Morgunblaðið - 15.04.2015, Síða 35
nýju útgáfufyrirtæki, Eddu miðlun
og útgáfu, til 2003.
Eftir framhaldsnám í Bandaríkj-
unum varð Skúli framkvæmdastjóri
Samfylkingarinnar frá ársbyrjun
2006-2009, var alþingismaður 2009-
2013 og var þá meðal annars formað-
ur menntamálanefndar og síðar
varaformaður allsherjar- og mennta-
málanefndar Alþingis. Skúli færði
sig yfir í borgarmálin í lok þess árs,
var kjörinn borgarfulltrúi í kosning-
unum 2014, situr í borgarstjórn og
gegnir formennsku í skóla- og frí-
stundaráði Reykjavíkurborgar, auk
þess að sitja í forsætisnefnd borg-
arinnar, stjórnar Reykjavíkur bók-
menntaborgar UNESCO og skóla-
málanefnd Sambands íslenskra
sveitarfélaga.
Skúli var í framboði til Stúdenta-
ráðs fyrir Röskvu og tók oddvitasæti
þar í kosningum 1991 þegar félagið
vann sinn fyrsta kosningasigur.
Hann var varaformaður Stúdenta-
ráðs 1991 og síðan framkvæmda-
stjóri Stúdentaráðs 1992. Skúli sat í
stjórn Félagsstofnunar stúdenta,
var aðalhvatamaður að stofnun Ný-
sköpunarsjóðs námsmanna og sat í
fyrstu stjórn hans, stjórn Háskóla-
bíós og var einn af stofnendum kvik-
myndaklúbbsins Hreyfimynda-
félagsins.
Skúli æfði knattspyrnu með Fram
upp í 2. flokk, tók þátt í stofnun
knattspyrnudeildar Skotfélags
Reykjavíkur ásamt gömlum fé-
lögum, sat í aðalstjórn Fram í
tengslum við 100 ára afmæli félags-
ins 2008 og sat svo í stjórn knatt-
spyrnudeildar Fram 2013-2015.
Fjölskylda
Eiginkona Skúla er Anna-Lind
Pétursdóttir, f. 29.11. 1971, dósent
við menntavísindasvið HÍ. Foreldrar
hennar: Gisela Rabe-Stephan, f. 6.2.
1943, framhaldsskólakennari á Ak-
ureyri, og Pétur Bjarnason, f. 4.1.
1939, d. 21.4. 1976, hafnarstjóri.
Synir Skúla og Önnu-Lindar eru:
Teitur Helgi Skúlason, f. 9.5. 1996,
framhaldsskólanemi, Bergur Máni
Skúlason, f. 25.4. 1999, grunnskóla-
nemi, og Pétur Glói Skúlason, f. 15.3.
2009, leikskólabarn.
Fyrri kona Skúla er Sif Einars-
dóttir, f. 12.2. 1966, dósent við félags-
vísindasvið HÍ.
Sonur Skúla og Sifjar er Darri
Skúlason, f. 24.11. 1988, háskólanemi
í Reykjavík;
Hálfsystir Skúla, sammæðra, er
Þórdís Bachmann, f. 18.11. 1949,
þýðandi í Danmörku.
Alsystkini Skúla eru Hallgrímur
Helgi Helgason, f. 22.12. 1957, leik-
skáld og þýðandi í Reykjavík, og
Helga Vala Helgadóttir, f. 14.3. 1972,
lögmaður í Reykjavík.
Foreldrar Skúla voru Helgi Skúla-
son, f. 4.9. 1933, d. 30.9. 1996, leikari
og leikstjóri í Reykjavík, og Helga
Bachmann, f. 24.7. 1931, d. 7.1. 2011,
leikkona og leikstjóri í Reykjavík.
Úr frændgarði Skúla Helgasonar
Skúli
Helgason
Guðný Jónsdóttir
húsfr. í Litlabæ
Jón Hallgrímsson
b. í Litlabæ á Álftanesi
Guðrún Jónsdóttir
Bachmann
klæðskeri í Rvík
Hallgrímur Bachmann
ljósameistari Þjóðleikh.
Helga Bachmann
leikkona og leikstj. í Rvík
Hallfríður Einarsdóttir
ljósmóðir
Stefán Egilsson
múrari í Rvík
Gísli Jónsson alþm.
Guðmundur Kamban rithöfundur
Björk
Guðmundsd.
söngkona
Rósa Bachmann
Jónsdóttir húsfr.
í Rvík
Hallfríður
Guðmundsd.
húsfr. í Rvík
Guðmundur
Gunnarsson
fyrrv. form.
Rafiðnaðar-
samb Íslands
Ragnheiður Skúladóttir
píanókennari
Kristrún
Skúladóttir
húsfr. í Rvík
Geir Jón Þórisson
vþm. og fyrrv.
yfirlögregluþjónn
Sigurður Sævars-
son skólastjóri
Tónlistarskólans
Móeiður
dóttir Skúla Thorarensen
læknis á Móeiðarhvolti
Ágúst Helgason
alþm. í Birtingarholti,
af Reykjaætt,
Sigríður Ágústsdóttir
húsfr. í Keflavík
Skúli Oddgeirsson
umsjónarm. í Keflavík
Helgi Skúlason
leikari og leikstj. í Rvík
Helga
dóttir Skúla Þorvarðar-
sonar alþm. í Berghyl
Oddleifur Jónsson
b. í Langholtskoti
Jóhann Smári
Sævarsson
óperusöngvari
Borgþór Jósefsson
bæjargjaldkeri Rvíkur
Þóra Borg
leikkona
Anna Borg
leikkona
Emelía Borg
leikkona
Geir Borg
forstj. Kol og salts
Sunna Borg
leikkona
Jón Bachmann
b. í Steinsholti, af ætt Skúla
Magnússonar landfógeta
Eggert Stefánsson
söngvari
Sigvaldi Kaldalóns
tónskáld og læknir
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 2015
ÖRYGGISVÖRUR
VERKTAKANS
KÍKTU Í KEMI OG SKOÐAÐU ÚRVALIÐ!
– Þekking og þjónusta í 20 ár
Kemi • Tunguhálsi 10 • 110 Reykjavík
www.kemi.is • Sími: 415 4000
Opið: Mánudag - fimmtudags: Frá kl. 8.00-17.30.
Föstudaga: Frá kl. 8.00-17.00.
Brynjólfur fæddist á Víðivöll-um í Skagafirði 15.4. 1810,sonur Péturs Péturssonar,
prófasts þar, og s.k.h., Þóru Brynj-
ólfsdóttur húsfreyju.
Báðir bræður Brynjólfs Fjölnis-
manns komust til æðstu metorða,
þeir Pétur Pétursson biskup, sem
varð einn auðugasti maður landsins,
og Jón Pétursson dómstjóri.
Brynjólfur útskrifaðist úr Bessa-
staðaskóla 1828 og lauk lögfræði-
prófi frá Kaupmannahafnarháskóla
1837. Hann var síðan búsettur í Dan-
mörku til æviloka. Eftir útskrift hóf
hann störf í Rentukammerinu, sem
var danska fjármálaráðuneytið, og
var skrifstofustjóri íslensku stjórn-
arskrifstofunnar í Kaupmannahöfn
frá 1848 til dauðadags. Hann var auk
þess fulltrúi Íslands á stjórnlaga-
þingi Dana 1848-49.
Brynjólfur er þó þekktastur fyrir
það að ganga í félag við þá Jónas
Hallgrímsson og Konráð Gíslason,
og skömmu síðar Tómas Sæmunds-
son, um að stofna tímarit, „árs-rit
handa Íslendingum“, sem þeir köll-
uðu Fjölni. Tímaritið kom fyrst út
árið 1835 og átti eftir að brjóta blað í
bókmenntasögu þjóðarinnar og
þjóðfrelsisbaráttu Íslendinga.
Þeir Fjölnismenn voru um margt
ólíkir. Tómas var framfarasinni í
anda fræðslustefnunnar, Jónas var
skáld, náttúrufræðingur og boðberi
rómantísku stefnunnar, Konráð mál-
fræðingur en Brynjólfur, sem skrif-
aði minnst í ritið, var öðrum fremur
framkvæmdastjóri. Mun hann og
hans fjölskylda hafa fjármagnað
Fjölni að mestu.
Brynjólfur sat í stjórn Hafnar-
deildar Hins íslenska bókmennta-
félags og forseti þess 1848-1851.
Brynjólfur lést 18.10. 1851.
Merkir Íslendingar
Brynjólfur Pétursson
Fjölnismenn Tómas, Brynjólfur, Konráð og Jónas Hallgrímsson.
102 ára
Inga Dagmar Karlsdóttir
90 ára
Sigurbjörg Hreiðarsdóttir
85 ára
Ingimar Bjarnason
Jónas Þór Pálsson
Sigrún Pálsdóttir
Sigurður Björnsson
80 ára
Gísli Jónsson
Heiðar Þorsteinsson
Jóhann Ólafsson
Jón Hólmgeirsson
Klara Elísabet Helgadóttir
Olga Jónsdóttir
Sigrún Jóhannsdóttir
75 ára
Alfreð Harðarson
Ástbjörg Ólafsdóttir
Guðrún Einarsdóttir
Guðrún L. Bergsveinsdóttir
Margrét Jónsdóttir
70 ára
Árni Hrafn Guðmundsson
Einar J. Halldórsson
Gunnlaugur Magnússon
Hallfríður Egilsdóttir
Hulda Matthíasdóttir
Ingveldur Erla Ormsdóttir
Naiyou Dong
Páll Árnason
Valur Steinn Þorvaldsson
Þórarinn Grímsson
Þórir Þórisson
60 ára
Arngunnur Regína
Jónsdóttir
Ástbjörn Jensson
Björn Austfjörð
Hallgrímur Hallgrímsson
Kristín Hjartardóttir
Oddný María Gunnarsdóttir
Ottó Guðmundsson
Páll I. Blöndal
Sigurbjörnsson
Sigurborg K. Kristjánsdóttir
Vitor Balduino De Sa
Carneiro
Þórdís Aradóttir
50 ára
Ástþór Ingi Ólafsson
Erla Sigurbjörnsdóttir
Guðmundur Karl Bóasson
Guðmundur S. Sighvatsson
Hulda Rós Sigurðardóttir
Jóna Jóhanna
Steinþórsdóttir
Nerijus Rimas
Yan Khanklai
Þórdís Una Gunnarsdóttir
Þuríður María Jónsdóttir
40 ára
Elsa Lind Jónsdóttir
Halldór Kristinsson
Inga Rósa Guðmundsdóttir
Ingvar Már Konráðsson
Jóna Guðný Eyjólfsdóttir
Róbert Heiðar Georgsson
Sigríður Ásta Guðjónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir
Suzana Krstic
Þórarinn B. Þórarinsson
30 ára
Baldvin Freyr Sigurjónsson
Erla Dögg Halldórsdóttir
Erna Mogensen
Kristjánsdóttir
Fannar Karl Ómarsson
Íris SigurðardóttirMaría
Kristjánsdóttir
Rósa Dröfn Guðgeirsdóttir
Sigrún Halla Gísladóttir
Svafa Mjöll Jónasardóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Kristín ólst upp í
Garðabæ, býr í Hafnar-
firði, lauk MS-prófi í rétt-
arsálfræði í Bretlandi og
er meðferðarráðgjafi á
Stuðlum.
Sonur: Ólafur Bjarni, f.
2013.
Systur: Íris Ósk, f. 1981,
og Birna Dís, f. 1992.
Foreldrar: Ólafur Ægis-
son, f. 1950, heildsali, og
Sigríður Einarsdóttir, f.
1958, heildsali. Þau búa í
Garðabæ.
Kristín Erla
Ólafsdóttir
30 ára Borgþór ólst upp í
Garðabæ, býr í Kópavogi,
lauk prófi í viðskiptafræði
frá HR og rekur ferða-
þjónustufyrirtæki.
Unnusta: Þorbjörg Erla
Halldórsdóttir, f. 1990,
lögreglumaður.
Foreldrar: Stefán Hall-
dórsson, f. 1961, fram-
kvæmdastjóri, og Signhild
Birna Borgþórsdóttir, f.
1963, ferðaþjónustu-
fulltrúi. Þau búa í Garða-
bæ.
Borgþór
Stefánsson
30 ára Jökull ólst upp í
Reykjavík, býr þar, lauk
sveinsprófi í rafvirkjun og
er tæknimaður hjá Epli.
Maki: Sólveig Valdemars-
dóttir, f. 1986, viðskipta-
fræðingur.
Sonur: Ísak Þór Jökuls-
son, f. 2014.
Foreldrar: Edda Hlín
Hallsdóttir, f. 1951, kaup-
maður, og Finnbogi Már
Gústafsson, f. 1952, húsa-
smiður. Þau búa í Reykja-
vík.
Jökull
Finnbogason