Ægir - 01.10.2014, Page 48
48
ekki lokið með samkomulagi,
eftir sem áður eru uppi óleystar
deilur. Það verður að breyta nú-
verandi fyrirkomulagi varðandi
fiskverðið. Þetta hef ég sagt
lengi en okkur hefur því miður
orðið lítið ágengt.“
Sameiginlegir hagsmunir í
mörgum málum
Sævar segir að þrátt fyrir að eðli
málsins samkvæmt hafi Sjó-
mannasambandið unnið af
festu að hagsmunum sinna um-
bjóðenda gagnvart viðsemj-
endum sínum, þ.e. útvegs-
mönnum, sé almennt gott sam-
starf á milli sjómanna og út-
vegsmanna. „Það hefur alltaf
verið skýrt í mínum huga að út-
gerðarmenn geta ekki án sjó-
manna verið og að sama skapi
geta sjómenn ekki án útgerðar-
manna verið. Ég hef lagt mig
fram um að vinna vel með öll-
um aðilum í hinum ýmsu mál-
um, t.d. varðandi fiskveiði-
stjórnun, og ég vil segja að þar
hafi hagsmunir annars vegar
samtaka sjómanna og hins veg-
ar útvegsmanna legið saman. Í
þessu sambandi get ég einnig
nefnt brottkastið. Þar voru
menn sammála um að þetta
Í amstrinu á skrifstofu SSÍ. „Ég tók ákvörðun um það núna á haustdögum að leita ekki eftir endurkjöri á Sjómannasambandsþinginu. Ég er orðinn
71 árs gamall – bráðum 72ja ára – og því er þetta orðið gott og tími á að yngri maður taki við,“ segir Sævar.