Húnavaka - 01.05.1971, Blaðsíða 176
174
HÚNAVAKA
Koss. Nei, ég get ekki sagt þér hvað hann er. Þú verðnr að reyna
það sjálfur.
Ég held, að hún viti hvað hún talaði um, að minnsta kosti sýndi
látbragð liennar það, sem ég seinna fékk tækifæri sjálfur til að
reyna. Ég spurði lækni sömu spurningar. Hann var á móti kossum
læknisfræðilega, vegna smithættu. — Það eru alltaf til lúmskar
bakteríur, hættulegar sóttkveikjur. Er það ekki rétt? sagði hann.
Ég get líka sagt ykkur margar sögur og sagnfræðilegar lýsingar
um, hvernig Rómverjar, Grikkir og Gyðingar lieilsuðust með koss-
um. En ég trúi raunverulega, lesari góður, að þú hafir meiri áhuga
;í því hvernig stúlkurnar kyssa í ýmsum Evrópulöndum.
Þegar við ferðumst, verðum við fyrir margs konar dýrmætri
reynslu á þessu sviði, og gott að vera áður undirbúinn.
Koss hinna ungversku meyja er mjcig ástríðufullur og heitur.
Það er erfitt að skrifa um hann, en það má mæla með honum.
Hin ítalska stúlka kyssir með tilfinningu, viðkvæmni, sem er
full af loforðum .... og hún lieldur alltaf loforð sín. Parísarstúlk-
urnar liafa glaðan og aðlaðandi hlátur. En um leið og við kyssum
þær verðum við fyrir jreirri leiðinlegu tilfinningu: Gættu að þér,
.... þú skemmir fína kjólinn minn. Þú bögglar hann.
Ensku stúlkurnar okkar kyssa eins og virðulegar, virðingarverðar
heimsdömur.
í Sviss kyssa stúlkurnar með léttu, lágu andvarpi við hvern koss,
og um leið og kossinn er búinn, athuga þær áhrifin, sem hann
hefur haft.
í Bayern eru stúlkurnar helzt til tilfinninganæmar, ástríðufullar,
of næmar, eftir því sem mér Jrykir.
Og í Vínarborg er ást og elska stúlknanna full af föstum reglum,
siðmenningu og frumleik, sem verður að fylgja.
Stúlkurnar í Finnlandi kyssa vel, ekkert öðruvísi, bara vel. En
koss hinna dönsku meyja ber keim af alþýðlegri reynslu.
Stúlkurnar í heimalandi mínu, Noregi, heimasæturnar, kyssa
fjótsagt eðlilega og óþvingað. Kossar þeirra líkjast hinni hreinu,
svölu morgundögg, en stiilkurnar í Osló kyssa stutt og snubbótt
og segja svo: Það er nt'i það, og hvað eigum við svo að gera. —
En bezt af öllum þessum stúlkum kyssa sænsku stúlkurnar. Þær
hafa svo yndislegan, undursmáan munn, og koss þeirra er unaðs-
legur og hrífandi. Ég held mest upp á hann. Þetta er mín reynsla.