Ægir - 01.10.2014, Qupperneq 12
12
Fjölveiðiskipið Vilhelm Þor-
steinsson EA-11 í eigu Samherja
hf. hefur frá því það kom nýtt
inn í íslenska flotann haustið
2000 verið í hópi aflahæstu
skipa landsins og það sem
skapað hefur hvað mest afla-
verðmæti ár hvert. Guðmundur
Þ. Jónsson hefur staðið í brúnni
og stjórnað skipinu lengst af
þeim tíma, tók við haustið 2001
þegar skipið var ársgamalt. Í
fyrstu var hann á móti Arn-
grími Brynjólfssyni en hin síð-
ari ár hefur mágur hans, Birkir
Hreinsson, staðið vaktina á
móti honum. Árið 2013 var bar
Vilhelm um 44 þúsund tonna
afla að landi og nam verðmæti
hans um 4,3 milljörðum króna.
Guðmundur er fæddur og
uppalinn í Bolungarvík. Hann
hóf sjósókn ungur að árum, rétt
um 15 ára gamall var hann orð-
inn háseti um borð í heima-
bátnum Guðmundi Péturssyni.
„Þetta var svonefndur tappa-
togari,“ segir hann þegar fyrstu
ár sjómannsferilsins eru rifjuð
upp. Hann segir að það hafi
legið beint við að fara á sjóinn.
Bæði var að hann ólst upp í um-
hverfi sem að stórum hluta
snérist um sjósókn og vinnslu
og einnig var faðir hans, Jón
Eggert Sigurgeirsson, skipstjóri
á Heiðrúnu ÍS. „Ég var á heima-
bátunum til að byrja með, en
fór svo til Vestmannaeyja og
var þar um tíma. Síðan lá leiðin í
Stýrimannaskólann haustið árið
1979,“ segir Guðmundur.
Frá Þingeyri norður til Akureyrar
Að námi loknu hélt hann á ný á
heimslóðir fyrir vestan, settist
að á Þingeyri og fékk stöðu
annars stýrimanns á Sléttanesi
sem gert var út þaðan. „Ég átti
ágæt ár þar og var alls ekki á
förum. Hafði þó einhvern tíma
orðað það við konuna að ef ég
fengi gott pláss myndi ég flytja
með henni norður, en hún er
frá Árskógsströnd,“ segir Guð-
mundur. Það varð úr á árinu
1986 að fjölskyldan tók sig upp
og flutti búferlum til Akureyrar,
en hann hafði verið ráðinn fyrsti
stýrimaður og afleysingaskip-
stjóri á Margréti EA í eigu Sam-
herja. Skipið var þá nýkomið til
landsins eftir umfangsmiklar
breytingar í Noregi, en það var
sérútbúið til rækjuveiða. „Þetta
var stórt og gott skip og rækju-
veiði á þeim tíma með ágæt-
um,“ segir hann.
Neitaði tvívegis en lét svo
sannfærast
Áður hafði Guðmundur tvívegis
neitað boði Samherjafrænda
um starf hjá fyrirtækinu. „Ætli
mér hafi ekki bara litist svona
vel á í þetta sinn,“ svarar hann
spurður um sinnaskiptin. „Það
er ágætt að breyta til öðru
hvoru og ætli þeim hafi ekki í
þetta skiptið tekist að sannfæra
mig. Þannig að það varð úr að
við tókum okkur upp og ég hef
aldrei séð eftir því. Þessi tími
hefur verið mjög góður og ég
er afskaplega ánægður með að
starfa fyrir Samherja. Það ríkir
mikill metnaður og framsýni
innan fyrirtækisins, en það eru
kostir sem drífa sjávarútveginn
áfram og skila árangri.“
Hef verið heppinn á mínum ferli
Guðmundur kom við á fleiri
skipum í eigum Samherja, var
um tíma fyrsti stýrimaður og af-
leysingaskipstjóri á Hjalteyrinni
Kóngur í sínu ríki á miðunum. Guðmundur Þ. Jónsson fylgist með úr brúarglugganum á Vilhelm Þorsteinssyni. Myndir: Ágúst Þór Bjarnason
S
jóm
en
n
sk
a
n
„Ég er stoltur af að hafa valið mér sjó-
mennsku að ævistarfi og hef aldrei séð eftir
því. Framtíðin er björt ef við höldum okkar
striki ótrauð áfram, horfum fram á veginn og
höfum augun opin fyrir þeim tækifærum sem
hvarvetna blasa við innan greinarinnar.“