Morgunblaðið - 01.05.2015, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2015
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Sex ár eru síðan lokað var fyrir
umferð í gegnum Rauðalæk í
Laugarneshverfi í Reykjavík. Göt-
unni var lokað eftir niðurstöðu
könnunar meðal íbúa árið 2009.
Enn standa þar steinblokkir sem
nota átti til bráðabigða. Að sögn
Stefáns Agnars Finnssonar hjá
Samgöngusviði Reykjavíkurborgar
er hugmyndin að ganga betur frá
lokuninni, hins vegar eru ekki uppi
áform þess efnis í náinni framtíð.
Hann segir að enn heyrist raddir
meðal fólks sem er óánægt með
lokunina en mikill meirihluti var
hlynntur henni þegar gengið var til
atkvæðagreiðslu árið 2009. Íbúar í
nærliggjandi hverfum hafa kvartað
undan því á Facebooksíðu Laug-
arneshverfis að ekki hafi verið
gengið betur frá lokuninni.
Vilja varanlega lokun
Heiðar Ingi Svansson, formaður
hverfisráðs Laugardals, segir að
fólk í hverfinu hafi kallað eftir
betri frágangi við lokunina. Jafn-
framt að með því verði lokunin var-
anleg þar sem niðurstaða könnunar
meðal íbúa hafi verið ótvíræð.
Nokkuð er síðan Bólstaðarhlíð var
lokað fyrir gegnumakstri sem þyk-
ir hafa gefið góða raun, samkvæmt
upplýsingum frá Reykjavíkurborg.
Þar var notast við bráðabirgðalok-
un í rúman áratug, að sögn Stef-
áns.
Rauðalækur Umferð um götuna var bönnuð árið 2009 að ósk íbúa þar.
Steinblokkir hafa staðið
til bráðabirgða í sex ár
Kalla eftir betri frágangi við lokun
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
„Leyniskýrslur“ sem unnar voru um
Landsbankann og Glitni af erlendum
sérfræðingum sem Eva Joly útveg-
aði reyndust vera
„peninga- og
tímaeyðsla“ að
sögn ónafn-
greinds fyrrver-
andi starfsmanns
sérstaks saksókn-
ara. Þáðu sér-
fræðingarnar á
milli 600 og 700
evrur á tímann
fyrir þá vinnu
sem þeir inntu af hendi, en á þeim
tíma var það vel yfir 100.000 krónum
á klukkustund.
Þessu er haldið fram í nýútkom-
inni bók Eggerts Skúlasonar, rit-
stjóra DV, Andersenskjölin, rann-
sóknir eða ofsóknir? þar sem farið er
yfir feril Gunnars Andersen í for-
stjórastóli Fjármálaeftirlitsins á
gagnrýninn hátt.
Fengu skýrsluna í umslagi
Í bókinni segir frá því að hinn 8.
desember 2010 hafi DV upplýst um
tilvist leyniskýrslu sem Jean-Michel
Matt, starfsmaður franska rann-
sóknarfyrirtækisins Cofisys og liðs-
maður í teymi Evu Joly, hafði unnið
um Glitni og sent til sérstaks sak-
sóknara. Vitnar Eggerts til heimild-
armanns síns á fjölmiðlum, sem seg-
ir nokkra blaðamenn hafa fengið
sendan minniskubb með eintaki af
skýrslunni í umslagi án þess að send-
anda hafi verið getið.
Í skýrslu Matt voru ýmsar lánveit-
ingar Glitnis gagnrýndar, einkum
það að bankinn hafði lánað þrjátíu
aðilum 366 milljarða króna á árinu
2008, og að 62% þessara lána hefðu
runnið til tengdra aðila.
Á svipuðum tíma var annarri
skýrslu lekið í fjölmiðla, að þessu
sinni um Landsbankann, en höfund-
ar hennar voru Helge Skogseth
Berg og Jörgen Rönningen, en Berg
er sagður náinn samstarfsmaður
Joly í bókinni. Sagði í skýrslunni að
Landsbankinn hefði staðið mun verr
en ársskýrslur sýndu, og var endur-
skoðunarfyrirtækið Pricewater-
houseCoopers harðlega gagnrýnt í
skýrslunni.
Miklum annmörkum háðar
Eggert ber saman skýrslurnar
tvær og segir þær áþekkar að öllu
leyti. Eggert vísar í heimildarmann
sinn, sem áður hafi starfað hjá emb-
ætti sérstaks saksóknara, en sá segir
að skýrslurnar hafi báðar verið
„miklum annmörkum háðar og hafa
ekki á nokkurn hátt komið að gagni“.
Þá hafi skýrslurnar aldrei verið hluti
af málatilbúnaði embættisins gegn
þeim einstaklingum sem voru til
rannsóknar, og hefðu því í raun verið
„peninga- og tímaeyðsla“, að sögn
heimildarmannsins.
Össur Skarphéðinsson, þingmað-
ur Samfylkingar, lagði síðar fram
fyrirspurn á Alþingi um verktaka-
kostnað hjá sérstökum saksóknara. Í
svari dómsmálaráðherra kom fram
að Cofisys, sem vann Glitnis-skýrsl-
una, hefði fengið tæpar 14 milljónir
króna fyrir skýrsluna um Glitni, en
Lynx-lögfræðistofan í Noregi hefði
fengið rúmar 80 milljónir fyrir sín
störf, sem einkum sneru að Lands-
bankaskýrslunni. Samtals fengu sér-
fræðingarnir því um 94 milljónir
króna fyrir skýrslur, sem sagðar eru
allt að því gagnslausar.
Skýrslur „peninga- og tímaeyðsla“
Sérfræðingar á vegum Evu Joly fengu um 94 milljónir króna fyrir skýrslugerð Þáðu vel yfir
100.000 krónur á tímann Hafa aldrei verið hluti af málatilbúnaði sérstaks saksóknara
Andersenskjölin
» Í nýútkominni bók Eggerts
Skúlasonar er fjallað um tvær
skýrslur, sem sérfræðingar á
vegum Evu Joly skrifuðu.
» Heimildarmaður Eggerts,
sem áður starfaði hjá embætti
sérstaks saksóknara, segir
skýrslurnar ekki hafa komið að
„nokkru gagni“, og að aldrei
hafi verið byggt á þeim í mála-
tilbúnaði embættisins.
» Í svari dómsmálaráðherra til
Össurs Skarphéðinssonar kom
fram að þeir sem unnu skýrsl-
urnar hefðu fengið um 94 millj-
ónir til samans fyrir störf sín á
vegum embættisins.
Eva Joly
BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS
OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16
FLINGA
80 CM
KR. 9.800
FLINGA
160 CM
KR. 16.700
GINA
STÓLL
KR. 19.700
BETINA EIKARSKENKUR 170X43X72
KR. 142.900
NÝTT - CALVIN TUNGUSÓFI
269X153 CM KR. 227.400
FRÁBÆRT
ÚRVAL
AF PÚĐUM
VERĐ FRÁ
KR. 4.900
MONICA
BORĐSTOFUBORĐ
STÆKKANLEGT
90X180/270
KR. 157.800
MINIMAL
VEGGKLUKKUR
KR. 9.9.80
BORĐ 2 SAMAN
KR. 28.400