Ægir - 01.10.2014, Blaðsíða 52
52
Þau tíðindi eru stærst í nýrri
stofnmælingu Hafrannsókna-
stofnunar á botnfiski við landið
að vísbendingar eru nú um að
sjáist fyrir endann á langri nið-
ursveiflu í ýsustofninum.
Mældist árgangur ársins 2014
sá stærsti síðan stofnmælingar
hófust að hausti hér við land
árið 1996. Að sama skapi stað-
festu mælingarnar góða stöðu
þorskstofnsins en heildarvísi-
tala um magn þorsks var sú
hæsta frá upphafi stofnmæl-
inganna.
Liður í aðdraganda veiðiráðgjafar
Eins og áður segir hófust stofn-
mælingar að haustlagi, svokall-
að haustrall, árið 1996 og var
þetta því 18. árið í röð sem þær
eru framkvæmdar. Rannsóknar-
svæðið var umhverfis Ísland allt
niður á 1500 metra dýpi, auk
þess sem að svæðið náði að
hluta inn í lögsögu Grænlands.
Togað var með botnvörpu á
378 stöðvum en áhersla var
lögð á að mæla helstu botn-
læga nytjastofna og sérstök
áhersla lögð á djúpkarfa, grá-
lúðu og fleiri djúpsjávarfiska.
Að þessu sinni voru togararnir
Jón Vídalín VE og Ljósafell SU
leigðir til rannsóknanna.
„Meira fékkst af flestum teg-
undum í stofnmælingu að
hausti árið 2014 en undanfarin
ár og eru vísitölur sumra teg-
unda þær hæstu frá upphafi
haustrallsins árið 1996. Vísitala
þorsks er sú hæsta síðan mæl-
ingar hófust árið 1996. Vís-
bendingar eru um að 2014 ár-
gangur ýsu geti orðið stór eftir
langvarandi lélega nýliðun. Nið-
urstöður mælingarinnar sem
hér eru kynntar til bráðabirgða
eru mikilvægur þáttur árlegrar
úttektar Hafrannsóknastofnun-
ar á ástandi helstu nytjastofna
við landið sem lýkur með ráð-
gjöf í júní 2015,“ segir í saman-
tekt Hafrannsóknastofnunar
um haustrallið.
Staðfesting á styrk
þorskstofnsins
Stofnstofninn hefur vaxið hratt
síðustu 7 ár og mælist enn eitt
árið metfjöldi af gömlum fiski.
Mun meira reyndist af þorski
stærri en 80 cm en að meðaltali
á árunum 1996-2013.
Þetta kemur einnig fram í
aldursskiptum vísitölum sem
sýna að síðastliðin ár hefur
fjöldi 8-13 ára þorsks farið vax-
andi. Sú mæling að stærð árs-
gamals þorsks, þ.e. árgangurinn
frá 2013, í stofnmælingunni í
mars væri slakur er staðfest nú
haustrallinu. Vísitölur tveggja,
þriggja og fimm ára þorsks, ár-
ganganna frá 2009, 2011 og
2012, mældust hins vegar háar,
en vísitala fjögurra ára fisks, þ.e.
árgangsins frá 2010, er undir
meðallagi. Fyrstu vísbendingar
um 2014 árganginn gefa til
kynna að hann sé yfir meðal-
stærð,“ segir í skýrslu Hafrann-
sóknastofnunar en meðal-
þyngdir sex ára og eldri þorsks
eru nú yfir meðaltali áranna
1996-2013, en um eða undir
meðaltali hjá yngri fiski. Mest
fékkst af þorski djúpt norðvest-
ur, norður og austur af landinu
og á Þórsbanka fyrir suðaustan
land líkt og undanfarin ár.
Heildarmagn fæðu í mögum
smáþorsks (35-55 cm) og milli-
þorsks (55-85 cm) árið 2014 var
HDS 5/11 U/UX
110 bör
450 ltr/klst
1x230 volt
Gufudælur
Aflmiklir vinnuþjarkar
HDS 10/20-4 M/MX
30-200 bör
500-1000 ltr/klst
HDS 8/18-4 C/CX
30-180 bör
300-800 ltr/klst
Með og án slönguhjóls
Skeifan 3E-F · Sími 581-2333 · rafver@rafver.is · www.rafver.is
K Ä R C H E R S Ö L U M E N N
V E R T U Á Ö R U G G U M S T A Ð
Haustrall Hafró í 18. sinn:
Ýsustofninn sýnir
loks batamerki
Eftir sex ára niðursveiflu er ýsustofninn að rétta úr kútnum.
F
isk
istofn
a
r