Morgunblaðið - 18.04.2015, Blaðsíða 19
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á
EÐA Í SÍMA
Áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa meðlimir í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða.
Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á moggaklubburinn.is og fá tilboðin send í tölvupósti með því að
skrá sig á póstlistann. Hafðu samband í síma 569 1100 eða askrift@mbl.is hafi Moggaklúbbskortið ekki borist þér.
MOGGAKLÚBBURINN
25% AFSLÁTTUR Í EINSTAKA
20 DAGA ÆVINTÝRAFERÐ TIL
THAILANDS 22. NÓV. TIL 11. DES.
Verð 759.625 kr.
- pr. mann í tvíbýli (aukagjald 98.844 kr. fyrir mann í einbýli)
Moggaklúbbsverð 569.719 kr.
Ferðin.is hefur sérhæft sig í ferðum til Asíu,
en starfsmenn ferðaskrifstofunnar hafa áratuga
reynslu af skipulagningu ferða til Thailands.
www.ferdin.is / ferdin@ferdin.is
Skoðið hvað mikið er innifalið í verði ferðarinnar á ferdin.is
Athugið! Takmarkað sætaframboð
Fararstjórinn Margeir Ingólfsson hefur ferðast mikið um Thailand og hefur mikla reynslu
af fararstjórn í landinu. Hann þekkir „Leyndardóma Thailands“ mjög vel, en þetta er í
fjórða sinn sem hann fer þessa ferð með Íslendinga á vegum ferðaskrifstofunnar Ferdin.is.
Þessari miklu ævintýraferð getum við skipt upp í þrjá hluta:
Fyrstu tvo dagana verðum við í Bangkok. Farið verður í skoðunarferðir um borgina þar sem m.a.
verður siglt um síkin, gengið um Kínahverfið og Grand Palace heimsótt auk hofsins Wat Pho með
sitt 45 m langa Búdda líkneski.
Þá tekur við mögnuð 9 daga ferð norður í land sem einkennist af mikilli náttúruupplifun, einstöku
mannlífi og sögu Norður Thailands. Við endum í borginni Chiang Rai í Gullna Þríhyrningnum nyrst
í Thailandi við landamærin að Mianmar (Burma) og Laos. Á leiðinni þangað norður verður komið
við á mörgum stöðum og margt upplifað, m.a. frumskógarganga, rafting, frumstæðir þjóðflokkar
heimsóttir, farið í fíla-búgarð og -sýningu, siglt með fljótabátum og m.fl. sem hægt er að lesa um
í ferðalýsingunni á ferdin.is.
Frá Chiang Rai verður flogið aftur til Bangkok og þaðan farið til paradísareyjunnar Koh Chang við
landamærin að Kambodíu. Eyjan sem er hluti af þjóðgarði er frábær staður til afslöppunar og
heillar alla sem þangað koma.
Hlakka til að fara með ykkur til Thailands.
Margeir Ingólfsson, sími 893 8808
LEYNDARDÓMAR THAILANDS
NÁTTÚRA – SAGA – UPPLIFUN – AFSLÖPPUN