Ægir - 01.10.2014, Page 22
22
hlutfallslega hefur aukning farþega í hval-
skoðun orðið meiri en fjölgun ferðamanna
til landsins.
Sömu dýrin ár eftir ár
„Við sjáum að þetta eru sömu dýrin sem
koma ár eftir ár og sumum þeirra höfum við
gefið nafn,“ segir Árni sem oft sér úr eldhús-
glugganum heima hjá sér á Hauganesi hvar
hnúfubakurinn er þann daginn.
„Oftast förum við hér stutt út á fjörðinn
til að sjá hvalina og þeir eru stundum dög-
um saman á sama blettinum. En færa sig
svo til, stundum innar í fjörðinn eða utar,“
segir hann.
Sjóstangveiði er alltaf hluti af hvalaskoð-
unarferðunum á Níelsi Jónssyni og undan-
tekningalítið er það mikil upplifun fyrir
ferðamennina að draga fisk úr sjó. Margir
hafa aldrei gert slíkt áður, hvað þá að þeir
hafi séð fisk flakaðan.
„Ég verð aldrei var við neina umræðu hjá
okkar viðskiptavinum um hvalveiðar okkar
Íslendinga eða neitt slíkt. Hins vegar kom
einu sinni fyrir að við fengum formlega at-
hugasemd frá farþega fyrir að hann hafi
þurft að sjá gert að fiski. Í kjölfar þess tókum
við upp þá reglu að spyrja hvort einhver
hefði á móti sjóstangveiðinni en þetta er fá-
títt. En vissulega hafi margir okkar farþega
aldrei upplifað það að veiða fisk eða fara á
sjó,“ segir Árni og hann er ekki í vafa um að
stór hluti upplifunar gestanna er að sigla á
þessum gamla og virðulega eikarbáti.
„Báturinn hefur mikið aðdráttarafl og þó
við höfum leyfi til að sigla með ferðamenn á
báðum bátunum í dag þá eru margir sem
Farþegar skoða hnúfubak.
Útgerð Níelsar Jónssonar ehf. á Hauganesi er elsta hvalaskoðunarfyrirtæki landsins. Árni segir
mikla uppsveiflu hafa orðið í þeirri þjónustu þegar hnúfubakurinn varð jafn algeng sjón á Eyja-
firði og verið hefur raunin undanfarin ár.