Ægir - 01.10.2014, Page 57
57
Samkvæmt samantekt Fiski-
stofu hefur heildarafli af Ís-
landsmiðum farið minnkandi
síðustu tvo áratugi. Skýringanna
er fyrst og fremst að leita í sam-
drætti loðnuafla á seinni áratug
þessa viðmiðunartímabils.
Á fiskveiðiárunum 1992/93-
1996/97 var heildaraflinn að
jafnaði um 1,7 milljónir tonna
en rösk ein milljón tonna að
jafnaði ef horft er á síðustu fisk-
veiðiár, þ.e. frá fiskveiðiárinu
2009/10. Sjá má í meðfylgjandi
súluriti að verulegur munur er
enda á uppsjávaraflanum þessi
síðustu ár miðað við það sem
áður var, þrátt fyrir aukinn
makrílafla.
„Botnfiskafli á tímabilinu
hefur hins vegar haldist nokkuð
stöðugur. Á síðasta fiskveiðiári
var heildarbotnfiskaflinn tæp-
lega 446 þúsund tonn og hefur
botnfiskaflinn aukist jafnt og
þétt síðastliðin fjögur fiskveiði-
ár, aðallega vegna aukins
þorskafla sem hefur vegið á
móti minnkandi ýsuafla af haf-
svæðinu umhverfis landið.
Það kemur fram annar veru-
leiki þegar horft er til þróunar á
uppsjávarafla á Íslandsmiðum
síðastliðna rúma tvo áratugi.
Síðan uppúr aldamótum hefur
aflamagn úr helstu uppsjávar-
tegundum farið minnkandi.
Sérstaklega á þetta við um
loðnu en „vítamínsprauta“ kom
vissulega í uppsjávarveiðarnar
hér við land þegar makríll fór að
ganga í fiskveiðilögsöguna,“
segir í samantekt Fiskistofu.
Heildaraflinn hefur
farið minnkandi
F
réttir