Morgunblaðið - 16.04.2015, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 16.04.2015, Blaðsíða 29
er fallinn frá eftir langvarandi og erfið veikindi, sem höfðu mikil áhrif á líf hans og fjölskyldunnar, sérstaklega hin síðari ár. Björn giftist systur minni Bergljótu, en þau kynntust í Menntaskólanum á Akureyri, hann frá Siglufirði og hún frá Stykkishólmi. Bæði landsbyggð- arbörn með svipaða sýn á lífið og tilveruna. Þegar við Sölvi giftumst 1963 varð strax mikill og kærleiksríkur samgangur á milli fjölskyldna okkar og voru Bergljót og Björn alltaf boðin og búin að hjálpa ef með þurfti og var það gagn- kvæmt. Heimilin voru alltaf opin fjölskyldum þeirra og okkar. Mik- il vinátta myndaðist milli barna okkar sem haldist hefur þó að stundum skilji höf og lönd. Björn veiktist illa fyrir um 30 árum og þurfti að fara í hjarta- skurðaðgerð á Brompton-sjúkra- húsinu í London. Fór ég með þeim þangað til að vera með syst- ur minni á þessum erfiða tíma. Björn fór eftir þetta í margar að- gerðir og nú síðustu ár voru hon- um og fjölskyldunni mjög erfið. En fjölskyldan hefur alltaf staðið mjög þétt saman og hefur það verið mikil hjálp fyrir þau öll. Björn og Bergljót veittu mér og fjölskyldu minni ómældan stuðning í mínum veikindum og opnuðu heimili sitt svo ég og fjöl- skylda mín gætum haldið jól og nýárshátíð það árið, en mér var bannað að fara vestur á Tálkna- fjörð þar sem við áttum heima. Þau tóku alltaf vel á móti okkur með góðum mat og gleði. Þetta er dæmigert fyrir hjartahlýju þeirra. Við fjölskyldan höfum rifjað upp gleði- og grallarastundir sem við höfum átt saman, meðal ann- ars á ferðalögum og mörgum skemmtilegum uppákomum. Við þökkum innilega samfylgdina með Birni, allar gleði-og hjálpar- stundirnar og yljum okkur við minningarnar. Elsku Begga, Ásta, Pétur, Þóra og fjölskyldur. Við sam- hryggjumst ykkur innilega og vonum að almættið gefi ykkur styrk inn í framtíðina. Ragnheiður Ólafsdóttir og fjölskylda. Kær vinur og móðurbróðir er látinn. Björn var uppáhaldsfrændi minn. Ljúfmennska og æðruleysi einkenndu hann. Hann var ætt- fræðingur ættarinnar og gaf út bækur, þannig lagði hann til fjár- sjóð til komandi kynslóða, þekk- ingu sem eru mikilvæg í okkar samfélagi. Að vita hverra manna við erum og geta uppfrætt kom- andi kynslóðir. Björn og Bergljót kona hans. Hjónaband þeirra var yndislegt og virðingin og hlýjan streymdi frá þeim og ég kom alltaf ríkari af þeirra fundi með gleði í hjarta. Fjölskyldan er með dásamleg- an húmor og hugsar í lausnum. Þóra, dóttir Björns, söng á ynd- islegum tónleikum í gærkveldi á Akranesi. Hún var að syngja fyrir hann pabba sinn. Elsku Björn, þakka þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og mína fjölskyldu. Ég skal gera mitt besta fyrir stjörnuna þína, hana Bergljótu. Þín, Þóra Kristín. Í dag kveður stjórn og starfs- fólk Félags íslenskra bifreiðaeig- enda fyrrverandi formann félags- ins og einn sinna öflugustu liðsmanna og samstarfsmanna, Björn Pétursson, hinstu kveðju. Björn Pétursson var mjög fjöl- hæfur maður og átti sér fjölmörg áhugamál og hugsjónir sem sum- ar hverjar fundu sér farveg í starfi hans fyrir FÍB. Björn var á árum áður kennari á Akranesi en meðfram starfi sínu sá hann um fjármál og bókhald fyrir útgerð- arfyrirtæki og var jafnframt trúnaðarmaður og umboðsmaður FÍB í bænum. Þá var hann mik- ilvirkur ættfræðingur og eftir hann liggja mörg ættfræðirit. Björn var mjög félagslega sinnaður og ósérhlífinn. Sem trúnaðarmaður félagsins á Akra- nesárunum var hann mjög virkur í starfi þess. Hann rækti traust og gott samband við stjórn og starfs- fólk félagsins og lagði því til fjöldamargt sem allt miðaði að því að efla hag og lífsgæði fé- lagsmanna. Í bráðum 85 ára sögu sinni hefur FÍB ávallt haldið fast við grunngildi sín sem m.a. eru góðar samgöngur, örugg umferð og almennir hagsmunir bifreiða- eigenda og velferð félagsmanna. Björn var alla tíð trúr þessum gildum og greiddi þeim götu í störfum sínum, fyrst sem trúnað- armaður félagsins í sjálfboða- vinnu, sem ritari í stjórn FÍB og síðar sem formaður félagsins og starfsmaður. Björn var kjörinn formaður FÍB 1993 og hóf störf hjá félaginu það sama ár. Björn hafði þá áður komið að endurskipulagningu fjármála félagsins í kjölfar efna- hagserfiðleika á níunda áratug síðustu aldar. Félagið komst á réttan kjöl og skerpti á megin- stefnunni í daglegum rekstri, ekki síst út frá hagsmunum og þörfum félagsmanna. Björn lét af formennsku FÍB árið 1995 en hélt áfram störfum hjá félaginu allt þar til hann hætti störfum af heilsufarsástæðum árið 2003. Í formanns- og starfstíð Björns lét félagið sífellt meir til sín taka í samgöngu- og vegamálum og hagsmunamálum bifreiðaeig- enda, ekki síst gagnvart ríkis- valdinu. Björn tók sæti sem fulltrúi FÍB í ýmsum opinberum nefndum, m.a. nefnd sem fjallaði um mengunarmál. Neytendamál fengu stöðugt meira vægi og ferðamálaráðgjöf varð að föstum lið í starfseminni og er enn. Björn bjó yfir yfirburðaþekkingu á sam- göngu- og vegamálum og sömu- leiðis ferðamálum, bæði á Íslandi sem erlendis. Hann stjórnaði nokkrum námskeiðum á vegum FÍB í samvinnu við Umferðarráð, tryggingafélög o.fl. í ferðalögum og akstri erlendis. Þeir félagsmenn sem nutu þjónustu Björns Péturssonar minnast hans með hlýju fyrir það hve vel hann tók á móti þeim og hve vel hann greiddi götu þeirra í hvívetna. Stjórn og samstarfsfólk hans hjá FÍB minnast hans sömu- leiðis með hlýju og þakklæti og senda ástvinum hans einlægar samúðarkveðjur. F.h. stjórnar og starfsmanna FÍB, Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Kær vinur er fallinn frá eftir löng og ströng veikindi. Okkar kynni hófust er við gerðumst kennarar við Brekkubæjaskóla (sem þá hét Barnaskóli Akra- ness). Mig vantaði pössun fyrir dóttur mína og spurði hvort kon- una hans vantaði ekki vinnu. Hann sagði að ég skyldi bara koma eftir kennslu og tala við hana og það varð úr að hún tók telpuna að sér þar til þau eign- uðust sitt fyrsta barn, hana Ástu, þremur mánuðum síðar. Seinna komu svo Pétur og Þóra og bera þau öll foreldrum sínum fagurt vitni . Ekki fékkst hún til að taka við neinum vinnu- launum fyrir pössunina en þarna mynduðust sterk vináttubönd sem aldrei bar skugga á alla þessa rúmlega fimm áratugi sem liðnir eru síðan. Eftir nokkur ár í kennslu breytti Björn um starfs- vettvang og sneri sér að bókhaldsstörfum en ég kann ekki að nefna þau fyrirtæki sem hann starfaði fyrir. En hugurinn var opinn og frjór og áhugamálin af ýmsum toga. Á tímabili starfaði hann af áhuga fyrir F.Í.B. Svo var hann heilmik- ill grúskari og ættfræði var eitt aðaláhugamálið a.m.k. í seinni tíð og hafði hann mikið yndi af að ættfæra fólk og kynna því ætt- artengsl þess. Hann safnaði líka frímerkjum og eyddi drjúgum stundum í frímerkjasafnið. Svo voru það ferðalög innanlands og utan meðan heilsan leyfði. Hann undirbjó öll ferðalög vel og kynnti sér það markverðasta sem þyrfti að skoða. Við hjónin ferðuðumst eingöngu með þeim innanlands og stendur þar ein ferð uppúr og engin utanlandsferð hefur toppað hana í mínum huga en það var Gæsavatnaleið sem farin var á vegum Slysavarnafélags Íslands líklega 6́7 eða 68. Þeir nafnar störfuðu báðir í björgunarsveit- inni á Akranesi. Þegar þið fluttuð svo til Hafnarfjarðar var ykkar sárt saknað. Alltaf var ég með í huga að við færum saman smá skottúra eins og t.d. Reykjanesið og Snæfellsnesið og að þið kæm- uð til okkar í Vestur-Hópið en það gerðist alltof sjaldan. Í dagsins önn hefur ýmislegt dregist eða farist fyrir og nú er það of seint, elsku vinur. Þú varst ljúfur, góður, heil- steyptur og traustur. Þín bíður góð heimkoma. Elsku Bergljót, Ásta, Pétur og Þóra. Okkar innilegustu samúð- arkveðjur og gangi ykkur vel að vinna úr sorginni og söknuðinum- .Við sendum kæra kveðju. Ingibjörg og Björn (Inga og Bóbó). Leiðir okkar Björns Péturs- sonar lágu saman snemma á lífs- leiðinni eða frá því að við munum eftir okkur, en samverustundirn- ar urðu reglulegri þegar við hóf- um nám í Barnaskóla Siglufjarð- ar og að því búnu í Gagnfræðaskóla Siglufjarðar. Að loknu grunnnámi á Siglufirði héldu skólasystkinin til fram- haldsnáms eða starfa á öðrum vettvangi og margir áttu ekki aft- urkvæmt til búsetu í okkar ágæta bæ þar sem við höfðum notið upp- eldisáranna með öllum þeim æv- intýrum sem þar var að finna. Tengslin við gamla bæinn okkar og þær litríku minningar sem við eigum þaðan hafa þó aldrei rofn- að. Þannig var það með Björn, Bjössa á Á, eins og við kölluðum hann. Þótt hann færi ungur að ár- um til framhaldnáms á önnur mið var hugurinn oft heima á Siglu- firði. Á skólaárunum á Siglufirði var Björn traustur félagi, rólegur og yfirvegaður í háttum. Hann tók virkan þátt í félagsstarfi okkar, stundaði skíðaíþróttina, sérstak- lega skíðagöngu, eins og margir unglingar á Siglufirði gerðu. Eig- um við ágæta mynd af Bjössa ásamt nokkrum skólafélögum, þá nýkomnum í mark eftir erfiða keppni í skíðagöngu. Alltaf var gott að koma á heimili foreldra Bjössa, þeirra Péturs Björnsson- ar kaupmanns, sem rak versl- unina Á, og Þóru Jónsdóttur, en hún stóð fyrir stórmerkilegu starfi með börnum og unglingum á Siglufirði í fjölda ára í Barna- stúkunni Eyrarrós. Eftir framhaldsnám og ára- tugastörf víða um land höfum við skólasystkinin frá Siglufirði, sem átt hafa þess kost, náð saman að nýju og hittast nú gjarnan á merkum tímamótum, allt miðað við viðburði á æskuárunum á Siglufirði, svo sem útskriftarár eða fermingarár. Þeir sem búa nú á höfuðborgarsvæðinu og í ná- grenni hittast reyndar mánaðar- lega á veturna og rifja m.a. upp minningar frá skólaárunum fyrir norðan, en þar hefur Bjössi verið manna ötulastur við að mæta. Hin síðari misseri hafa alvarleg veik- indi dregið mjög úr lífsþrótti hans, en alltaf var hann tilbúinn að mæta í hópinn ef þess var nokkur kostur. Við lok síðustu samverustundar okkar í mars sl. fann Bjössi greinilega að hverju stefndi og sagði eitthvað á þá leið að þetta hefði verið ljúf stund, en ætli ég nái ekki einni enn. Því miður reyndist það ekki svo, því áður en lagt var af stað til að taka hann með á næstu samverustund sl. fimmtudag barst okkur frétt um að hann hefði látist daginn áð- ur. Við skólasystkinin frá Siglu- firði sendum eftirlifandi eigin- konu Björns, Bergljótu Ólafsdótt- ur, börnum þeirra og fjölskyldum, innilegar samúðar- kveðjur, en minning okkar um góðan dreng mun lifa. Ólafur Nilsson, Þórir Maronsson. MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 2015 Hermann Níels- son, starfsfélagi minn til margra ára, er látinn. Mig langar í nokkrum orðum að kveðja þennan góða starfsfélaga minn. Fyrstu kynni mín af Her- manni voru þegar ég starfaði sem kennari við Alþýðuskólann á Eiðum. Ég var þá umsjónar- kennari sonar hans en Hermann starfaði sem málari á Egilsstöð- um og rak þar fyrirtæki. Hann hóf síðar störf við Alþýðuskólann sem íþróttakennari og við störf- uðum saman við skólann þar til hann var sameinaður Mennta- skólanum á Egilsstöðum. Við átt- um síðar eftir að starfa saman við Menntaskólann á Ísafirði í mörg ár og deildum þar vinnuað- stöðu. Hermann var mikill mann- kostamaður. Hann var sívinn- andi að ýmsum málefnum sem snertu störf hans og áhugamál sem voru honum hugleikin. Hann var baráttumaður á sviði íþrótta- og félagsmála. Hann hafði einnig einstaka hæfileika til að virkja fólk og fá það með sér í að framkvæma hlutina. Það eru ófá dagsverkin sem liggja eftir hann eystra og hér vestra. Eitt af því sem ég tók Hermann Níelsson ✝ HermannNíelsson fædd- ist 28. febrúar 1948. Hann lést 21. janúar 2015. Útför Hermanns fór fram 14. febrúar 2015. strax eftir þegar ég hóf störf við Al- þýðuskólann var það hversu fé- lagslegur styrkur nemenda skólans var mikill sem birt- ist í öflugu félagslífi hans. Hermann átti þar drjúgan hlut að máli. Eiðavinir mátu hann líka mik- ils fyrir störf hans og hann var ekki síður góður fé- lagi þeirra en kennari. Hermann var líka með mikið jafnaðargeð. Ég sá hann aldrei bregða skapi í öll þau ár sem við unnum saman. Hann gat hins vegar verið fylginn sér en hann vann hlutina ekki með látum heldur með rósemi og festu. Ég tel mig heppinn að hafa haft hann sem samstarfsmann. Minn- ingin um góðan dreng lifir í verk- um hans. Fjölskyldu hans og öðrum aðstandendum sendi ég samúðarkveðjur. Eitt kvöld, eitt kvöld er sól til viðar sígur og svalar bárur lauga fjörustein og upp af bláum öldum mistrið stígur og úðans perlur titra á skógargrein og handan yfir hafið til mín flýgur eitt heiðríkt vor sem læknar gömul mein. Eitt kvöld, eitt kvöld er sól til viðar sígur og svalar bárur lauga fjörustein. (Dósóþeus Tímótheusson) Guð blessi minningu Her- manns Níelssonar Emil Ingi Emilsson. Kæri Sigmar frændi. Það er margs að minnast og margt að þakka fyrir þegar kemur að kveðjustundinni. Að fá að alast upp á Desjarmýri í áhyggjuleysi æskuáranna hef ég alltaf litið á sem mikil forréttindi og munað. Að fá að fylgjast með ykkur bræðrunum föður mínum og þér; ykkar órjúfanlegu vináttu og samheldni á hverju sem gekk hefur reynst mér gott veganesti út í lífið. Þið voruð óaðskiljanlegir og nánast alltaf nefndir í sömu andrá, eða í mínum huga alltaf „pabbi og frændi“. Ég man eftir að hafa notað hvert tækifæri til að sniglast á eftir ykkur þar sem þið voruð við vinnu. Ekki var ætl- unin að læra af ykkur bústörfin heldur að hlusta á það sem ykkur fór á milli. Ég hef aldrei síðar heyrt annan eins urmul af skemmtisögum eins og þið sögð- uð hvor öðrum við vinnuna og mikið var hlegið. Mest voru þetta græskulausar grínsögur af mönnum og málefnum, sem ég krakkinn þekkti lítið til, en frá- sagnargáfa ykkar bræðra var svo einstök að nánast hver setning varð sprenghlægileg og allt svo lifandi að hægt var að sjá at- burðarásina ljóslifandi fyrir sér. Þannig gátuð þið hlegið og gant- ast heilu dagana án þess að falla verk úr hendi og aldrei man ég eftir að slettist upp á vinskapinn. Sigmar J. Ingvarsson ✝ Sigmar JóhannIngvarsson fæddist 19. júlí 1927. Hann lést 1. apríl 2015. Útför Sigmars fór fram 11. apríl 2015. Ég eyddi líka ófáum stundum uppi á efri hæðinni á heimili ykkar hjóna, sem nánast var mitt annað heimili því við Anna dóttir þín vorum óaðskiljanlegar vin- konur og lékum okkur saman alla daga. Það hefur sjálfsagt ýmislegt gengið á og margt verið brallað þó í minningunni hafi mér alltaf fundist við vera þægar og góðar. Að minnsta kosti var ég velkom- in til ykkar og alltaf varst þú jafn hlýr, traustur og góður. Ég leit líka mikið upp til þín og var ákaflega stolt af því að eiga svona stóran og myndarlegan frænda, sem auk þess að vera góður og skemmtilegur gat líka spilað á hljóðfæri og sungið svo fátt eitt sé nefnt af hæfileikum þínum. Það hefur verið ómetanlegt fyrir mig og fjölskyldu mína að fá að heimsækja ykkur í okkar alltof stuttu og alltof fáu austurferðum í gegnum tíðina. Þá var gaman að spjalla um liðna tíð og hlusta á allan þann hafsjó af fróðleik sem þú bjóst yfir. Áhugi þinn á sveit- um og jörðum á Íslandi var ein- stakur, en það var eins og þú þekktir nánast hverja sveit og býli og vissir hverjir þar bjuggu eða hefðu búið og þó var það ekki fyrr en á seinni árum að þið hjón- in fóruð að ferðast um landið í stuttum fríum eftir heyskap á haustin. Ég kveð þig, kæri frændi minn, með þakklæti í huga og mun ætíð minnast þín að góðu einu. Þín bróðurdóttir Guðrún. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÚN HJALTALÍN, Vanabyggð 1, Akureyri, lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri föstudaginn 10. apríl. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 20. apríl kl. 14. . Vaka Hrund Hjaltalín, Guðmundur Magnússon, Friðrik Hjaltalín, Svava Þórhildur Hjaltalín, Ingvar Rafn Hjaltalín, Sunneva, Salóme, Sigrún, Unnur, Katrín Emelía Kolka, Matthildur Nína. Elskulegur eiginmaður minn og besti vinur, GUÐMUNDUR INGVI GESTSSON, Seljahlíð 13c, Akureyri, lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 8. apríl. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 27. apríl kl. 10.30. Þeim sem vilja minnast hans er bent á að láta Heimahlynningu á Akureyri njóta þess. . Júlíana Helga Tryggvadóttir. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, GRÍMUR JÓSAFATSSON, verður jarðsunginn frá Neskirkju föstudaginn 17. apríl kl. 13. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á styrktarfélagið Einstök börn. . G. Úlfhildur Grímsdóttir, Jón Snorrason, Hlynur N. Grímsson, Elísa G. Halldórsdóttir og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.