Ægir - 01.10.2014, Side 29
29
Haukur Sigvaldason sýnir Bergljótu móður sinni minningarkransinn sem varpað var í sjóinn á Eyjafirði þegar rétt 50 ár voru liðin frá sjóslysunum
miklu, 9. apríl 2013.
Fimm menn fórust með Súlunni
Súlan frá Akureyri fórst norð-
vestur af Garðskaga í páska-
hretinu 1963, 10. apríl. Fimm
sjómenn fórust með skipinu en
sex komust af. Í Morgunblaðinu
11. apríl er birt samantekt um
atburðarrásina, byggð á frá-
sögn Ingólfs Sigurðssonar skip-
stjóra, sem var einn þeirra sem
björguðust:
„Samkvæmt frásögn hans
fórst skipið kl. 2:30 í mjög
slæmu veðri, hvassviðri og 10
stiga frosti. Skipstjórinn var
staddur í brúnni ásamt tveimur
hásetum. Hinir voru frammi í
lúkar og vél.
Skyndilega reið hnútur yfir
skipið á stjórnborðshlið og
færði það í kaf í sjó. Gekk sjór-
inn yfir allt skipið, sem lagðist á
hliðina. Skipstjóranum og há-
setum í brúnni tókst að komast
út, en brúin var um það bil lá-
rétt og hálffull af sjó. Enginn
tími var til að senda neyðarkall í
talstöðinni.
Ekki mátti tæpara standa
Á skipinu voru tveir gúmmíbát-
ar, annar á stýrishúsi en hinn
aftur á bátadekki. Báðir bátarnir
slitnuðu upp. Skipstjórinn og
þeir skipverjar sem björguðust
stukku í sjóinn og svömluðu
umhverfis þann bátinn, sem var
á stýrishúsinu, en hann var
óuppblásinn. Tókst þeim að
komast um borð eftir skamma
stund og álíta að ekki hafi mátt
tæpara standa í þessum fimbul-
kulda sem í sjónum var.
Á gúmmíbátnum var tjald-
himinn opinn á tveimur stöð-
um og næddi þar ískaldur gust-
ur í gegn. Ennfremur var bátur-
inn hálffullur af sjó og urðu þeir
sem í hann komust að hefja
austur. Skutu þeir upp hand-
blysi með rauðu ljósi sem
Njarðvíkurbáturinn Sigurfari GK
410 varð var við, er hann var
um tveggja tíma siglingu frá
slysstaðnum.
Telur skipstjórinn á Súlunni
að þeir skipverjar sem fórustu
muni ekki hafa komist í gúmmí-
björgunarbátinn á bátadekkinu.
Þrír þeirra, sem fórust, voru í
lúkarnum frammi í, en hinir
tveir munu hafa komist að
brúnni. Skipbrotsmenn á
gúmmíbjörgungarbátnum sáu
aldrei til hins bátsins sam var á
floti skammt frá.“