Morgunblaðið - 16.04.2015, Síða 11
Morgunblaðið/Ómar
Gangandi listaverk Umhverfisverndarsinnarnir Gabríela og Dísa spóka sig með listræna innkaupapoka.
Svo vonast hún til að senn verði
allir dagar plastpokalausir.
Þær Gabríela hafa unnið tölu-
vert saman í áranna rás og hefur
Dísa til að mynda verið fram-
leiðslustjóri stórra vídeóverkefna
listakonunnar. „Mér finnst gott að
fara úr þessu daglega tölvuamstri,
opna fyrir andlega þáttinn ef svo
má segja og starfa með skapandi
fólki eins og Gabríelu. Hún er um-
hverfisverndarsinni eins og ég og
var strax tilbúin að taka þátt í
þessu verkefni með mér,“ segir
Dísa.
Hin eilífa umbreyting
„Dísa er miklu öflugri en ég að
koma hlutunum í verk. Ég einbeiti
mér frekar að myndlistinni og von-
ast auðvitað til að koma ákveðnum
skilaboðum til skila í gegnum hana.
Mér fannst fínt að fá tækifæri til
að taka þátt í þessu pokaverkefni
með henni. Við erum ekkert endi-
lega að bjarga heiminum, en
kannski vekjum við einhverja til
vitundar um sóunina allt í kringum
okkur og alla þá óþarfa hluti sem
við sönkum að okkur,“ segir Gabrí-
ela.
„Húsmóðurreynslan kom okk-
ur til góða þegar við pældum í út-
færslu pokanna,“ upplýsir Dísa.
„Við þurftum að fá níðsterkt og
þvottekta efni, hafa pokana í hent-
ugri stærð fyrir matarinnkaup,
sundferðir og þess háttar og
reikna út hæfilega lengd á höld-
unum,“ nefnir hún sem dæmi.
Verkin sem Gabríela valdi á list-
pokana nefnast Melancholie’s first
visit sem er frá 2002, The Dust
Collector frá 2008 og Animalia frá
síðasta ári. Hún segir verkin sem
slík ekki túlka umhverfisvernd eða
– sjónarmið, nema kannski The
Dust Collector sem fjalli um hina
eilífu umbreytingu.
Pokar með David Bowie
Þeim finnst teikningar og
listaverk oft njóta sín mjög vel á
óbleiktri bómull. Bómullarboli
segja þær líka ágætan efnivið í
innkaupapoka. Fyrir jólin í hitti-
fyrra saumuðu þær slíka poka,
handmáluðu þá og gáfu í jólagjöf.
Dísa rifjar líka upp að hún hafi,
ásamt Björgu Ingadóttur í Spaks-
mannsspjörum, saumað og selt
innkaupapoka úr bómullarbolum
með myndum af David Bowie.
„Eftir að ég og frænka mín, Ragn-
heiður Hanson, héldum tónleika
með listamanninum árið 1996,“ út-
skýrir hún.
Oddi hefur listpokana með
verkum Gabríelu í smásölu og
heildsölu, en þeir fást líka í Jör,
Aftur, Gloriu, 38 þrepum og
Spaksmannspjörum. „Að nota tau-
poka í stað óendurnýtanlega plast-
poka er ákveðin yfirlýsing,“ segir
Dísa og bætir við að þar sem upp-
lagið sé takmarkað geti listpok-
arnir hugsanlega orðið safngripir
með tíð og tíma.
Við erum ekkert endi-
lega að bjarga heim-
inum en kannski vekjum
við einhverja til vit-
undar um sóunina allt í
kringum okkur og alla
þá óþarfa hluti sem við
sönkum að okkur.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 2015
Dísa stofnaði síðuna Plastpoka-
laus laugardagur á Facebook
fyrir tveimur árum og hefur æ
síðan reglulega skrifað þar
færslur um ýmsan óskunda sem
plast veldur í umhverfinu. Á síð-
unni kennir margra grasa en
fyrst og fremst er fólk brýnt til
að hætta notkun plastpoka,
einkum og sér í lagi á laugar-
dögum. Einnig eru fréttir um
umhverfismál hér heima og er-
lendis, vakin er athygli á sóða-
legri umgengni hér og þar og
bent á leiðir til úrbóta. Á síð-
unni eru ennfremur uppskriftir
og leiðbeiningar um gerð bréf-
og taupoka. Áhugi almennings á
umhverfisvernd birtist í því að
margir leggja orð í belg og læka.
Plastpoka-
lausir dagar
SÍÐAN HENNAR DÍSU
– einstök dönsk hönnun
Módel: Sandra Lind Þrastardóttir