver-
ið lýst sem lykilverki evrópsks
töfraraunsæis, Katz und Maus
(1961), Köttur og mús í þýðingu
Guðrúnar B. Kvaran, og Hunde-
jahre (1963).
Í Mein Jahrhundert (1999) fjallar
Grass um marga öfgafyllstu við-
burði 20. aldar og í nóvellunni Im
Krebsgang (2002), Krabbagangur í
þýðingu Bjarna Jónssonar, sem
hlaut mikið lof og seldist vel, sneri
hann aftur til sögusviðs þríleiksins
og fjallar um skip fullt af þýskum
flóttamönnum sem eru fórnarlömb
styraldarinnar. Þá hafa endurmin-
ingabækurnar Beim Häuten der
Zwiebel (2006) og Die Box: Dunkel-
kammergeschichten (2008) hlotið
verðskuldað lof.
Allt sama blekið
Í samtali Fríðu Bjarkar Ingv-
arsdóttur og Grass, sem birtist í
Morgunblaðinu 13. september árið
2000, kemur glögglega í ljós hvað
myndlistin var honum mikilvæg.
„Í handritum mínum, sem ég
skrifa með penna, teikna ég oft
myndir inn á milli setninganna,“ út-
skýrir Grass. „Myndirnar eru þá til
þess að útlista ákveðnar kring-
umstæður, ljá söguhetju persónu-
leika eða til þess að gefa ákveðnum
hópi fólks hlutverk í sögunni. Þegar
teikningin er nægilega skýr held ég
áfram að skrifa og þannig þróast
handritið. Það eru því sterk tengsl á
milli þess myndræna og þess sem
ég skrifa í mínu vinnuferli […]
Blaðamenn spyrja mig alltaf
hvort ég sé frekar rithöfundur held-
ur en myndlistarmaður og vilja
þannig láta mig gera upp á milli, en
í mínum augum er þetta allt sama
blekið.“
Og hann sagði að í sínum augum
væri fantasían hluti af raunveruleik-
anum – þess sér glögglega stað í
glæstu höfundarverki Günter Grass.
efi@mbl.is
Sagði fantasíuna hluta
af raunveruleikanum
Þýski nóbelshöfundurinn Günter Grass látinn
Morgunblaðið/Golli
Nóbelskáldið Günter Grass er þekktastur fyrir Danzig-þríleikinn.
Kvartett söngkonunnar Kristjönu
Stefánsdóttur kemur fram í kvöld á
djasskvöldi Kex hostels og hefjast
tónleikarnir kl. 20.30. Auk Krist-
jönu skipa kvartettinn Ómar Guð-
jónsson sem leikur á gítar, Valdi-
mar Kolbeinn Sigurjónsson sem
leikur á kontrabassa og Magnús
Tryggvason Elíassen sem leikur á
trommur. Kvartettinn mun flytja
fjölbreytta blöndu af djass- og blús-
tónlist. Tónlistin hefst kl. 20.30 og
stendur í u.þ.b. 2 klst. með hléi. Að-
gangur er ókeypis. KEX Hostel er á
Skúlagötu 28.
Á Kexi Kristjana Stefánsdóttir
kemur fram með kvartetti sínum á
Kex hosteli í kvöld kl. 20.30.
Djass og blús
með kvartetti
Kristjönu Píanóleikararnir Birna Hallgríms-
dóttir og Eva Þyri Hilmarsdóttir
leika verk fyrir tvö píanó á tón-
leikum í Salnum í Kópavogi í kvöld
kl. 19. Á efniskránni verða verk eftir
Debussy, Milhaud, Arvo Pärt og Lu-
toslawski.
Tónleikarnir eru hluti af tónleika-
röðinni TKTK. Almennur aðgangs-
eyrir er 2.000 kr. en frítt er fyrir
nemendur Tónlistarskóla Kópavogs
og aðstandendur þeirra.
Birna lauk BA- gráðu frá Listahá-
skóla Íslands árið 2006 og meistara-
prófi frá Royal College of Music í
London árið 2009 auk þess að hafa
stundað nám við tónlistarháskóla í
Kuopio í Finnlandi og Stavanger í
Noregi. Hún starfar við píanó-
kennslu í Tónlistarskóla Kópavogs
og við Tónmenntaskóla Reykjavík-
ur. Eva Þyri lauk píanókennaraprófi
og burtfararprófi frá Tónlistarskól-
anum í Reykjavík og diplómaprófi
og einleikaraprófi frá Tónlistarhá-
skólanum í Árósum í Danmörku
undir handleiðslu John Damgaard.
Hún stundaði MA-nám í meðleik við
The Royal Academy of Music í
London, útskrifaðist með hæstu ein-
kunn og hlaut heiðursnafnbótina
DipRAM og The Christian Carpen-
der Piano Prize fyrir framúrskar-
andi lokatónleika.
Píanóleikarar Eva Þyri Hilmarsdóttir og Birna Hallgrímsdóttir.
Eva Þyri og Birna
leika á tvö píanó
Sænski ljósmyndarinn Lars Tun-
björk er látinn, 59 ára að aldri.
Tunbjörk hefur á síðustu tveimur
áratugum verið einn kunnasti ljós-
myndari Svía, og Norðurlanda, og
hafa verk hans birst jöfnum hönd-
um í bókum, tímaritum og á veggj-
um virtra sýningarsala. Tunbjörk
sendi nokkrar bækur frá sér á ferl-
inum og kom sú þekktasta, Landet
utom sig, út árið 1993. Meðal ann-
arra merkra verka hans má nefna
Kontor (2002), I love Borås! (2006)
og Vinter (2007).
Gagnrýnendum hefur þótt Tun-
björk hafa einstaka sýn á umhverfi
sitt, sýn sem hann tjáði í litríkum og
á tíðum súrrealískum ljósmyndum.
Dægurmenning heimalands hans
var ekki síst gjöfult viðfangsefni,
þar sem listamaðurinn náði á ein-
stakan hátt að draga fram skopleg-
ar hliðar á verslunarmiðstöðvum
sem úthverfum. efi@mbl.is
Sýndi skoplegar hliðar mannlífsins
Slyngur Sænski ljósmyndarinn Lars
Tunbjörk er látinn, 59 ára að aldri.
Jesús, sem að dauðann deyddir er yfirskrift
hádegistónleika sem haldnir verða í Hafn-
arfjarðarkirkju í dag milli kl. 12.15 og
12.45. Þar leikur Douglas A. Brotchie á
bæði orgel kirkjunnar. Á efnisskránni eru
Hymne eftir Joseph Canteloube, Choral-
Improvisation ‘Freu dich sehr, O meine
Seele’ Op. 65/5 eftir Sigfrid Karg-Elert,
Partita ‘Freu dich sehr, O meine Seele’ eftir
Georg Böhm og Praeludium D dúr BuxWV
139 eftir Dietrich Buxtehude.
Aðgangur er ókeypis og að vanda er boð-
ið upp á kaffisopa að tónleikum loknum.
Hádegistónleikar í Hafnarfjarðarkirkju
Organisti Douglas A. Brotchie.
Skáldyrðingar á 19. öld – Aðferðir
og viðfangsefni er yfirskrift fyrir-
lesturs sem Sigurður Gylfi Magn-
ússon, prófessor í menningarsögu
við HÍ, flytur í fyrirlestrasal Þjóð-
minjasafnsins í dag kl. 12.
„Sigurður Gylfi mun skýra út
hugtakið skáldyrðingar sem komið
er frá Magnúsi Hj. Magnússyni sem
gekk undir nafninu Skáldið á Þröm.
Fólk sem orti, skrifaði upp texta
frá liðinni tíð og vann fræðilegt efni
af ýmsum toga kallaði Magnús
skáldyrðinga. […] Í fyrirlestri sín-
um mun Sigurður Gylfi skoða
hvernig hægt sé að meta framlag
þessa fólks til íslenskrar menningar
og hvort íslensk háskólafræði hafi
gefið efni þeirra nægilegan gaum,“
segir m.a. í tilkynningu.
Aðgangur er ókeypis.
Skáldyrðingar á 19. öld til skoðunar
Morgunblaðið/Ásdís
Prófessor Sigurður Gylfi Magnússon.
Billy Elliot (Stóra sviðið)
Fim 16/4 kl. 19:00 14.k Þri 5/5 kl. 19:00 Mið 20/5 kl. 19:00
Fös 17/4 kl. 19:00 15.k Mið 6/5 kl. 19:00 Fim 21/5 kl. 19:00
Sun 19/4 kl. 19:00 aukas. Fim 7/5 kl. 19:00 Fös 22/5 kl. 19:00
Mið 22/4 kl. 19:00 Fös 8/5 kl. 19:00 Mán 25/5 kl. 19:00
Fim 23/4 kl. 19:00 Lau 9/5 kl. 19:00 Mið 27/5 kl. 19:00
Fös 24/4 kl. 19:00 Sun 10/5 kl. 19:00 Fös 29/5 kl. 19:00
Sun 26/4 kl. 19:00 Mið 13/5 kl. 19:00 Lau 30/5 kl. 19:00
Mið 29/4 kl. 19:00 Fim 14/5 kl. 19:00 Sun 31/5 kl. 19:00
Fim 30/4 kl. 19:00 Fös 15/5 kl. 19:00 Mið 3/6 kl. 19:00
Sun 3/5 kl. 19:00 Sun 17/5 kl. 19:00 Fim 4/6 kl. 19:00
Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Lau 18/4 kl. 13:00 Sun 26/4 kl. 13:00 Sun 17/5 kl. 13:00
Sun 19/4 kl. 13:00 Sun 3/5 kl. 13:00
Lau 25/4 kl. 13:00 Sun 10/5 kl. 13:00
Síðustu sýningar leikársins
Er ekki nóg að elska? (Nýja sviðið)
Þri 14/4 kl. 20:00 aukas. Sun 26/4 kl. 20:00 14.k Sun 10/5 kl. 20:00 21.k
Mið 15/4 kl. 20:00 9.k Mið 29/4 kl. 20:00 15.k Þri 12/5 kl. 20:00 aukas.
Fim 16/4 kl. 20:00 10.k Fim 30/4 kl. 20:00 16.k Mið 13/5 kl. 20:00 22.k.
Fös 17/4 kl. 20:00 11.k Sun 3/5 kl. 20:00 17.k Fim 14/5 kl. 20:00 23.k.
Sun 19/4 kl. 20:00 aukas. Mið 6/5 kl. 20:00 aukas. Fös 15/5 kl. 20:00 aukas.
Mið 22/4 kl. 20:00 12.k Fim 7/5 kl. 20:00 18.k Fim 21/5 kl. 20:00
Fim 23/4 kl. 20:00 13.k Fös 8/5 kl. 20:00 19.k
Fös 24/4 kl. 20:00 aukas. Lau 9/5 kl. 20:00 20.k.
Nýtt verk eftir Birgi Sigurðsson höfund hins vinsæla leikrits Dagur vonar
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Lau 18/4 kl. 20:00 Lau 2/5 kl. 20:00 Fös 29/5 kl. 20:00
Lau 25/4 kl. 20:00 Lau 16/5 kl. 20:00
Stærsti smáglæpamaður Íslands stelur senunni
Beint í æð (Stóra sviðið)
Lau 18/4 kl. 20:00 Lau 2/5 kl. 20:00
Lau 25/4 kl. 20:00 Lau 16/5 kl. 20:00
Sýningum fer fækkandi
Hystory (Litla sviðið)
Fös 17/4 kl. 20:00 Mið 29/4 kl. 20:00 6.k. Fös 15/5 kl. 20:00
Sun 19/4 kl. 20:00 aukas. Fös 8/5 kl. 20:00 Mið 20/5 kl. 20:00
Fös 24/4 kl. 20:00 5.k. Fim 14/5 kl. 20:00
Nýtt íslenskt verk eftir Kristínu Eiríksdóttur
Billy Elliot –★★★★★ , S.J. Fbl.