Morgunblaðið - 01.05.2015, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2015
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Jóhannes Loftsson, verkfræðingur
og framkvæmdastjóri Breather
Ventilation sem er fyrirtæki stofnað
í kringum upp-
finninguna
Andblæ, segir að
mjög stór skekkja
sé í nýlegri
skýrslu sem unn-
in var af verk-
fræðistofunni
Eflu, til að meta
nothæfisstuðul
Reykjavíkurflug-
vallar. Þetta segir
Jóhannes að geti
stefnt flugöryggi á Íslandi í voða.
Þekktar langtíma veðursveiflur
„Ástæða þess að ég fullyrði þetta,
er sú að útreikningarnir hjá Eflu
taka ekki tillit til þekktra langtíma
veðursveiflna í veðurkerfum kring-
um Ísland sem mælst hafa frá upp-
hafi veðurmælinga,“ sagði Jóhannes
í samtali við Morgunblaðið.
Jóhannes segir að Norður-Atl-
antshafs-áratugasveiflan sé lang-
tímaveðursveifla, tengd sjávar-
straumum, sem sé t.d. talin valda
hita- og veðursveiflu með um 60-70
ára endurtekningatíma, og séu hlý-
indin sem við höfum upplifað að und-
anförnu að miklu leyti ákveðin end-
urtekning á hlýju tímabili á 4. áratug
síðustu aldar.
„Í skýrslu Eflu var ákveðið að
nýta ekki eldri veðurgögn og ein-
göngu notuð nýlegri veðurgögn úr
fullkomnari veðurmælingum. Þessir
mælar geta þó ekki mælt veður aftur
í tímann,“ segir Jóhannes.
Hann vísar í töflu, sem birt er með
þessari frétt, þar sem glöggt sjáist
að þessi aðferð Eflu valdi sláandi
stórri skekkju því meðalvindhraði
yfir 65 ára tímabilið sé um 39% meiri
en mælingar frá tímabilinu sem Efla
notar í sínum útreikningum.
„Í verstu árum hefur meðalvind-
urinn farið í 7,4 m/s sem er 83% meiri
meðalvindur en er á skemmra tíma-
bilinu í greiningu Eflu. Það kemur
því ekki á óvart, þegar nær eingöngu
eru tekin góðviðrisár með í reikning-
inn, að út komi niðurstaða sem bendi
til þess að neyðarbrautin sé óþörf.“
Röng veðurgögn
„En þetta eru röng veðurgögn og
því er niðurstaðan röng. Það sem
verra er, þá eru ákveðnar vísbend-
ingar þegar komnar fram sem benda
til þess að brátt taki við kaldara og
vindasamara tímabil,“ segir Jóhann-
es.
Jóhannes segir að í ljósi þess að
þegar sé byrjað að taka ákvarðanir
út frá þessari röngu greiningu Eflu
„sem gætu stefnt flugöryggi í áætl-
unarflugi og sjúkraflugi hér á landi í
voða,“ þá telji hann réttast að Efla
myndi draga skýrslu sína til baka.
Stór skekkja í skýrslu Eflu?
Jóhannes Loftsson verkfræðingur segir Eflu hafa stuðst við nýleg veðurgögn sem valdi verulegu van-
mati Meðalvindhraði 40% meiri miðað við 65 ára tímabil Segir ranga greiningu geta ógnað öryggi
Samanburður á vindhraða í Reykjavík við
grunngögn flugvallarskýrslu Eflu
Heimild: Veðurstofa Íslands
1950 1960 1970 1980 1990 2000 2010
8 m/s
7 m/s
6 m/s
5 m/s
4 m/s
3 m/s
2 m/s
1 m/s
0 m/s
Ár
sg
ild
iv
in
dh
ra
ða
íR
ey
kj
av
ík
hæstamæling 83%hærri enmeðalgildi skýrslu!
39% slekkja
Meðalvindur 9 ára tímabils
(tímabil notað í skýrslu)
Meðalvindur 20 ára tímabils
(tímabil notað í skýrslu)
Meðalvindur 65 ára tímabils
(tímabil ekki notað í skýrslu)
Mælingar á ársgildi vindhraða
í Reykjavík 1950-2014
v = 5.6 m/s v = 5.5 m/s v = 4.03 m/s
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Reykjavíkurflugvöllur Jóhannes segir stóra skekkju vera í skýrslu Eflu.
Jóhannes
Loftsson
Fjöldi listamanna, bæði í myndlist
og tónlist, gefur vinnu sína og verk
til styrktar Leiðarljósi, stuðnings-
miðstöð fyrir fjölskyldur barna með
sjaldgæfa og langvinna sjúkdóma.
„Þetta er í raun miðstöð sem þjóðin
gaf en hún var opnuð í kjölfar
landssöfnunar samtakanna Á allra
vörum sem fram fór í Ríkisútvarp-
inu haustið 2012,“ segir Bára Sig-
urjónsdóttir, forstöðukona Leiðar-
ljóss. „Leiðarljós er í raun ákveðin
framlenging af spítalanum, börn
sem fara heim af spítala þurfa
áfram mikla þjónustu og foreldr-
arnir þurfa líka alhliða stuðning og
margvíslega ráðgjöf. Söfnunin er
mjög mikilvæg svo hægt sé að sinna
þessum hópi betur,“ segir Bára.
Haldið verður uppboð á listaverk-
um sem samtals eru metin á 15-20
milljónir og mun ágóðinn renna
óskiptur til Leiðarljóss. Verkin sem
um ræðir eru mjög fjölbreytt að
sögn Árna Más Jenssonar, vel-
unnara Leiðarljóss. „Sverrir Krist-
insson, listaverkasafnari, tók að sér
að yfirfara verkin og meta verð-
mæti þeirra. Segir hann verkin
mjög áhugaverð og fjölbreytileg en
á sýningunni má finna verk eftir
marga þekktustu samtímalistamenn
á Íslandi, til dæmis Daða Guð-
björnsson, Eddu Heiðrúnu Back-
man, Hallgrím Helgason og Jón Ax-
el Björnsson. Einnig erum við með
eitt verk frá svissneskum lista-
manni.“
Verkin verða til sýnis í Tjarn-
arsal Ráðhúss Reykjavíkur til 2.
maí en 3. maí klukkan 14 verða þau
boðin upp í Gamla bíói.
Allir gefa vinnu sína
Á uppboðinu munu Eyþór Ingi
Gunnlaugsson, Ragnheiður Gröndal
og Þór Breiðfjörð flytja lög úr Jes-
us Christ Superstar. Þau gefa vinnu
sína. „Allir listamenn gefa vinnu
sína og erum við þeim mjög þakk-
lát. Við erum einnig með góða
stuðningsaðila svo sem Arion
banka, Íslandsbanka, Landsbank-
ann, Marel, Eimskip og marga
fleiri. Við viljum koma sérstöku
þakklæti til þeirra,“ segir Árni.
brynjadogg@mbl.is
Listamenn styrkja langveik
börn og fjölskyldur þeirra
Leiðarljós gegnir mikilvægu hlutverki og fær veglegan stuðning
Myndlistarmenn gefa verk sín á uppboð Ágóðinn rennur
óskiptur til Leiðarljóss Styrkur til fjölskyldna veikra barna
Morgunblaðið/Golli
Listaverk Fjöldi málverka eftir íslenska samtímalistamenn verður á uppboðinu 3. maí í Gamla bíói.
Hæstiréttur dæmdi í gær karlmann
í þriggja ára fangelsi fyrir kynferð-
isbrot gegn tveimur dætrum sínum.
Brotin voru framin árin 2005 og
2009 og áttu sér stað á heimili
mannsins. Brotið gegn yngri dóttur
hans, sem var 11 ára gömul þegar
fyrsta brotið átti sér stað, var fram-
ið í rúmi ákærða. Hann strauk
henni innanklæða, káfaði á brjóst-
um hennar, setti hendi stúlkunnar
ofan í nærbuxur sínar og lét hana
strjúka getnaðarlim sinn. Hann
strauk jafnframt kynfæri dóttur
sinnar og stakk fingri sínum inn í
leggöng hennar. Þegar stúlkan var
15 ára gömul káfaði hann á brjóst-
um hennar utanklæða þar sem hún
lá sofandi á
heimili ákærða.
Síðar á sama ári
braut maðurinn
gegn eldri dóttur
sinni, sem þá var
19 ára gömul.
Hann káfaði á
lærum hennar
þar sem hún lá í
rúmi hans.
Reyndi hann
jafnframt ítrekað að káfa á kynfær-
um hennar.
Manninum var gert að greiða
dætrum sínum skaðabætur, annars
vegar 900 þúsund krónur og hins
vegar 600 þúsund.
Braut kynferðislega gegn dætrum sínum
Dómur Maðurinn
hlaut 3 ára dóm.