Morgunblaðið - 01.05.2015, Blaðsíða 10
Einbeiting Yrsa leiðbeinir Kristínu með filmu og eins gott að vanda sig.
Hressir nemendur Fremst f.v.: Aníta Mjöll Dalkvist Gunnarsdóttir, Þórey Ingvarsdóttir, Magnea Fönn Dalkvist
Gunnarsdóttir og Kristín Sara Magnúsdóttir. Fyrir aftan Ásta Þorbjörg Ingólfsdóttir og Kári Ingvarsson.
Yrsa segir það hafa verið hreint frábært að verameð krökkunum og kenna þeim að taka myndirog framkalla á filmu. „Það var ótrúlega gamanfyrir mig að sjá andlit þeirra þegar mynd birtist
á filmunni.“ Anítu í 3. bekk fannst skrýtið hvernig mynd-
irnar gátu komið á filmuna sem þau hengdu upp. „Það var
ótrúlegt því venjulega sér maður myndirnar bara á skján-
um á tölvunni eða myndavélinni. Mér fannst líka skrýtið
þegar Yrsa setti hendurnar í myrkrapokann og fann film-
urnar og setti í dollur.“ Þórey í 5. bekk sagði þau hafa lært
að nota fókus og skoða vel bakgrunninn áður en þau
smelltu af á myndavélinni. „Áður en við smelltum af þurft-
um að ákveða af hverju við vildum taka myndir því við
höfðum bara ákveðið margar myndir á filmunni.“ Magneu í
1. bekk fannst merkilegast þegar þau settu filmurnar í box-
ið og voru að hrista. „Svo settum við efni eða vatn í boxið og
það mátti ekki koma ljós.“ Kristínu í 7. bekk fannst nám-
skeiðið æðislegt. „Mér fannst svo skemmtilegt að læra um
myndavélina og ljósmyndun, við vorum líka svo mikið úti
og það finnst mér svo gaman. Ég hlakka mikið til að setja
myndirnar mínar á pappír og kannski hengja þær upp á
vegg.“ Kári í 8. bekk segir þau hafa lært að nota myndavél-
ina rétt, stilla fókus, fá rétta birtu, kanna bakgrunn og
stilla upp hlutum ef þau vildu hafa eitthvað sérstakt á
myndinni. „Mér fannst framköllunin líka skemmtileg en þá
fengum við að nota ýmsa framköllunarvökva og sjá ferlið
frá a til ö. Ástu í 9. bekk fannst frábært að vera á námskeið-
inu þann eina dag sem hún gat verið.
Í Finnbogastaðaskóla í Árneshreppi eru aðeins sex nemendur. Yfir vetrartímann er
ekki mikil afþreying í boði fyrir unga fólkið og því tóku krakkarnir því fagnandi þeg-
ar Yrsa Roca Fannberg kvikmyndagerðarkona kom og hélt ljósmyndanámskeið.
Vetur Girðing í forgrunni hjá Anítu, fjallið Reykjaneshyrna er í fjarska.
Eldhús Kári hafði fókusinn á matnum en matseljan var í bakgrunni. Snillingar á Ströndum
Ljósmyndarar Magnea og Aníta úti í kuldanum.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2015
Lögreglumessan hefur verið haldin
þann 1. maí í yfir 20 ár og hafa lög-
reglumenn ævinlega fjölmennt til
hennar, prúðbúnir í hátíðarbúningi
lögreglumanna í fylgd ástvina sinna
og fjölskyldna. Allir eru hjartanlega
velkomnir á Löggumessuna sem
verður í dag kl. 11 í Laugarneskirkju.
Prestur verður sr. Kristín Þórunn
Tómasdótir en ræðumaður Vilhjálmur
Árnason, alþingismaður og fyrrver-
andi lögreglumaður. Lögreglukórinn
mun einnig syngja.
Kirkjugestir eru hvattir til að mæta
tímanlega því fyrir guðsþjónustuna
munu verða haldnir stuttir en kröft-
ugir karlakórstónleikar fyrir kirkju-
gesti, sem hefjast kl. 10:45.
Eftir messuna verða léttar veit-
ingar í boði Lögreglukórsins í safn-
aðarheimili kirkjunnar og þar verða
trúlega einnig sungin belgingsleg
karlakórslög fyrir gesti.
Allir velkomnir og Lögreglukórinn syngur
Löggumessa
Hefur þú gert stuttmynd eða ert að
vinna að þinni fyrstu stuttmynd? Viltu
öðlast aukna þekkingu á nýsköpun og
framleiðslu? European Film Forum
Scanorama og Alþjóðleg kvik-
myndahátíð í Reykjavík (RIFF) kynna
námskeiðið Scanorama Shortcut fyrir
unga kvikmyndagerðarmenn (18-30
ára). Námskeiðið er tvískipt og fer
fram á Íslandi (á Sauðárkróki og í
Reykjavík) dagana 26. til 30. maí og í
Litháen dagana 19. til 25. júlí.
Leitað er að fimm íslenskum og
fimm litháískum kvikmyndagerðar-
mönnum sem hafa reynslu af stutt-
myndagerð eða eru að vinna að sinni
fyrstu stuttmynd. Umsóknarfrestur er
til og með deginum í dag. Nánar:
www.scanorama.lt/en/shortcut/-
news/scanorama-shortcut-work-
shop-those-who-have-faith-short-film.
Skráningu lýkur í dag
Fyrir ungt
kvikmynda-
gerðarfólk
Getty Images/iStockphoto
Kvikmyndagerð Spennandi fag.
Kringlunni 4c Sími 568 4900
Gallabuxur
margar gerðir og litir