Morgunblaðið - 16.04.2015, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 2015
Fráfarandi samsteypustjórn í Finn-
landi hefur verið gagnrýnd fyrir að
hafa ekki gert nægar ráðstafanir
til að rétta efnahag landsins við og
jafnvel forsætisráðherrann Alex-
ander Stubb hefur tekið undir
gagnrýnina. Stöðnun ríkti í efna-
hagnum í fyrra eftir tveggja ára
kreppu sem er aðallega rakin til
samdráttar í skógarhöggi og fram-
leiðslu rafeindatækja, einkum
vegna erfiðleika Nokia. Atvinnu-
leysið mælist
nú 9,2% og hef-
ur ekki verið
meira frá árinu
2003. Mið-
flokkurinn hef-
ur lofað að
skapa 200.000
ný störf á tíu
árum en hag-
fræðingar segja að erfitt verði að
standa við það loforð.
Gagnrýnd fyrir úrræðaleysi
EFNAHAGSÞRENGINGAR OG ATVINNULEYSI Í BRENNIDEPLI
Alexander Stubb
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Efnahagsmálin eru í brennidepli í
þingkosningum sem fram fara í
Finnlandi á sunnudaginn kemur
eftir þriggja ára efnahagsþrenging-
ar. Búist er við að Miðflokkurinn fái
mest fylgi í kosningunum og tæpan
fjórðung atkvæðanna. Formaður
flokksins, kaupsýslumaðurinn Juha
Sipilä, er talinn líklegastur til að
verða næsti forsætisráðherra lands-
ins og nýtur góðs af því að margir
telja hann best til þess fallinn að
blása lífi í efnahaginn vegna
reynslu hans af rekstri fyrirtækja.
Skoðanakönnun, sem birt var um
helgina, bendir til þess að Mið-
flokkurinn fái 23,5% atkvæðanna en
lítill munur sé á fylgi þriggja flokka
sem keppa um annað sætið.
Jafnaðarmannaflokkurinn mældist
með 17% fylgi, Finnaflokkurinn
16,6% og Sameiningarflokkurinn
16%. Finnaflokkurinn er þjóðernis-
sinnaður miðju- eða hægriflokkur,
hét áður Sannir Finnar og fékk
19% atkvæðanna í síðustu kosning-
um árið 2011 þegar hann fimmfald-
aði fylgi sitt. Sameiningarflokkur-
inn er hægriflokkur undir forystu
Alexanders Stubb, forsætisráð-
herra fráfarandi ríkisstjórnar.
Miðflokkurinn galt afhroð í þing-
kosningunum fyrir fjórum árum
þegar hann fékk 15,8% at-
kvæðanna, minna fylgi en nokkru
sinni fyrr frá síðari heimsstyrjöld-
inni. Flokkurinn hafði þá verið við
völd frá árinu 2003 og ósigurinn í
kosningunum var rakinn til fjár-
málahneykslis, sem margir þing-
menn flokksins voru bendlaðir við,
efnahagssamdráttar vegna fjár-
málakreppu og aukins fylgis
Sannra Finna.
Fylgi Miðflokksins tók að aukast
þegar Juha Sipilä var kjörinn for-
maður hans árið 2012 og flokkurinn
hefur verið stærstur í skoðana-
könnunum í tæp tvö ár. Sipilä hefur
verið þingmaður í aðeins eitt kjör-
tímabil og vinsældir hans eru eink-
um raktar til velgengni hans í
rekstri fyrirtækja. Hann rak meðal
annars finnska tæknifyrirtækið Sol-
itra og varð milljónamæringur þeg-
ar hann seldi það bandaríska fyrir-
tækinu American ADC Tele-
communications árið 1996.
Finnaflokkurinn í stjórn?
Miðflokkurinn hefur verið í
stjórnarandstöðu frá síðustu þing-
kosningum. Fjórir flokkar eiga að-
ild að fráfarandi ríkisstjórn, þ.e.
Sameiningarflokkurinn, Jafnaðar-
mannaflokkurinn, Sænski þjóðar-
flokkurinn og Kristilegir demókrat-
ar. Vinstribandalagið gekk úr
ríkisstjórninni fyrir rúmu ári vegna
óánægju með niðurskurð á útgjöld-
um til velferðarmála. Græningjar
sögðu sig síðan úr stjórninni í sept-
ember eftir að hún heimilaði að
reist yrði kjarnorkuver.
Ríkisstjórnin naut stuðnings 102
þingmanna af 200 í lok kjörtíma-
bilsins en 118 þingmenn studdu
hana þegar hún var mynduð fyrir
fjórum árum undir forystu Jyrki
Katainen, þáverandi leiðtoga Sam-
einingarflokksins. Katainen til-
kynnti fyrir ári að hann hygðist láta
af embætti og Alexander Stubb tók
við af honum í júní. Stubb hefur
ekki tekist að auka fylgi Sameining-
arflokksins og sannfæra Finna um
að hann sé best til þess fallinn að
rétta efnahaginn við.
Jafnaðarmannaflokkurinn er
einnig undir forystu nýs leiðtoga,
Antti Rinne, fyrrverandi verkalýðs-
foringja sem var kjörinn formaður
flokksins í maí í fyrra. Rinne er nú
fjármálaráðherra og hefur lofað að-
gerðum af hálfu ríkisins til að fjölga
störfum.
Sannir Finnar vildu ekki eiga að-
ild að fráfarandi ríkisstjórn vegna
andstöðu við efnahagsaðstoð Evr-
ópusambandsins við Portúgal og
fleiri evrulönd til að bjarga evrunni.
Formaður Finnaflokksins, Timo
Soini, segir hann nú vilja taka þátt í
myndun næstu ríkisstjórnar og
Juha Sipilä hefur léð máls á sam-
starfi við flokkinn eftir þingkosn-
ingarnar.
Miðflokknum spáð sigri í Finnlandi
Leiðtogi flokksins líklegastur til að verða forsætisráðherra Margir Finnar telja hann best til þess
fallinn að binda enda á efnahagsþrengingar Finnlands Þrír flokkar hnífjafnir í keppni um annað sætið
AFP
Næsti forsætisráðherra? Juha Sipilä, formaður Miðflokksins, á atkvæðaveiðum í höfuðborginni Helsinki. Sipilä er
talinn líklegastur til að fara fyrir næstu ríkisstjórn í Finnlandi eftir þingkosningarnar á sunnudaginn kemur.
Flestir vilja Miðflokkinn
» Um 64% Finna vilja að Mið-
flokkurinn eigi aðild að næstu
ríkisstjórn eftir þingkosning-
arnar á sunnudaginn kemur, ef
marka má könnun finnska dag-
blaðsins Helsingin Sanomat.
» Um 52% vilja Jafnaðar-
mannaflokkinn og um 39%
Sameiningarflokkinn í næstu
stjórn. Um 33% vilja að Finna-
flokkurinn gangi í stjórnina.
Talsmaður Flóttamannastofnunar
Sameinuðu þjóðanna sagði í gær að
Evrópuríki hefðu ekki gert nóg til að
bjarga flóttafólki sem fer með bátum
yfir Miðjarðarhafið frá Afríku til
Evrópu. Óttast er að um fjögur
hundruð flóttamenn hafi drukknað
þegar bát þeirra hvolfdi skammt frá
strönd Líbíu fyrr í vikunni.
Yfir sjö þúsund hefur verið bjarg-
að á Miðjarðarhafi frá því á föstudag
og hermt var í gær að varðskipið Týr
væri á leið til hafnar á Ítalíu með
tæplega 400 manns sem áhöfn skips-
ins bjargaði. Innanríkisráðuneytið á
Ítalíu sagðist vera að gera ráðstaf-
anir til að sjá flóttamönnunum fyrir
húsaskjóli. Á meðal þeirra eru mörg
börn.
Hjálparsamtökin Save the Child-
ren, Barnaheill, sögðu í gær að tekist
hefði að bjarga 144 úr bát sem
hvolfdi eftir að hann lagði úr höfn í
Líbíu. Flestir þeirra eru unglings-
piltar og þeir segja að alls hafi um
550 manns verið í bátnum. Níu lík
hafa þegar fundist.
Talsmaður Flóttamannastofnunar
Sameinuðu þjóðanna hvatti Evrópu-
ríki til að efla björgunarstarfið á
Miðjarðarhafi til að afstýra fleiri
dauðsföllum.
Embættismenn Sameinuðu þjóð-
anna sögðu að yfir 500 flóttamenn
hefðu drukknað í Miðjarðarhafi það
sem af er árinu, um 30 sinnum fleiri
en á sama tíma í fyrra.
Meira en 280.000 manns fóru til
ríkja Evrópusambandsins með ólög-
legum hætti yfir Miðjarðarhafið á
síðasta ári. Margir þeirra flúðu stríð-
ið í Sýrlandi eða kúgun í Erítreu.
AFP
Á flótta Kona og barn sem strand-
gæsla Túnis bjargaði á dögunum.
Allt að 400
drukknuðu
Flóttamannastofnun SÞ vill að björg-
unarstarfið á Miðjarðarhafi verði aukið