Ægir - 01.10.2014, Qupperneq 8
8
Múlavegur 18 / 625 Ólafsfjörður
Njarðarnes 2 / 603 Akureyri
Óskum viðskiptavinum okkar gleðilegrar jólahátíðar
og gæfu á komandi ári
velfag.is
„Ég hef unnið í fiskeldisgrein-
inni frá árinu 1999 en aldrei
upplifað annan eins uppgangs-
tíma og nú. Vöxtur í greininni
er gríðarlegur, fyrirtæki að
stækka og ný að koma til sög-
unnar. En það er líka að sama
skapi mjög einkennandi hversu
faglega er staðið að hlutunum,
ólíkt því sem við sáum oft áður.
Við sjáum líka stór og öflug fyr-
irtæki í sjávarútvegi að baki
nokkrum fiskeldisfyrirtækj-
anna, sem er jákvætt því þau
hafa burði til þess að sýna þol-
inmæði með sitt fjármagn. Í
fiskeldi þarf einmitt að bíða
þess í nokkur ár að sjá árangur-
inn, sýna biðlund meðan fiskur-
inn vex og kemst í sláturstærð
og verður að markaðsvöru.
Fiskeldi er orðið að stórri at-
vinnugrein á Íslandi og þýðing-
armeiri en margir gera sér
grein fyrir,“ segir Gunnlaugur
Hólm Torfason, framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins Eldislausna í
Keflavík sem sérhæfir sig í
þjónustu við fiskeldisfyrirtæki.
Viðtækar lausnir fyrir
eldisfyrirtækin
Þjónustan sem Eldislausnir
bjóða er fjölbreytt. Fyrirtækið
sinnir ráðgjöf fyrir fiskeldisfyrir-
tæki, annast uppsetningar og
tengingar á öllum búnaði í fisk-
eldi, sér um alla almenna pípu-
og raflagnaþjónustu, dæluvið-
gerðir, iðnstýringar og köfunar-
þjónustu. Fyrirtækið framleiðir
sjálft stærstan hluta þess bún-
aðar sem það selur en hefur
einnig umboð fyrir hreinsi-
tromlur, ljós í kvíar og eldiskör,
fóðurmyndavélar og súrefnis-
framleiðslutæki.
„Við höfum framleitt súrefn-
isstýringar, fóður- og dælustýr-
ingar, ljósastýringar og fleira
sem allt er sérsniðið að þörfum
F
isk
eld
i
Fiskeldi er að verða
þýðingarmikil atvinnu-
grein á Íslandi
- segir Gunnlaugur Hólm Torfason, framkvæmdastjóri Eldislausna ehf.
Fylgst með í eldiskví hjá Arnarlaxi.