Morgunblaðið - 16.04.2015, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 2015
Ýmislegt
TILBOÐ VIKUNNAR
SPORTHALDARAR stakar
stærðir D-G kr. 4.800,-
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10–18,
laugardaga 10–14.
Þú mætir – við mælum og
aðstoðum.
www.misty.is
– vertu vinur
TILBOÐ - TILBOÐ - TILBOÐ
Vönduð dömustígvél.úr leðri.
Fóðruð Stakar stærðir. Verð: 12.500.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Tískuverslunin Smart
Grímsbæ/Bústaðavegi
NÝTT - BOLIR
Sími 588 8050.
- vertu vinur
Tískuverslunin Smart
Grímsbæ/Bústaðavegi
NÝTT – ÚLPUR
kr. 11.900
kr. 13.900
kr. 12.900
Sími 588 8050.
- vertu vinur
Teg. 1513 Þægilegir dömuskór úr
mjúku leðri, skinnfóðraðir. Stærðir:
36-41. Verð: 15.785.
Teg. 1213 Þægilegir dömuskór úr
mjúku leðri, skinnfóðraðir. Stærðir:
36-41. Verð: 15.900..
Teg. 1908 Þægilegir dömuskór úr
mjúku leðri, skinnfóðraðir. Stærðir:
36-40. Verð: 15.900.
Teg. 06 Þægilegir dömuskór úr
mjúku leðri, skinnfóðraðir. Litir: hvítt
og svart. Stærðir: 36-42. Verð:
13.975.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Opið mán.-fös. 10–18,
laugardaga 10–14.
Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf.
Sendum um allt land
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Kíktu á heimasíðuna
lifstykkjabudin.is
Mikið úrval
Full búð af
fallegum
bikiníum
Póstsendum
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Smáauglýsingar
Með sorg í
hjarta kveð ég
minn elskulega
tengdaföður. Frá okkar fyrstu
kynnum urðum við miklir mátar,
enda tók hann mér og mínum
þremur strákum afar vel þegar
við Día, dóttir hans tókum saman
árið 2001.
Ég á eftir að sakna stundanna
er við spjölluðum saman í síma
og á rúntinum, bæði á Fáskrúðs-
firði og í bænum. Ófá símtöl átt-
um við eftir ýmsa knattleiki enda
báðir miklir áhugamenn um
íþróttir. Sérstaklega hafði hann
gaman af því að hringja í mig eft-
ir FH leiki og taka á mér stöð-
una, vitandi það að annaðhvort
var ég mjög glaður eða mjög fúll.
Á rúntinum höfðum við báðir
gaman af því að fara um hafn-
irnar, hvort sem það var fyrir
austan eða sunnan. Einnig
fræddum við hvor annan um
framkvæmdir og sitthvað fleira.
Við félagarnir fórum til Lond-
on 2013 ásamt fleirum úr fjöl-
skyldunni. Tilefnið var 80 ára af-
mælið hans Geirs og að
sjálfsögðu fórum við á Chelsea-
leik honum til heiðurs og sá hann
sína menn sigra Cardiff. Var
þetta virkilega skemmtileg og
minnistæð ferð.
Geir var mér og minni fjöl-
skyldu afar góður í gegnum tíð-
ina og er ég þakklátur fyrir það.
Einstakt samband var á milli
hans og Jóa, stjúpsonar míns,
sem er ómetanlegt.
Hvíldu í friði og takk fyrir allt,
elsku tengdapabbi minn.
Geir Helgason
✝ Geir Helga-son fæddist
20. ágúst 1933.
Hann lést 23.
mars 2015. Út-
för Geirs fór
fram 31. mars
2015.
Farðu í friði, vinur minn
kær,
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður
mér nær,
aldrei ég skal þér
gleyma.
(Bubbi Morthens.)
Árni Rúnar
Árnason.
Í minningu föður okkar og
stjúpföður langar okkur systkinin
að minnast hans með nokkrum
orðum. Upp í hugann kemur
mynd af stoltum manni sem vildi
sjá sér og sínum farborða í hví-
vetna. Til þess að sjá fyrir mann-
mörgu heimili gegndi hann ýms-
um störfum og þá yfirleitt fleiri en
einu í senn. Lögreglustarfið var
líklega mest áberandi fyrir eldri
systurnar, ekki síst ef laumast átti
á ball áður en aldur náðist til þess.
Lögreglustarfið hans var fyrir
daga gemsanna og vorum við
systkinin oftar en ekki send til að
sækja lögregluna í fjárhúsin eða
kartöflugarðinn þegar útkall bar
brátt að.
Heimilið var ávallt til fyrir-
myndar og hjálpuðust hjónin að
við að halda því fallegu ásamt
garðinum. Við systkinin fórum
ekki varhluta af því ati enda þótti
sjálfsagt að allir legðu hönd á
plóg.
Pabbi var barngóður og hrifn-
astur var hann af börnum og
barnabörnum áður en þau komust
til máls. Ófáar ferðirnar rölti hann
um ganginn í Silfurtúni með kríli á
handleggnum, ekki síst þegar
mamma var að stússast í eldhús-
inu. Jólasveinshlutverkið var hans
á jólunum og þá var dregin fram
sérstök gríma í því skyni að gleðja
aðra. Eins var það í hans verka-
hring að lesa á jólapakkana og
dreifa til okkar í rólegheitunum.
Ein af bernskuminningum okk-
ar er hversu útsjónarsamur og
smekklegur hann var þegar hann
keypti gjafir og fatnað á fjölskyld-
una. Honum var í lófa lagið að
kaupa t.d. skó og kjóla í réttum
stærðum og hátísku. Eins hafði
hann ákaflega gaman af að kaupa
gjafir sem komu ánægjulega á
óvart.
Pabbi var mikill dýravinur.
Hann var fjárbóndi í hjáverkum
ásamt Balda mági sínum og var sá
búskapur ávallt til fyrirmyndar.
Afurðir fjárbúskaparins nýttust
einnig vel sem búbót til heimilis-
ins og voru steikurnar gjarnan
nafngreindar við sunnudagsborð-
ið. Yngri börnin höfðu þá átt féð
og nafngreint og buðu stolt til
veislu. Seinni árin eignaðist hann
hunda sem voru honum ákaflega
kærir og góðir göngufélagar enda
hafði hann yndi af gönguferðum í
firðinum sínum. Pabba þótti líka
ákaflega gaman að fara á rúntinn
og hafði hann metnað til að eiga
fallega bíla. Benz-bílarnir skipuðu
þar stærstan sess og átti hann
einn slíkan þegar yfir lauk. Þegar
okkur krökkunum var boðið með í
bíltúrana var ávallt til nammi í
hanskahólfinu t.d. blár ópal sem
við máttum fá. Nammistaður var
einnig í hjónaherbergisskápnum
og vorum við ekki gömul þegar við
komumst upp á bragðið með
hann.
Síðustu árin þótti honum vænt
um að hafa fjölskylduna í kringum
sig og vildi bjóða okkur til sín og
veita vel. Hann ferðaðist mikið
með Grétari, fór í sumarbústaði
og vildi þá að sem flestir litu inn.
Hann fór til útlanda í tilefni af átt-
ræðisafmæli sínu ásamt tveimur
dætrum sínum, tengdasonum og
dóttursyni. Leiðin lá á Chelsea-
leikvanginn enda var hann mikill
Chelsea-aðdáandi og ferðin hon-
um sérlega minnisverð og
ánægjuleg sem og ferðafélögum
hans.
Hafðu þökk fyrir allt og allt,
elsku pabbi og stjúpi.
Dýrleif, Grétar Helgi,
Sigrún Júlía, Arna,
Jóna Björg og Eygló.
Faðir okkar var
mikil tilfinninga-
vera á þeim tímum
sem karlmenn áttu
ekki að vera það og alls ekki
sýna það. En honum tókst líka
að gera hlut sem fáir léku eftir
honum, fáa hef ég séð leika eftir
honum stjórnun allskonar véla
og tækja. Með þeim árangri að
undrum sætti.
Hann missti föður sinn ungur
að árum og var sendur í sveit að
Hvaleyri til ættingja sinna. Þeg-
ar seinna stríðið hófst komu her-
menn og reistu kamp á holtinu
og var hann mikið þar með her-
mönnum. Hann minntist nær
aldrei á þetta tíma bil í ævi
sinni, en honum virðist hafa liðið
vel þar. Svo var hann á yngri ár-
um ótrúlega góður í ensku og
kunni að skjóta af riffli af alveg
Guðbjartur
Haraldsson
✝ GuðbjarturHaraldsson
fæddist 5. sept-
ember 1930. Hann
lést 23. mars 2015.
Guðbjartur var
jarðsunginn 8. apríl
2015.
ótrúlegri ná-
kvæmni. En aldrei
ræddi hann um það,
enda sennilega ekki
vel séð á þeim tím-
um. Lífsbaráttan
var hörð og hann
átti stóra systrahóp
sem hann átti að
ala önn fyrir með
vinnu og viðurværi
ásamt móður sinni.
Þó veit ég að systur
hans voru líka mjög duglegar að
bjarga sér eftir föðurmissinn.
Því varð skólagangan stutt og
vinnan mikil. Hann minntist
þess að þegar hann var fermdur
og kominn í fullorðinna manna
tölu þá sagði frændi hans á
Hvaleyri, nú tekur þú við fjöl-
skyldunni og þar við sat. Æsku-
minningarnar snúa mest að lífs-
baráttu og afkomu og síðan
ferðalögum og útiveru í tjaldi,
sem mamma og pabbi voru mjög
dugleg alla tíð að gera með okk-
ur systkinunum. Hvenær sem
færi gafst og svo líka ófáar ber-
jatínsluferðir ásamt með heim-
sóknum til ættingja og vina. Þá
var ekki horft á kílómetramæl-
inn eða kostnaðinn. Ef bíllinn
bilaði þá tók mamma matinn
þegjandi úr skottinu og fór að
elda, því svangur og þreyttur
pabbi var ekki vel upplagður í
slíkar viðgerðir, nema að fá mat-
inn fyrst og það vissi hún vel.
Ekki man ég eftir því að hafa
orðið strandaglópur neins staðar
vegna bilaðra bíla í öllum þeim
ferðum. Margar góðar æsku-
minningar með pabba og
mömmu í þessum skemmtiferð-
um, sem voru svo mikilvægar
fyrir okkur öll í þá daga. 9 ára
gamall fór ég með honum á sjó-
inn á lítilli opinni trillu sem var
kölluð Hanna, var hann mjög út-
sjónarsamur og laginn við að
finna fiskimið og fisk, það ver
eins og hann vissi ef fiskur var
undir bátnum. Svo sýndu gömlu
karlarnir á Flateyri okkur líka
sum góð og gömul mið, sem kom
sér vel. Þá sagði hann oft „ einn
er hver einn, enginn fæst í
landi“. Tvö næstu ár skiptumst
við bræðurnir á að fara á sjóinn
með honum. Þetta var lítið arð-
bært svo við hættum þeirri
trilluútgerð. Hann kenndi okkur
bræðrunum að elda, því oft á
helgum og frídögum sagði hann
við okkur, nú gefum við mömmu
frí og sjáum um eldhúsið. Þetta
þótti okkur mjög gaman því við
fengum sjálfir að gera flest sem
máli skiptir í eldamennsku og
fengum fljótt tilfinninguna fyrir
eldamennsku hjá honum. Minn-
ingar eru margar um eljusemi
og umhyggju fyrir okkur börn-
unum hans og mömmu.
Eins og þegar hann var að
gefa okkur að borða og sérstak-
lega hvernig hann hélt lífinu í
yngsta bróður okkar þegar allir
voru búnir að gefast upp á að
koma mat ofan í hann, eftir að
þau komu heim af fæðingar-
heimilinu. Það var ógleyman-
legt.
Haraldur Guðbjartsson.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Minningargreinar