Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.04.2015, Qupperneq 13
dæmis að aflýsa tónleikum Sinfón-
íuhljómsveitar Íslands í Hofi, enda
komust hljóðfæraleikarar hvorki
lönd né strönd. Fleiri dæmi mætti
nefna sem undirstrika mikilvægi
innanlandsflugs og þar með
Reykjavíkurflugvallar.“
Farþegar með Flugfélagi Íslands
í fyrra voru liðlega 300 þúsund og
þar af fóru um 160 þúsund til og
frá Akureyri sem er stærsti póst-
urinn í rekstri félagsins.
Reyndar eru umsvifin talsvert
meiri en framangreinar tölur gefa
til kynna, því starfsmenn FÍ
nyrðra hafa einnig með höndum af-
greiðslu véla annara félaga sem um
flugvöllinn fara, svo sem Nor-
landair sem flýgur meðal annars til
Grímseyar og til byggðarlaga á
NA-horni landsins.
Einnig til Grænlands en almennt
millilandaflug til og frá Akureyri,
svo og tengiflug Icelandair þaðan
beint á Keflavíkurflugvöll og þaðan
handan um höf, er í miklum vexti
og góðri sókn.
Millilandaflugið styrkir
Og nú eru breytingar framundan
í starfi Flugfélags Íslands, þegar
þrjár vélar af gerðinni Bombardier
Q400 koma í stað Fokker 50, en
vélar þeirrar gerðar og fyrirrenn-
ari þeirra hafa verið þarfasti þjón-
inn í innanlandsfluginu síðustu
hálfa öldina. Reynslan er góð en
lengi hefur þótt vera þörf vélum
nýrrar gerðar, enda hafa aðstæður
og starfsumhverfi í fluginu breyst
mikið á undanförnum árum.
„Nýju vélarnar, sem eru sterk-
byggðar og taka um 75 manns,
henta vel á leiðum þar sem farþega-
fjöldi er nokkur, svo sem Akureyri.
Þetta opnar félaginu líka tækifæri
til þess að fara á nýja áfangastaði í
Noregi, Skotlandi og Færeyjum að
viðbættu svo Grænlandsfluginu sem
vegur um þriðjung í starfsemi FÍ. Í
þessu liggja sóknarfæri fyrir Ak-
ureyri, en fólk hér á svæðinu er
áfram um að héðan verði millilanda-
flug að staðaldri sem þá yrði ný
gátt inn í landið og myndi styrkja
ferðaþjónustuna hér til muna.“
Fargjöld í takt við þróun
Ari Fossdal segir að í starfinu á
Akureyrarflugvelli sé þjónusta við
fólkið rauði þráðurinn. Allt sé gert
til að koma til móts við viðskipta-
vinina sem eiga svo mikið undir því
að fá far og að leiðin sé greið.
„Oft kemur fyrir að fólk hringi á
síðustu stundu og þurfi að komast
suður í hvelli. Já, og oftast er hægt
að bjarga því. Sumum finnst far-
gjöldin vera há, en ef bókað er í
tíma eða stokkið á tilboðspakka fæst
hagstæðara verð. Miðað við raun-
virði eru fargjöldin þó hagstæð að
mínu mati, við höfum þar verið í
takt við verðlagsþróun og aðrar
slíkar breytur.“
Fokker 50 - og fyrirrennari þeirra - eru vélar sem hafa verið í aðalhlutverki í innanlandsfluginu í hálfa öld. Með nýjum
vélum í þeirra stað breytist margt og ný tækifæri svo sem á millilandaflugi verða breyti en verið hefur til þessa.
Helmingur farþega í Akureyr-
arfluginu mun vera fólk sem
greiðir fargjöld sín sjálft. Marg-
ir ferðist á kostnað fyrirtækja
eða annarra slíkra en færri en
tíu af hundraði farþega á
kostnað ríkisins, en margir
hafa talið það hlutfall vera
hærra. Greining sem Flugfélag
Íslands hefur látið gera sýnir
tölurnar hins vegar svart á
hvítu. Þar eru jafnframt ýmsar
bábiljur hraktar. Í umræðu
dagsins hefur því verið kastað
fram – sjálfsagt í gamni eða
hita leiksins – að farþegar séu
einkum landsbyggðarþingmenn
á flandri milli funda. Slíkt er
þó fjarri sanni.
„Vissulega er það fólk sem
við höfum valið til forystu
gjarnan á ferðinni og fáum far-
þegum er þægilegra að veita
þjónustu,“ segir Ari. „Oft
rabba ég við þetta fólk á léttu
nótunum, en fyrir mér er af-
greiðsluborðið nánast heilagt
og ekki staður til að koma
skoðunum mínum á framfæri.
En það gegnir allt öðru máli
væri slíkt yfir kaffibola í kaffi-
teríunni hér. Og þaðan má
reyndar oft heyra líflegar um-
ræður þar sem ráðamenn fá
skoðanir almennings beint í
æð og þar geta átt í hlut þing-
menn og ráðherrar eða forseti
Íslands.“
RÁÐAMENN Á FLUGI LANDSHORNA Á MILLI
Líflegar umræður í teríunni
Það liggur í eðli starfs alþingismanna að vera á endalausum ferðalögum
landshorna á milli. Hér sést Steingímur J. Sigfússon bíða eftir flugi.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
5.4. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13
Á dögunum var gestastofa Reykja-
nesjarðvangs í Duushúsum í
Reykjanesbæ opnuð. Stofan er sú
fyrsta í jarðvanginum og er hlut-
verk hennar að vera fræðslu-
miðstöð þar sem gestir fá upplýs-
ingar um svæðið, sérstöðu þess,
jarðfræði, náttúrufar, sögu og fleira
áhugavert.
Á sýningu sem sett hefur verið
upp er, að því er fram kemur í til-
kynningu, sagt myndrænt frá mót-
un Reykjanesskagans. Gestir eigi
þar að geta fræðst um jarðfræði og
náttúrufar á aðgengilegan hátt.
Gestastofan nýtist heimamönnum
og ferðamönnum auk þess að
gagnast í fræðslustarfi.
Kjartan Már Kjartansson, bæj-
arstjóri í Reykjanesbæ, og Róbert
Ragnarsson, formaður stjórnar
Reykjanesjarðvangs og Markaðs-
stofu Reykjaness, opnuðu gesta-
stofuna formlega. Við sama tæki-
færi skrifuðu þeir undir samning
um rekstur og uppbyggingu Gesta-
stofu Reykjanesjarðvangs og rekst-
ur upplýsingamiðstöðvar ferða-
manna. Stofan góða verður opin
fyrst um sinn virka daga frá kl. 12-
17 og um helgar frá kl. 13-17.
sbs@mbl.is
REYKJANES
Áhugasamir kynna sér náttúru jarðvangsins, í gestastofunni í Duushúsum.
Gestastofa opnuð
Frá 2005 og 2015 fækkaði fólki í sveitarfélögunum
níu á Vestfjörðum nema í Reykhólasveit. Þar fjölgaði
um 41, í 291. Í heild hefur á þessu tímabili fækkað á
Vestfjörðum úr 7.597 manns í 6.970 eða um 8,3%.
Vestfirðir
Samþykkt hefur verið deiliskipulag fyrir Fjallsárlón á
Breiðmerkursandi. Skapa á umgjörð fyrir þjónustu við
ferðamenn sem á svæðið koma. Byggð verður aðstaða,
stígar lagðir og heimild veitt til útgerðar skemmtibáta.
Fjallsárlón
Nýr Sproti með viðarfótum - ýmsir litir í boði
STOFNAÐ 1956
Bæjarlind 8–10
201 Kópavogur
s: 510 7300
www.ag.is
Sproti 405
Hönnuður Erla Sólveig Óskarsdóttir