Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.04.2015, Page 8
Ritlistarbúðirnar Ice-
land Writers Retreat
eru haldnar í 2. sinn 8.-
12. apríl en búðirnar
eru ætlaðar fólki sem
vill þjálfast í skrifum á
Íslandi og ekki er skil-
yrði að það hafi gefið
út ritverk áður. Rithöf-
undurinn Sjón kennir
við búðirnar en einnig
munu erlendir heims-
þekktir og margverð-
launaðir rithöfundar
verða þar, svo sem Barbarara Kingsolver, Linn Ullman og Ruth Reichl.
Búðunum er ætlað að stuðla að auknum samskiptum rithöfunda og ann-
arra bókmenntaáhugamanna og kynna bókmenntaarf Íslendinga um leið
fyrir erlendum gestum, en alls verða þátttakendur í búðunum um 100 tals-
ins. Áhugasömum er bent á heimasíðu viðburðarins; icelandwriters-
retreat.com. Þess má geta að búðirnar vöktu mikla athygli þegar þær voru
haldnar í fyrsta sinn á síðasta ári og var fjallað um þær víða í erlendum miðl-
um.
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.4. 2015
Fyrir utan kurteisisvenjur þá er það ermeginregla að lögum að símtöl mannaverða ekki tekin upp án þeirra vitneskju.
Þetta hefur verið bundið í lög um árabil, nú í
47. og 48. gr. fjarskiptalaga. Frá þessu er vik-
ið með lagaákvæðum sem heimila upptöku
símtala við tilteknar aðstæður, t.d. við rann-
sókn sakamála. Þegar lög heimila upptökur
símtala án vitneskju þeirra sem hlut að eiga
þá er gerð krafa um ríka hagsmuni eða grun
um alvarlegan glæp og aðkomu dómstóla.
Einnig eru í lögum reglur um eyðingu símtala
og önnur praktísk atriði. Ekkert af þessum
sérreglum á við um upptökur símtala fjöl-
miðla. Þar gildir meginreglan um að viðmæl-
andi skuli látinn vita af því fyrirfram að símtal
við hann sé tekið upp. Fjarskiptalög gera þó
ráð fyrir því að ekki þurfi að láta þá viðmæl-
endur vita um upptökuna sem „ótvírætt má
ætla“ að sé kunnugt um upptökuna. Sumir
fjölmiðlar hafa túlkað þetta sem svo að allir
sem fá upphringingu frá manni sem kynnir sig
sem blaðmann (hann þarf þá að muna eftir því
að kynna sig sem slíkan) megi gera ráð fyrir
að símtalið sé hljóðritað. En er það svo?
Vissulega þekkja stjórnmálamenn og fjölmiðla-
fulltrúar vinnubrögðin. Þeir sem sjaldan eða
aldrei eru í samskiptum við fjölmiðla gera það
hins vegar ekki.
Nú liggur fyrir alþingi frumvarp til breyt-
inga á fjarskiptalögum sem miðar að því að
skerpa á meginreglunni um tilkynningu til við-
mælanda og það skilyrði sett fyrir því að sím-
töl verði birt opinberlega eða vitnað til þeirra
beint að viðmælandinn hafi heimilað það sér-
staklega, t.d. með munnlegu samþykki. Verði
frumvarpið samþykkt yrði eftir sem áður ekki
þörf á sérstöku samþykki viðmælandans fyrir
upptökunni umfram það sem felst í því að við-
mælandinn haldi samtalinu áfram.
Blaðamenn hafa tekið þessari breytingar-
tillögu afar illa. Þeir telja að viðmælendur
setji sig í sérstakar stellingar gagnvart blaða-
manni ef þeim er tilkynnt um upptöku. Hins
vegar halda blaðamenn því fram að öllum megi
vera ljóst að símtöl þeirra við blaðamenn séu
tekin upp. Þessi rök stangast á. Ef allir við-
mælendur fjölmiðla ganga út frá því í dag að
símtöl séu hljóðrituð hljóta menn þegar í dag
að setja sig í ákveðnar stellingar í símtölum
við blaðamenn og frumvarpið boðar enga
breytingu að þessu leyti. Staðreyndin er hins
vegar sú að fráleitt öll símtöl blaðamanna eru
hljóðrituð og viðmælendur eru þannig í algerri
óvissu um hvort upptaka sé í gangi eða ekki.
Hitt er svo annað, hví mega viðmælendur
blaðamanna ekki setja sig í „ákveðnar stell-
ingar“ í samtölum við þá? Varla kemur það
niður á fréttagildi viðtalsins þótt menn vandi
sig í samskiptum við fjölmiðla.
Um stellingar manna í símtölum
* Menn eiga rétt á þvíað vita ef símtölþeirra eru hljóðrituð.
ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM
Sigríður Ásthildur
Andersen
sigga@sigridurandersen.is
Einhverjir hlupu apríl í gær, þökk
sé gabbfréttum í dagblöðum, vef-
miðlum, sjónvarpi og útvarpi.
Ekki voru þó allir
á eitt sáttir með
hvernig tekist
hefði til með
skrökið. Blaða-
maðurinn Valur
Grettisson
skrifaði á Twitter: „Er Internetið
að drepa 1. apríl eða stórkostleg-
ur skortur á hugviti og húmor?“
Tónlistarmaðurinn Örvar
Smárason vekur athygli á því að
unglingar 10. ára-
tugarins hafa
góða ástæðu til
að undirbúa há-
tíðarhöld í ár og
skrifaði á Twitter:
„Það er hneyksli að það sé ekki
verið að halda uppá 20 ára afmæli
UXA ’95 í ár. Ég vil afmælisfestival
með sama line-up og sama veðri.“
Annars flugu aprílgöbb í
færslum á Twitter og Facebook í
allan gærdag og sumir leituðu
ráða hjá netverjum til að hrekkja
sína nánustu.
Þannig skrifaði
söngkonan og
dansarinn Unn-
ur Eggerts-
dóttir á Twit-
ter:
„Er of ljótt
aprílgabb að ljúga að ma og pa að
ég hafi verið handtekin og þau
þurfi að sækja mig til NYPD með
$8000 í cash?“
Séra Hildur Eir Bolladóttir
var þó á því að 1. apríl bæri upp á
óheppilegan dag, það er að segja
hefðbundinn vinnudag, og skrifaði
á Facebook: „Mér finnst að það
ætti að færa 1. apríl nær helgi
þannig að það sé hægt að taka
svona langa skophelgi með börn-
unum, það myndi nýtast betur.“
Þá virtist presturinn einnig hafa
uppgötvað kosti þess að eldast og
skrifaði deginum áður á sama
miðli: „Það besta við að eldast er
að uppgötva að það er enginn
töff, nema á myndum.“
AF NETINU
Sjón er meðal þeirra sem kenna í ritlistarbúðunum í ár.
Morgunblaðið/Ómar
Heimsþekktir kenna
Vettvangur
Advania býður heildarlausnir
á sviði upplýsingatækni. Þar finna
fyrirtæki af öllum stærðum og
gerðum lausnir sem auka hagræði
í rekstri.
Vinsældir skýjalausna aukast
sífellt, en þær bæta sveigjanleika
og öryggi. Gögn eru vistuð á
öruggan máta og aðgengileg hvar
og hvenær sem er. Svokallað
áskriftarmódel hentar mörgum, en
þá þurfa fyrirtæki ekki að leggja
í stóra upphafsfjárfestingu.
Útvistun á rekstrarþáttum á borð
við prentrekstur getur skapað
mikið hagræði. Þannig er hægt
að lækka prentkostnað um allt
að 30% og búa til meiri tíma til
að sinna kjarnarekstri. Rekstrar-
þjónusta Advania býður fjölbreyttar
þjónustuleiðir sem tryggja öryggi,
auka uppitíma og skapa fyrir-
tækjumsvigrúm til að sinna því sem
mestu máli skiptir.
Viðfangsefni á sviði mannauðsmála
eru fjölbreytt, allt frá ráðningu
til starfsloka. Advania býður
lausnir á borð við ráðningakerfi,
mannauðskerfi, launakerfi, tíma-
skráningakerfi og mötuneytiskerfi
svo eitthvað sé nefnt.
Lausnin er Advania. Rétt notkun
upplýsingatækni getur skapað sam-
keppnisforskot og aukið hagræði.