Morgunblaðið - 18.04.2015, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. APRÍL 2015
Ritskoðun var auðveldari áðuren netið kom til sögunnar, en
stjórnvöld í Kína eru þó ekki af
baki dottin og viðleitni þeirra til
að stýra flutningi frétta og um-
ræðu er næsta grímulaus.
Kínverskir ríkisfjölmiðlargreindu
til dæmis frá
því fyrr í
mánuðinum
að stjórnvöld
hefðu hótað
að loka Sina,
einni vinsæl-
ustu fréttavefsíðu landsins ef ekki
kæmi til „bætt ritskoðun“. Með
þessum orðum.
Opinbera fréttastofan Xinhuasagði að á vefsíðunni væru
„staðreyndir í fréttum skrum-
skældar, siðferði brotið og fjöl-
miðlaýkjur“ stundaðar.
Í Kína er sérstök netheimastjórn.Hlutverk hennar er skýrt eins
og kemur fram í opinberum
fréttaflutningi. Hún á að grípa í
taumana þegar ritskoðun er ábóta-
vant.
Í Kína hefur eldveggurinn mikli
risið í netheimum. Hann á að ein-
angra alla umræðu og gera hana
meðfærilegri.
Og nú er nýtt vopn komið tilsögunnar. Það kallast fall-
byssan mikla og var fyrst notað í
lok mars svo vitað sé. Fallbyssan
er notuð til að beina gríðarlegri
umferð að óæskilegum vefsíðum
þannig að þær hrynji og geti ekki
lengur komið upplýsingum á fram-
færi. Fallbyssan virkjar óbreytta
notendur vefsins í þessar árásir og
verður þannig til nýr alþýðuher,
sem þarf enga þjálfun.
Mikil er ógn málfrelsisins.
Mikil er ógn
málfrelsisins
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 17.4., kl. 18.00
Reykjavík 6 skýjað
Bolungarvík 7 skýjað
Akureyri 12 skýjað
Nuuk -7 léttskýjað
Þórshöfn 10 skýjað
Ósló 8 heiðskírt
Kaupmannahöfn 7 léttskýjað
Stokkhólmur 3 skúrir
Helsinki 7 skýjað
Lúxemborg 13 heiðskírt
Brussel 12 léttskýjað
Dublin 12 skýjað
Glasgow 12 léttskýjað
London 12 heiðskírt
París 16 heiðskírt
Amsterdam 11 léttskýjað
Hamborg 12 heiðskírt
Berlín 11 heiðskírt
Vín 13 skúrir
Moskva 5 skýjað
Algarve 20 léttskýjað
Madríd 20 léttskýjað
Barcelona 17 léttskýjað
Mallorca 21 léttskýjað
Róm 18 heiðskírt
Aþena 18 heiðskírt
Winnipeg 17 heiðskírt
Montreal 13 skýjað
New York 16 alskýjað
Chicago 22 léttskýjað
Orlando 26 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
18. apríl Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:46 21:10
ÍSAFJÖRÐUR 5:41 21:24
SIGLUFJÖRÐUR 5:23 21:08
DJÚPIVOGUR 5:13 20:41
Viltu selja eða
kaupa fyrirtæki?
Firma Consulting, Þingaseli 10, 109 Reykjavík,
GSM: (+354) 820 8800 og (+354) 896 6665,
Fax: (354) 557 7766, Veffang: firmaconsulting.is
Magnús Hreggviðsson viðskiptafræðingur og lög-
giltur fyrirtækja-, fasteigna- og skipasali. Magnús er
með áratuga reynslu af endurskoðunarstörfum, sem
rekstrarráðgjafi, fyrirtækja- og fasteignasali, útgef-
andi, fasteignarekandi, „land-developer“ í Smára-
hvammi og starfandi stjórnarformaður í nokkrum
fyrirtækjum. Er aðalráðgjafi hjá Firma Consulting.
(magnus@firmaconsulting.is)
Firma Consulting (www.firmaconsulting.is) er
ráðgjafafyrirtæki sem sérhæfir sig í ráðgjöf við
kaup og sölu millistórra og stórra fyrirtækja.
„Við erum klárlega sjálfum okkur
verst, Íslendingar, ef við ýtum verð-
bólgunni aftur af stað öllum til tjóns,“
sagði Halldór Halldórsson, formaður
Sambands íslenskra sveitarfélaga í
niðurlagsorðum sínum þegar hann
ræddi stöðuna á vinnumarkaðnum í
ræðu sinni við setningu landsþings
sambandsins sem haldið var í Salnum
í Kópavogi í gær.
„Það er alvarleg staða á vinnu-
markaði og meiri órói en lengi hefur
verið. Fólk hefur þá tilfinningu að
það hafi dregist aftur úr í launum frá
hruni og það er alveg rétt. Það á hins
vegar við um allar
stéttir og við lög-
um það ekki nema
með því að við-
halda kaupmætt-
inum og reyna að
auka hann,“ sagði
Halldór.
Hann sagði að
allir þyrftu að
haga sér skyn-
samlega og bera
virðingu fyrir þessu flókna viðfangs-
efni og viðsemjendum. „Atvinnurek-
endur þurfa að fara á undan með
góðu fordæmi varðandi laun þeirra
sjálfra. Annars er það ekki sannfær-
andi að segja við launþega að þeir
þurfi að semja um hóflegar launa-
hækkanir.“ Lýsti hann þeirri skoðun
sinni að nýta ætti hugmyndir frá hin-
um Norðurlöndunum, horfa á hvaða
svigrúm er til launahækkana og
vinna út frá því og möguleikum til
kaupmáttaraukningar.
Halldór gat þess að í vor og sumar
rynnu út kjarasamningar við 65 við-
semjendur sambandsins og gengið
yrði til kjarasamninga á ný. Samn-
ingar bæjarstarfsmannafélaga innan
BSRB og stéttarfélaga innan ASÍ
rynnu út í apríl og aðrir samningar í
maí og ágúst.
Búa sig undir viðræður
Undirbúningur viðræðna er haf-
inn. Halldór sagði að samninganefnd
Sambands íslenskra sveitarfélaga
legði áherslu á að viðhalda þeirri hefð
að ljúka ekki kjarasamningum fyrr
en niðurstaða lægi fyrir í kjara-
viðræðum almenna vinnumarkaðar-
ins enda hefðu launabreytingar þar
bein áhrif á útsvarstekjur sveitarfé-
laga. helgi@mbl.is
Bíða eftir niðurstöðu annarra
Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga varar við verðbólgusamningum
Halldór
Halldórsson
Ólöf Nordal innanríkisráðherra kom
fram með þá hugmynd að tengja
stefnumörkun í samgönguáætlun og
forgangsröðun einstakra verkefna
við samráðsvettvang í hverjum
landshluta þegar hún ávarpaði
landsþing Sambands íslenskra sveit-
arfélaga í gær.
Innanríkisráðherra rifjaði upp
áherslur um aukna samvinnu við
sveitarfélögin í stjórnarsáttmála rík-
isstjórnarinnar og stefnumörkun í
frumvarpi um byggðaáætlun og
sóknaráætlun. Taldi hún ýmis tæki-
færi til að fara með stefnumörkun og
ákvarðanatöku um verkefni og fram-
kvæmdir á vegum innanríkisráðu-
neytisins í slíkt samráðsferli. Þannig
væri hægt að auka aðkomu sveitar-
félaganna án þess að færa heilu
málaflokkana til sveitarfélaga.
Nefndi hún í þessu sambandi að
útdeiling fjármuna og ákvarðanir um
einstök verkefni væri í mjög mið-
stýrðu ferli. Alþingismenn tækju
ákvarðnir þar sem framkvæmdir
væru tíundaðar í smáatriðum fjögur
ár fram í tímann. „Hvernig væri að
tengja stefnumörkun varðandi sam-
gönguáætlun og forgangsröðun ein-
stakra verkefna
betur við sam-
ráðsvettvang í
hverjum lands-
hluta? Ég set
þetta fram sem
ómótaða hug-
mynd sem ég hef
ekki sjálf tekið
beina afstöðu til,“
sagði Ólöf og
bætti því við að
ný lög um opinber fjármál muni
skapa ný tækifæri til að draga úr
miðstýringu ákvarðana, eins og til
dæmis í samgöngumálum.
Ekki þvinguð sameining
Ólöf lýsti því yfir að hún teldi
æskilegt að til frekari sameiningar
sveitarfélaga kæmi á komandi árum.
Það gæfi möguleika til að efla sveit-
arstjórnarstigið. Það yrði þó að ger-
ast á frjálsan hátt, hún myndi ekki
standa fyrir neinni þvingun í því efni.
Fleiri leiðir væru til. Hún sagði frá
þeirri hugmynd sinni að ráðuneytin
og sveitarfélögin myndu setja á fót
hóp fólks til að greina leiðir og tæki-
færi til að efla sveitarstjórnarstigið.
Samráð í héraði í
stað miðstýringar
Ráðherra vill efla sveitarstjórnir
Ólöf Nordal