Ægir - 01.10.2014, Page 14
14
það fagni 15 ára afmæli næsta
haust. Vilhelm sé sérhannað og
smíðað til uppsjávarveiða og
hafi alla tíð reynst afskaplega
vel. Skipið hafi góðan kvóta í
flestum tegundum og útgerðin
standi þétt við bakið á mönn-
um. Þá skipti góð áhöfn að sjálf-
sögðu heilmiklu máli þegar
horft er til velgengni undanfar-
inna ára. „Þetta spilar allt sam-
an, margir þræðir sem mynda
eina heild. Það skemmir ekki
fyrir að hafa góða kvótastöðu,
framsýni stjórnenda útgerðar-
innar hefur áhrif og þá hef ég
verið mjög heppinn með áhöfn.
Með mér um borð eru góðir
menn sem kunna til verka og
vinna vel saman. Það er mikil-
vægt að menn hafi áhuga fyrir
sínu starfi og geti látið hlutina
ganga snuðrulaust fyrir sig. Um
borð er góður andi, engin logn-
molla heldur er keppnisandi í
mönnum sem hafa metnað til
að gera vel og hvetja hvern
annan áfram. Metnaður til að
ná árangri sem og brennandi
áhugi fyrir starfinu skiptir öllu,“
segir Guðmundur.
Umræðan of neikvæð
Talið berst að umræðu um sjáv-
arútvegsmálin en þau eru oftar
en ekki í brennidepli í sam-
félaginu. „Mér finnst umræðan
alltof neikvæð og niðurdrep-
andi,“ segir hann en vissulega
sé af hinum góða að menn hafi
áhuga á málefninu og vilji ræða
það. Rifrildi, hvort heldur er
milli hinna ýmsu hópa þjóð-
félagsins eða innbirgðis t.d.
milli sjómanna og útgerðar skili
hins vegar ekki tilætluðum ár-
angri. Mikilvægt sé að ræða
málin af yfirvegun. „Því miður
finnst mér umræðan oft byggð
á vanþekkingu og jafnvel öf-
und. Hún er undirliggjandi
þáttur hjá býsna mörgum sem
leggja orð í belg og það kann
sjaldnast góðri lukku að stýra,“
segir hann.
Greiðum umtalsverð gjöld til
samfélagsins
Guðmundur bendir í því sam-
bandi á umræður um veiði-
leyfa- og auðlindagjöld. „Út-
gerðin vill greiða sanngjarnt
gjald en auðvitað sýnist sitt
hverjum þegar kemur að því að
skilgreina hvað er sanngjarnt í
þeim efnum,“ segir hann. Og
bendir á að útgerðin greiði um-
talsverð gjöld til samfélagsins.
Sem dæmi nefnir hann líka að
sjómenn hringinn í kringum
landið greiði há opinber gjöld
sem nýtist nærsamfélaginu til
„Þessi tími hefur verið mjög góður og ég er
afskaplega ánægður með að starfa fyrir Sam-
herja. Það ríkir mikill metnaður og framsýni
innan fyrirtækisins, en það eru kostir sem
drífa sjávarútveginn áfram og skila árangri.“
Byrjað að dæla úr nótinni eftir kast á loðnumiðunum.