Morgunblaðið - 16.04.2015, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.04.2015, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 1 6. A P R Í L 2 0 1 5 Stofnað 1913  88. tölublað  103. árgangur  ÞRÓA HUG- BÚNAÐ FYRIR FLUGIÐNAÐINN LISTRÆN TILRAUNA- MENNSKA BARÁTTA GEGN NOTKUN PLASTPOKA TÓNLISTARHÁTÍÐIN TECTONICS 38 DÍSA OG GABRÍELA 10VIÐSKIPTAMOGGINN Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Hreinsun Jón Eggertsson, starfsmaður Mýrdalshrepps, við sandmokstur.  „Það hafa verið endalausir suð- vestanstormar frá því í haust og sandurinn safnast upp,“ segir Ás- geir Magnússon, sveitarstjóri Mýr- dalshrepps. Starfsmenn sveitarfé- lagsins eru þessa dagana að moka sandi af götum Víkur og sandi sem íbúðar moka úr görðum sínum. Tekur það marga daga en þetta er í annað skiptið í vetur sem það þarf að gera. Kostnaður er tölu- verður en til mikils er að vinna ef hægt er að hreinsa sandinn áður en hann fer í holræsin og veldur ennþá meiri usla og kostnaði. Sandurinn kemur úr fjörunni sem hefur verið að færast út vegna aðgerða til að hamla gegn land- broti. Landgræðslan áformar að dreifa áburði til að styrkja mel- gresið sem bindur sandinn og sá melgresi í nýju sandskaflana. Víðar hefur sandur fokið á land. Sandfok skapar til dæmis hættu á veginum við Óseyrarbrú. »16 Sandi mokað af götum Víkur og úr görðum bæjarbúa Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is „Saga landnáms Íslands er líklega flóknari en talið hefur verið,“ segir vesturíslenski fornleifafræðingurinn Kristján Ahronson. Hann kynnir í fyrirlestri í Háskóla Íslands í dag rannsóknir sem hann hefur gert á nokkrum þeirra mörgu manngerðu hella sem eru á Suðurlandi og krossum sem ristir hafa verið á veggi þeirra. Ásamt félögum sínum fann Kristján aðferð til að tímasetja hvenær Kverkhellir nærri Selja- landsfossi hefur verið gerður. Þeir leituðu að efninu sem mokað hefur verið úr hellinum, fundu hauginn og notuðu gjóskulög til tímasetningar. „Við fundum bæði landnámslagið svokallað og gjósku úr Kötlugosi fimmtíu til sextíu árum síðar. Það var mikilvægur fundur og þessi gjóskulög voru talsvert ofar en efnið sem mokað var út úr hellinum. Með því að nota viðurkenndar niður- stöður rannsókna á því hvernig jarðvegur safnaðist upp á þessum tíma höfum við tímasett gerð hellis- ins um árið 800,“ segir Kristján. Hann segir að við ættum að lesa Landnámabók, og þá landnámssögu sem þar er sett fram, með það í huga að hún hafi verið skrifuð í ákveðnum tilgangi. Þá hafa breskir sérfræðingar í krossum eins og finnast í hellum hér kannað krossa í Seljalands- hellum. Þeir segja mikil líkindi vera með krossum á svæðum nyrst á Ír- landi og í Norðvestur-Skotlandi. »39 Segir Kverkhelli frá um 800  Fornleifafræðingur kynnir rannsóknir á aldri manngerðra hella á Suðurlandi  Gjóskulög nýtast við aldursgreiningu  Krossarnir eins og á Bretlandseyjum Morgunblaðið/Rax Gamall Kverkhellir er frá um 800. Ljósmynd/Siemens AG Jáeindaskanni Læknar segja hann vanta tilfinnanlega hér á landi. Enginn jáeindaskanni er til hér á landi og það hefur margvísleg nei- kvæð áhrif á heilbrigðisþjónustu. Þetta eru þrír læknar, sem rætt er við í Morgunblaðinu í dag, sammála um. Tækið er notað til greiningar ým- issa sjúkdóma og er staðalbúnaður á sjúkrahúsum víða um heim. Árlega eru tugir Íslendinga sendir á Rík- issjúkrahúsið í Kaupmannahöfn til að fara í slíkan skanna. Að sögn Péturs Hannessonar, yf- irlæknis á röntgendeild Landspítala, er Ísland eina landið í N-Evrópu sem ekki á jáeindaskanna. Hann segir að vegna þess sé hér ekki veitt besta hugsanlega heilbrigðisþjónusta. Í sama streng tekur Tómas Guð- bjartsson, skurðlæknir á Landspít- alanum. Hann segir að tækið sé not- að í daglegum störfum krabbameinslækna nánast alls stað- ar nema hér. „Ég held til dæmis að það hafi heilmikil áhrif á hvað fáir læknar koma heim eftir sérnám,“ segir Tómas. Eyþór Björgvinsson röntgenlæknir skoðar nú að koma upp jáeindaskanna hér á landi og selja þjónustuna » 6 Ólíðandi að skanna vanti  Ísland eina landið í N-Evrópu sem ekki á jáeindaskanna Sauðburður er um það bil að komast í gang víða um land til sveita. Á bænum Árbæjarhjáleigu á Rangárvöllum eru fyrstu lömbin komin í heim- inn. Fengu þau alla athygli hjá heimasætunni Heklu, og vinkonunum Jóhönnu frá Þýskalandi og Miriam frá Sviss. Sauðburður að bresta á í sveitum landsins Morgunblaðið/RAX  Nafni veitingastaðarins Kaktus á Selfossi, sem hét Hrói Höttur, verð- ur í sumar breytt í Steakhouse surf and turf, grill and bar. Haraldur Bernharðsson, varafor- maður Íslenskrar málnefndar, seg- ir að sér finnist það vera afleit þró- un, hversu mjög það hefur færst í vöxt að íslenskum veitingastöðum séu gefin erlend nöfn. „Raunar held ég líka að það væri hyggilegra upp á viðskiptin að menn sæju sóma sinn í því að hafa nafngiftir á veit- ingastöðum á íslensku,“ sagði Har- aldur. Veitingamaðurinn segir að erlendir ferðamenn þurfi að skilja heiti veitingastaðanna. »9 Á að heita Steak- house turf and surf „Það eru frábær tíðindi að sterkir ár- gangar séu á leiðinni og í samræmi við væntingar okkar,“ segir Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrann- sóknastofnunar, um niðurstöður mælinga á þorski í togararalli. Niðurstöður úr togararalli benda til að ástand helstu botnfiska sé gott. Stofnvísitala þorsks mældist í ár sú hæsta frá upphafi stofnmælingar botnfiska árið 1985 og er nú tvöfalt hærri en árin 2002-2008. Athygli vekur að í togararalli í síð- asta mánuði fékkst meira af ýsu fyrir norðan land en sunnan. Árin 1985- 1999 fékkst alltaf mun meira af ýsu við sunnanvert landið, en þessi breyting hefur átt sér stað undanfar- inn áratug. Kolbeinn Árnason, framkvæmda- stjóri SFS, segir þetta gleðitíðindi þó hann vilji ekki auka aflaheimildir strax. „Ábyrg nýting er að skila sér og langtímamarkmið vonandi að nást. Ég held að við ættum að fara varlega að telja þetta í tonnum og bíða eftir ráðgjöfinni. En þetta gefur góðar vonir um framtíðina hvað sem þetta verður mikið nákvæmlega næsta fiskveiðiár.“ »19 Stórir þorsk- og ýsu- árgangar á leiðinni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.