Reykjalundur - 01.06.1958, Síða 23
Myndir frá barnaheimilinu:
Efst: Hópur glaðra borgarbarna langt
frá skarkala stórborgarinnar.
/ miðiö: Lífið cr leikur —
Neðst: Enginn er vcrri þótt hann vökni.
I
rúmuðu 500 börn og gátu því tekið við tvö
þúsund börnum yfir sumarmánuðina.
I sumar heimsótti ég eitt heimilanna, sem
er í 200 km. fjarlægð frá Helsinki. Þar voru
saman komin 80 börn á aldrinum 7—14 ára.
Heimilið er á fögrum stað, umkringt skógi á
þrjá vegu, en stórt vatn framan við það.
Börnin komu hlaupandi að bílnum, brún og
hraustleg. Þau skildu mig ekki og ég ekki
þau, en andlit þeirra geisluðu af ánægju og
augun Ijómuðu: Þetta voru allt borgarbörn,
sem nutu þarna lífsins frjáls og glöð, laus við
áhyggjur og hættur stórbæjanna.
Síðar um daginn kveiktu stjórnendurnir
varðeld og börnin önnuðust sjálf skemmtiatr-
iðin, sem voru mörg og vöktu kátínu allra,
sem viðstaddir voru.
Mér varð hugsað heim til íslands og mæðr-
anna þar, sem allan ársins hring verða að
vinna erfið heimilsstörf og enga möguleika
hafa til að hvíla sig, þótt heilsan sé lítilfjör-
leg. Hvílíkur munur það væri, ef S.I.B.S. eða
félagsdeildir þess, gætu komið á fót slíkum
heimilum og leyft börnunum að dvelja þar
mánaðartíma að sumrinu, við svipuð skilyrði
og þessi börn hafa í Finnlandi.
Finnska berklavarnasambandið á við meiri
erfiðleika að stríða en við, en hefir samt gefið
sér tíma til að sinna mæðrunum, sem barizt
hafa við heilsuleysi. Vissulega munum við
reyna að feta í fótspor þeirra.
G. Löve.
Reykjalundur
21