Morgunblaðið - 27.02.2015, Qupperneq 6
6 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2015
Annie
Um er að ræða endurgerð á mynd-
inni um munaðarlausu stúlkuna An-
nie. Dag einn ákveður viðskiptajöf-
urinn Will Stacks að taka stúlkuna
að sér í von um það muni gagnast í
kosningabaráttu hans sem borg-
arstjóri New York. Leikstjóri er
Will Gluck, en í aðalhlutverkum eru
Quvenzhané Wallis, Cameron Diaz
og Jamie Foxx.
Metacritic: 33/100
Into the Woods
Myndin er nútíma útfærsla á æv-
intýrum Grimms-bræðra í söng-
leikjaformi þar sem blandað er
saman sögunum um Öskubusku,
Rauðhettu, Jóa og baunagrasið og
Garðabrúðu. Tónlistin er eftir
Stephen Sondheim. Leikstjóri er
Rob Marshall, en meðal leikara eru
Johnny Depp, Anna Kendrick,
Emily Blunt og Meryl Streep.
Metacritic: 69/100
Still Alice
Allt virðist leika í lyndi hjá Alice
Howland. Hún er prófessor í mál-
vísindum, vel gift og á þrjú upp-
komin börn. Þegar hún fer að byrja
að gleyma orðum leitar hún læknis
og fær þá greiningu að hún sé með
Alzheimer. Leikstjórar eru Richard
Glatzer og Wash Westmoreland, en
í burðarhlutverkum eru Julianne
Moore, Alec Baldwin og Kristen
Stewart, en Moore hlaut Óskarinn
fyrir túlkun sína á Alice.
Metacritic: 72/100
Before I go to Sleep
Myndin segir frá Christine Lucas
sem vaknar á hverjum morgni al-
gjörlega minnislaus um það sem
gerst hefur í lífi hennar fram að
því. Leikstjóri er Rowan Joffe, en í
aðalhlutverkum eru Nicole Kid-
man, Colin Firth, Mark Strong.
Metacritic: 41/100
Bíófrumsýningar
Söngur og minnisleysi
Verðlaunuð Julianne Moore leikur
Alice og fékk Óskarinn að launum.
Himnesk heið-
ríkja er yf-
irskrift tónleika
í röðinni Klassík
í hádeginu sem
fram fara í
Gerðubergi í
dag, föstudag,
kl. 12.15-13 og
sunnudaginn 1.
mars kl. 13.15-
14.
Þar flytja
Hulda Björk Garðarsdóttir sópran
og Nína Margrét Grímsdóttir pí-
anóleikari tónlist eftir Brahms,
Schubert, Schumann og Strauss
sem innblásin er af himneskri heið-
ríkju og því fagra sem henni teng-
ist.
Tónleikarnir eru öllum opnir og
aðgangseyrir er enginn.
Himnesk
heiðríkja
Nína Margrét
Grímsdóttir
„Eftir góða ferð norður í góða veðrinu um síðustu helgi ætla Ljótu hálfvit-
arnir ekki að hætta sér út fyrir borgarmörkin um þá næstu. Í mesta lagi
niður í 101, nánar tiltekið á Klapparstíginn þar sem Doddi Rósenbergvert
ætlar að hleypa þeim upp á sviðið sitt bæði föstudags- og laugardagskvöld.
Hann mun svo vera gestum innan handar með mat og drykk meðan Hálf-
vitarnir gera stykkin sín. Spila lög og fara mögulega með gamanmál inn á
milli, svona meðan þeir rifja upp hver spilar á hvað í hvaða lagi. Allt eftir
bókinni,“ segir í tilkynningu frá hljómsveitinni. Tónleikarnir hefjast
klukkan 22, en miðasalan tveimur tímum fyrr.
Ljótu hálfvitarnir troða
upp á Rósenberg
Fríður flokkur Ljótu hálfvitarnir eru samtals níu og fylla sviðið létt.
en hann leggi álög á myndina með
þessum ummælum eða var kannski
ætlunin hjá Winterbottom að gera
verri mynd? Varla.
Að þessu sinni er Brydon fengið
það verkefni að skrifa um úrvalsveit-
ingastaði á Amalfi-ströndinni á Ítalíu
fyrir Observer, frá Liguria til Capri
og býður hann Coogan með. Þeir
keyra milli bæja og hlusta á Alanis
Morrisette á leiðinni (sem er reyndar
mjög fyndið), gæða sér á dýrindis
réttum á fínustu veitingastöðum,
gista á glæsihótelum, feta slóðir róm-
antísku skáldanna Byrons lávarðar
og Percys Bysshe Shelley á strönd-
inni og velta fyrir sér dvöl þeirra á
Ítalíu og skáldskap. Í The Trip fékk
Coogan sig fullsaddan af gengd-
arlausum eftirhermum Brydons og
spyr í upphafi framhaldsmynd-
arinnar hvort þeir ætli nokkuð að
endurtaka þann leik. Jú, Brydon ætl-
ar sér það svo sannarlega og virðist í
raun ekki geta opnað munninn án
þess að herma eftir Al Pacino, Mich-
Í The Trip, kvikmynd MichaelsWinterbottom frá árinu 2011sem unnin var upp úr sam-nefndum sjónvarpsþáttum,
sagði af bráðskemmtilegu ferðalagi
leikaranna og grínistanna Steve Coo-
gan og Robs Brydon um vatnasvæði
Englands, Lake District, og var hún
bæði óvenjuleg og frumleg, m.a. fyrir
það að þeir léku sjálfa sig í myndinni.
Coogan fékk það verkefni að skrifa
grein fyrir dagblaðið Observer um
bestu veitingastaði smábæja og þorpa
vatnasvæðisins og bauð Brydon með
sér eftir að kærasta hans hætti við að
fara með honum. Snæddu þeir miklar
kræsingar, kepptu hvor við annan í
því að herma eftir þekktum leikurum
á borð við Michael Caine og Al Pacino
auk þess að velta fyrir sér lífinu og til-
verunni með afar spaugilegum hætti.
The Trip to Italy er framhald þeirrar
myndar og því miður nær hún ekki
sömu hæðum og The Trip, einkennist
af endurteknu efni sem missir oftar
en ekki marks. Það er kaldhæðnislegt
að Coogan spaugar með það í upphafi
myndar að framhaldsmyndir, þær
sem eru nr. 2 í röðinni, séu nær alltaf
verri en fyrsta myndin. Engu líkara
ael Caine, Hugh Grant, Marlon
Brando o.fl. Coogan og Brydon eru
afar færir í eftirhermunum en maður
fær fljótt leið á þeim. Stundum ná
þeir flugi, m.a. í vangaveltum sínum
um Batman-myndina The Dark
Knight Rises þar sem þeir herma
kostulega eftir Christian Bale og
Tom Hardy en eftirhermurnar eru
engu að síður alltof fyrirferðarmiklar
í myndinni. Öllu skemmtilegri eru
vangaveltur þeirra um dauðann og
hverfandi kynþokka, t.d. að þeir séu
orðnir ósýnilegir ungum og fögrum
konum sem brosi í mesta lagi til
þeirra eins og ungar konur brosi til
gamalla frænda sinna.
Miðaldra karlmenn í kreppu geta
verið hið besta gamanefni og báðir
eru þeir Coogan og Brydon viðkunn-
anlegir og skemmtilegir. Það skemm-
ir því töluvert fyrir myndinni þegar
Brydon gerist sekur um algjört sið-
leysi um miðbik myndarinnar og virð-
ist ekki iðrast gjörða sinna svo mjög.
Brot Brydons virðist heldur ekki
trufla Coogan sem kemur manni í
opna skjöldu, sérstaklega þar sem
mennirnir eiga að vera að leika sjálfa
sig að mestu í myndinni. Ef þessi til-
tekni hluti myndarinnar á að vera
fyndinn þá tekst það engan veginn og
vonandi eru þeir félagar ekki siðleys-
ingjar.
Kostir myndarinnar eru samt sem
áður nokkrir. Landslagið er ægifag-
urt, maturinn girnilegur og Coogan
og Brydon eiga sína góðu spretti af
og til í spauginu, eftirhermunum og
miðaldurskreppunni. En Winterbot-
tom, sá ágæti leikstjóri, hefur gert
miklu betri kvikmyndir en þessa og
mun verri líka, ef út í það er farið.
Matgæðingar Brydon og Coogan
stilla sér upp fyrir ljósmyndara.
Bragðdauft framhald
Bíó Paradís
The Trip to Italy bbmnn
Leikstjóri: Michael Winterbottom. Aðal-
leikarar: Steve Coogan, Rob Brydon,
Claire Keelan, Marta Barrio og Rosie Fell-
ner. Bretland og Ítalía, 2014. 108 mín.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
Stockfish – evrópsk kvikmyndahátíð í Reykjavík 2015
leikhusid.is Konan við 1000° – ★★★★ „Í stuttu máli fá töfrar leikhússins að njóta sín“
– Morgunblaðið
HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
Sjálfstætt fólk - hetjusaga (Stóra sviðið)
Fös 27/2 kl. 19:30 23.sýn Lau 7/3 kl. 19:30 26.sýn Sun 29/3 kl. 19:30 29.sýn
Lau 28/2 kl. 19:30 24.sýn Sun 15/3 kl. 19:30 27.sýn
Fös 6/3 kl. 19:30 25.sýn Lau 21/3 kl. 19:30 28.sýn
Ný sviðsetning frá sömu listamönnum og færðu okkur Engla alheimsins.
Konan við 1000° (Stóra sviðið)
Fim 5/3 kl. 19:30 Aukas. Lau 14/3 kl. 19:30 Aukas. Fös 20/3 kl. 19:30 52.sýn
Aukasýningar á Stóra sviðinu.
Karitas (Stóra sviðið)
Sun 1/3 kl. 19:30 35.sýn Sun 8/3 kl. 19:30 36.sýn
Allra síðustu sýningar.
Kuggur og leikhúsvélin (Kúlan)
Lau 28/2 kl. 13:00 9.sýn Sun 1/3 kl. 15:00 12.sýn Sun 15/3 kl. 13:30
Lau 28/2 kl. 15:00 10.sýn Sun 8/3 kl. 13:30 Sun 15/3 kl. 15:00
Sun 1/3 kl. 13:00 11.sýn Sun 8/3 kl. 15:00
Kuggur og félagar geysast nú upp á svið í Þjóðleikhúsinu í fyrsta sinn!
Klókur ertu, Einar Áskell (Brúðuloftið)
Lau 28/2 kl. 14:00 3.sýn Lau 7/3 kl. 14:00 5.sýn Lau 14/3 kl. 14:00 7.sýn
Lau 28/2 kl. 16:00 4.sýn Lau 7/3 kl. 16:00 6.sýn Lau 14/3 kl. 16:00 8.sýn
Hinn uppátækjasami Einar Áskell í fallegri og skemmtilegri brúðusýningu
Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is
Minnisvarði (Aðalsalur)
Lau 7/3 kl. 20:00 Lau 14/3 kl. 20:00 Fös 27/3 kl. 20:00
Mið 11/3 kl. 20:00 Sun 22/3 kl. 20:00 Sun 29/3 kl. 20:00
Fös 13/3 kl. 20:00 Mið 25/3 kl. 20:00
Hrikalegir (Aðalsalur)
Fös 27/2 kl. 21:00 Lau 28/2 kl. 21:00
Eldbarnið (Aðalsalur)
Sun 1/3 kl. 14:00 Sun 8/3 kl. 14:00
SÍÐUSTU SÝNINGAR
Skepna (Aðalsalur)
Sun 1/3 kl. 20:00
AUKASÝNING
SÍÐASTA SÝNING
Minningartónleikar Elísabetar Sóleyjar (Aðalsalur)
Fim 26/3 kl. 20:00
Björt í sumarhúsi (Aðalsalur)
Lau 28/2 kl. 15:00
Billy Elliot (Stóra sviðið)
Fös 6/3 kl. 19:00 frums. Fim 19/3 kl. 19:00 8.k. Sun 12/4 kl. 19:00 13.k
Lau 7/3 kl. 19:00 2 k. Fös 20/3 kl. 19:00 aukas. Fim 16/4 kl. 19:00 14.k
Sun 8/3 kl. 19:00 3.k. Sun 22/3 kl. 19:00 9.k Fös 17/4 kl. 19:00 15.k
Þri 10/3 kl. 19:00 aukas. Fim 26/3 kl. 19:00 aukas. Sun 19/4 kl. 19:00 aukas.
Mið 11/3 kl. 19:00 4.k. Fös 27/3 kl. 19:00 aukas. Mið 22/4 kl. 19:00
Fim 12/3 kl. 19:00 5.k. Sun 29/3 kl. 19:00 10.k Fim 23/4 kl. 19:00
Sun 15/3 kl. 19:00 6.k. Mið 8/4 kl. 19:00 11.k Fös 24/4 kl. 19:00
Þri 17/3 kl. 19:00 aukas. Fim 9/4 kl. 19:00 12.k Sun 26/4 kl. 19:00
Mið 18/3 kl. 19:00 7.k. Lau 11/4 kl. 19:00 aukas. Mið 29/4 kl. 19:00
Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Lau 28/2 kl. 13:00 Sun 15/3 kl. 13:00 Sun 29/3 kl. 13:00
Sun 1/3 kl. 13:00 Lau 21/3 kl. 13:00 Sun 12/4 kl. 13:00
Sun 8/3 kl. 13:00 Sun 22/3 kl. 13:00 Sun 19/4 kl. 13:00
Lau 14/3 kl. 13:00 Lau 28/3 kl. 13:00 Sun 26/4 kl. 13:00
Sterkasta stelpa í heimi er mætt á Stóra sviðið
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Fös 27/2 kl. 20:00 Lau 7/3 kl. 20:00 Lau 14/3 kl. 20:00
Lau 28/2 kl. 20:00 Fim 12/3 kl. 20:00 Lau 21/3 kl. 20:00
Fös 6/3 kl. 20:00 Fös 13/3 kl. 20:00 Lau 28/3 kl. 20:00
Stærsti smáglæpamaður Íslands stelur senunni
Öldin okkar (Nýja sviðið)
Fös 27/2 kl. 20:00 Lau 28/2 kl. 20:00 Sun 1/3 kl. 20:00
Síðustu sýningar
Beint í æð (Stóra sviðið)
Fös 27/2 kl. 20:00 Lau 14/3 kl. 20:00 Fös 10/4 kl. 20:00
Lau 28/2 kl. 20:00 Lau 21/3 kl. 20:00 Lau 18/4 kl. 20:00
Fös 13/3 kl. 20:00 Lau 28/3 kl. 20:00 Lau 25/4 kl. 20:00
Sprenghlægilegur farsi
Ekki hætta að anda (Litla sviðið)
Sun 1/3 kl. 20:00
Síðustu sýningar
Öldin okkar –★★★★★ , S.J. Fbl.
Billy Elliot – Frumsýning 6. mars!