Morgunblaðið - 01.05.2015, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2015
Nýliðinn aprílmánður var fremur
kaldur um landið suðvestanvert, en
þó ekki eins kaldur og sami mán-
uður árið 2013. Þetta kemur fram í
bráðabigðayfirliti Trausta Jóns-
sonar veðurfræðings.
Meðalhiti í Reykjavík var 2,4 stig
og er það -0,4 stigum undir meðal-
lagi áranna 1961 til 1990, en -1,4
undir meðallagi síðustu tíu ára.
Á Akureyri var apríl í hlýrri
kantinum þrátt fyrir kuldakastið í
lok mánaðarins. Þar var meðalhit-
inn 2,7 stig og er það 1,1 stigi yfir
meðallagi áranna 1961 til 1990, en í
meðallagi sé miðað við síðustu tíu
ár. Austanlands var hiti víða yfir
meðallagi síðustu tíu ára.
Úrkoma var innan við meðallag í
Reykjavík, en vel yfir því á Akur-
eyri. Sólskinsstundir í Reykjavík
voru lítillega yfir meðallagi áranna
1961 til 1990 – en undir meðallagi
síðustu tíu ára, segir Trausti.
sisi@mbl.is
Morgunblaðið/Malín Brand
Umferðin Veðrið í nýliðnum apríl
var mjög rysjótt á köflum.
Nýliðinn
apríl hlýrri
en apríl 2013
Nemendur Klettaskóla, foreldrar og kennarar
við skólann fögnuðu í gær nýrri viðbyggingu
sem væntanleg er við skólann. Borgarstjóri,
Dagur B. Eggertsson, ásamt nokkrum nem-
endum skólans tóku fyrstu skóflustunguna en
heilmiklar framkvæmdir eru fyrirséðar við skól-
ann sem taldar eru koma til með að efla skólann
mikið. „Framkvæmdirnar munu gjörbylta starf-
semi skólans og skapa nýja möguleika. Meiri-
háttar breytingar verða á aðstöðu, aðgengi og
þjónustu við nemendur,“ segir Erla Gunn-
arsdóttir, skólastjóri Klettaskóla.
Erla segir að á næstu dögum verði byrjað að
grafa fyrir 3.400 fermetra viðbyggingu við skól-
ann og í haust sé stefnt að því að byggingarvinna
hefjist. Jafnframt er fyrirhugað að gera breyt-
ingar á eldra húsnæði skólans.
Í fréttatilkynningu frá skólanum kemur fram
að norðvestan við skólahúsið verði íþróttahús,
tvær kennslusundlaugar og hátíðar- og matsal-
ur. Erla segir hreyfinám mjög mikilvægan þátt
við skólann og því hafi mikið að segja að aðstaða
til hreyfingar sé góð.
Í tilkynningunni segir jafnframt að austan
megin við Klettaskóla muni rísa félagsmiðstöð.
Endurbætur verði gerðar á upplýsingaveri og
bókasafni og bætt verði við hæð með aðstöðu
fyrir starfsfólk. Þá muni verkgreinastofur flytj-
ast í eina smiðju og frístundaaðstaða færast um
set. Leiðir innan- og utanhúss munu styttast og
verða greiðari. Erla segir leiksvæði á lóð einnig
verða endurgert svo það henti betur nemendum
skólans.
Áætlað er að lokið verði við framkvæmdirnar
árið 2018 og að heildarkostnaðurinn nemi 2,6
milljörðum króna. brynjadogg@mbl.is
Framkvæmdir hefjast á nýrri viðbyggingu við Klettaskóla
Morgunblaðið/Eggert
Ný viðbygging mun gjörbylta starfsemi Klettaskóla
Verk myndlistarmannsins Christ-
ophs Büchel, sem verður fulltrúi Ís-
lands á Feneyjatvíæringnum sem
hefst 9. maí næstkomandi, nefnist
Moskan, The Mosque á ensku, og
verður sett upp í afhelgaðri kirkju
frá 10. öld. Sam-
kvæmt upplýs-
ingum frá Kynn-
ingarmiðstöð
íslenskrar mynd-
listar er verkið
unnið í samstarfi
listamannsins og
samfélaga músl-
íma á Íslandi og í
Feneyjum en í
hinum gamla og
sögulega hluta
Feneyja hefur aldrei risið moska,
þrátt fyrir sterk söguleg áhrif ísl-
amskrar menningar þar. Sagt er að
tilgangurinn með verkinu sé „að
draga athygli að stofnanavæddum
aðskilnaði og fordómum í samfélag-
inu“. Til stendur að bjóða upp á
fræðslu- og menningarkynningar
fyrir gesti sýningarinnar, meðal
annars til að auka skilning á mis-
munandi menningarheimum. Sýn-
ingarstjóri verkefnisins er Nína
Magnúsdóttir.
Leynd yfir verkinu
Í fyrra var í fyrsta skipti auglýst
eftir umsóknum um verkefni til að
setja upp í íslenska skálanum á Fen-
eyjatvíæringnum, elstu og fjölsótt-
ustu myndlistarhátíð samtímans.
Talsverða athygli vakti þegar val-
nefnd kaus tillögu Büchel, tæplega
fimmtugs svissnesks listamanns sem
lítið hefur farið fyrir í íslensku lista-
lífi þótt hann sé búsettur á Seyðis-
firði. Hann hefur lengi starfað með
einu þekktasta galleríi samtímans,
Hauser & Wirth, og sett upp athygl-
isverðar og viðamiklar innsetningar
í virtum söfnum og sýningarsölum.
Á dögunum hlaut hann virt verð-
laun, Swiss Grand Prix Art – The
Prix Meret Oppenheim.
Talsverð leynd hefur hvílt yfir
verki Büchel enda viðfangsefnið að
margra mati viðkvæmt. Í tilkynn-
ingunni er vitnað í Illuga Gunn-
arsson, mennta- og menningar-
málaráðherra, sem segist vona að
verkið verði jákvætt innlegg í um-
ræðu um umburðarlyndi. Þá segir
formaður Félags múslima í Feyjum
um íslenska skálann: „Blað hefur
verið brotið í sögu Feneyjaborgar
með nýju listformi – list sem er ekki
einungis takmörkuð við málverk eða
höggmyndir, heldur list sem mætir
kalli nútímans um samtal.“
Moskan verður sett upp í hinni
fornu kirkju heilagrar Maríu hinnar
miskunnsömu, Santa Maria della
Misericordia, sem er frá 10. öld en
afhelguð og hefur ekki verið opin al-
menningi í fjóra áratugi.
Fyrsta moskan
Þá sjö mánuði sem sýningar
tvíæringins eru opnar, er verkinu
sem byggist á þeirri staðreynd að
þetta verður fyrsta moskan í hinum
sögulega hluta Feneyja, ætlað „að
tengja saman þúsundir múslima í
Feneyjum sem eru frá 29 löndum,
múslimska ferðamenn sem sækja
borgina heim ásamt öðrum Fen-
eyingum og ferðamönnum,“ eins og
segir í tilkynningunni.
Kirkjan mun verða miðstöð fyrir
ýmsa starfsemi samfélags múslima í
Feneyjum og verður almenningi
boðið upp á ýmiskonar fræðslu.
Büchel tengir hugmynd verksins
við söguleg áhrif íslamskrar menn-
ingar á Feneyjar og þær félags- og
stjórnmálalegu skírskotanir sem
borgin hefur í hnattrænum búferla-
flutningum nútímans. Þá hafi hvorki
verið byggðar moskur í Feneyjum
né á Íslandi en í stuðningsyfirlýs-
ingu Sverris Agnarssonar, formanns
Félags múslima á Íslandi, segir að
félagið sé stolt af stuðningi sínum
við verkið á sama tíma og takmark
þess nálgast, „að byggja fyrstu
moskuna í nyrstu höfuðborg heims.
Það er von okkar að verkefni sem
þessi leiði til líflegrar starfsemi með-
al hófsamra, víðsýnna múslima á al-
þjóðavísu“. efi@mbl.is
Moska í íslenska skálanum
á Feneyjatvíæringnum
Verk listamannsins Christophs Büchel sett upp í samvinnu við félög múslima
Skálinn Íslenski skálinn á Feneyjatvíæringnum verður að þessi sinni þessi
kirkja frá 10. öld, þar sem verkið Moskan eftir Büchel verður sett upp.
Christoph
Büchel
„Það liggur per-
sónuleg ákvörðun
að baki. Ég tók að
mér flókið og erf-
itt verkefni á
árinu 2010. Það
má segja að þegar
okkur tókst að
skila hagnaði á
síðasta ári væri
kominn góður
tímapunktur til að
loka þessum kafla í lífi mínu. Mark-
miðin sem ég setti í rekstrinum þegar
ég tók við starfinu í nóvember 2010
höfðu náðst. Ég taldi hreinlegast að
stíga til hliðar og leita að nýjum
áskorunum,“ segir Sigurður Erlings-
son, fráfarandi forstjóri Íbúðalána-
sjóðs, um þá ákvörðun að láta af
starfinu.
Hann segir ákvörðunina alfarið
sína eigin. Viðbrögð starfsfólks hafi
verið tilfinningarík. „Það snart mig
hversu mikil eftirsjá er hjá starfs-
mönnum vegna brotthvarfs míns.
Það birtust sterkar tilfinningar,“ seg-
ir Sigurður sem er viðskiptafræð-
ingur að mennt og með MBA-gráðu.
„Í stuttu máli má segja að búið sé
að finna nær öllum vandamálunum
sem ég stóð frammi fyrir árið 2010
farveg. Áhætta í rekstri fer minnk-
andi og gæði lánasafnsins hafa auk-
ist. Samhliða þessu skilaði sjóðurinn
hagnaði á árinu 2014 í fyrsta sinn frá
2007. Okkur hefur tekist vel til með
þá umsvifamiklu leigustarfsemi sem
við rekum og sjóðurinn hefur náð
góðum árangri í sölu fullnustueigna.
Fjárhagsleg endurskipulagning
leigufyrirtækja í viðskiptum við
Íbúðalánasjóð hefur tekist vel. Mikl-
ar umbætur hafa orðið á innviðum
sjóðsins m.t.t. lykilferla, kerfa og
áhættustýringar,“ segir Sigurður.
Góður tíma-
punktur til
að loka þess-
um kafla
Sigurður
Erlingsson